Læknaneminn - 01.09.1981, Blaðsíða 73
tefja stjórnarstarfið. Það er ekkert því til fyrirstöðu
að hinn hluti stjórnarinnar, þ. e. a. s. þeir fulltrúar
sem eru fyrst og fremst í stjórn, beri upp stjórnar-
starfið og myndi sér virkan starfsvettvang.
Eg veit ekki hvað verður um framtíð stúdenta-
skiptastjóra í stjórn, en ég vona að hann sitji þar
sem lengst.
Ráðstejnan
Stúdentaskiptastjórar hafa tekið að sér fyrir hönd
EL að halda stúdentaskiptaráðstefnu í Reykjavík
da gana 18.-22. mars næstkomandi. 5 manna undir-
búningsnefnd hefur starfað af fullum krafti síðan í
nóvember sl. I þessari nefnd vinna háðir núverandi
stúdentaskiptastj órar, fyrrverandi stúdentaskipta-
stjóri, sem nú er á 5. ári, auk tveggja stúdenta af 3.
og 4. ári. Það verður að segja að starf nefndarinnar
hefur gengið mjög vel. Yið höfum hvarvetna fengið
góðar undirtektir og fjölmargir aðilar hafa styrkt
okkur. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Heklu og
þar fá þátttakendur jafnframt gistingu.
Við vonumst eindregið til að þessi ráðstefna veki
áhuga hins almenna læknanema og hvetjum alla til
að kynna sér málefni IFMSA og að sjálfsögðu ekki
síður málefni Félags læknanema.
Að síðustu vil ég þakka þeim, sem hafa unnið með
mér á hinum ýmsu sviðum, fyrir samstarfið.
Þuríður Árnadóttir
stúdentaskiptastjóri.
Skýrsla ráðningastjóru
Þetta starfsár gekk stórslysalaust fyrir sig. Núver-
andi reglugerð hefur gengið í tvö ár og komin nokk-
ur reynsla á hana. I henni eru gallar eins og við
mátti búast, sem nauðsyn er að ráða bót á. Einnig
þarf skýrari reglur um úthlutun og dreifingu upp-
lýsinga um þá vinnu, sem í hoði er yfir vetrarmán-
uðina. Aldrei verða menn á eitt sáttir um aðferð til
úrbóta. Líklega er stærsti þátturinn í umfjöllun um
ráðningamál okkar, að of margir stúdentar eru um
of fáar stöður. Sérhver vill fá hag sínum sem best
borgið og erfitt er að sætta fylgjendur andstæðra
sjónarmiða.
I fyrravor var útlitið slæmt og fóru stórir hópar
stúdenta til Svíþjóðar. Létti svo mjög undir með
þeim er heima sátu, að til vandræða kom fyrir ráðn-
ingastjóra að manna þær stöður er í boði voru. Fór
það svo að þriðja árs menn voru ráðnir í stöður að-
stoðarlækna við geðdeild. Plumuðu þeir sig vel.
1 júní voru 45 stöður í boði og tóku 33 stúdentar
stöðu. 7 stöður voru afgangs í júlí og 10 í ágúst. Alls
unnu 4. og 5. árs menn 120 vinnumánuði á vegum
FL. Dreifðust þeir á 44 stúdenta. í þessu uppgjöri er
miðað við allt starfsárið. Einum stúdent var refsað
fyrir brot á reglum.
Aðstoðarráðningastjóri átti í brasi við að finna
vinnu fyrir allt sitt fólk. 60 vinnumánuðir stóðu 3.
árs mönnum til boða. Það er rúmlega einn mánuður
í vinnu fyrir hvern stúdent á árinu. [ þessar stöður
réðu sig 27 stúdentar.
Sigurður Júlíusson,
Bjarni Valtýsson.
Ýmis mítl
Félagsherbergi Félags lœknanema
Fljótlega eftir að fráfarandi stjórn tók við störf-
um, bárust þau boð frá Félagsmálastofnun stúdenta
og Stúdentaráði, að nú yrði FL að rýma félagsher-
hergið, sem það hefur haft í Félagsstofnun stúdenta.
Þetta voru þó engar nýjar fréttir, því í 2 ár hefur
staðið til að úthúa 3 herbergi í Félagsstofnuninni
sem sameiginleg vinnu- og fundaherbergi fyrir deild-
arfélögin. Framkvæmdir hafa tafist vegna fjárskorts
þar til sl. haust, að loks var til nægilegt fé til að
hefja framkvæmdir.
Eftir nokkrar umræður við fulltrúa frá Stúdenta-
ráði fékkst það fram að FL var tryggð áframhald-
andi seta í herberginu, en hugsast getur að önnur
deildafélög fái þar inni líka. FL mun þó halda
áfram læstu geymsluherbergi, sem þarna er, til sinna
afnota. Jafnframt fékkst það fram að breytingar á
þessu herbergi yrðu látnar sitja á hakanum. Ekki
hefur enn orðið af þessum breytingum. Stjórnin
undirbjó þær þó á þann hátt, að geymsluherbergið
var tæmt af aldagömlum skjölum sem þar voru.
Fluttu nokkrir vaskir læknanemar skjöl þessi í aðra
geymslu, sem Læknaneminn hefur til umráða í aðal-
byggingu III. Nýrri skjöl félagsins (frá 1970) voru
svo flutt inn í geymsluherbergið.
læknaneminn
71