Læknaneminn - 01.09.1981, Blaðsíða 37
Röntgenmyndatökur af lungum (seinni hiuti)
Henrik Linnet læknir
Grcining
Til þess að gera þessu viðamikla og vandasama efni
sem best skil í stuttri grein, hef ég farið þá leið að
fjalla um það á nokkuð breiðum grundvelli og reynt
að draga fram aðalatriði við margháttaðar breyting-
ar, sem birtast okkur á röntgenmyndum af lungum.
Sumar eru þœr einfaldar og skýrar og auðvelt að
túlka, aðrar flóknar og margbreytilegar og erfitt að
túlka, enn aðrar óljósar og óákveðnar, enda endur-
spegla þœr hina margvíslegustu sjúkdóma, bæði þá
sem heyra lungunum til í þess orðs fyllstu merkingu,
1) hina eiginlegu lungnasjúkdóma, 2) og eins þá sem
hafa aðsetur sitt í öðrum líffærum, en varpa til þeirra
ineinsemdum eða teygja arma sína til þeirra frá
næsta umhverfi, 3) og loks eru þeir sjúkdómar, þar
sem breytingar í lungum eru eða geta verið einn
liður í almennri sjúkdómsmynd.
Það er hægt að taka þetta efni fyrir á margan
hátt og fjalla um það frá ólíkum sjónarhornum og er
raunar gert, en ég hef kosið að taka það til umfjöll-
unar á eftirfarandi hátt, en vil þó vekja athygli á því,
að ég fjalla fyrst og fremst um þær breytingar á rönt-
genmyndunum, sem fram koma við ólika sjúkdóma
og liggja þeim til grundvallar.
yfirlit
I Heildarásýnd lungna
1 Gagnsæ lungnamynd
2 Skyggð lungnamynd
II Skuggar, sem taka yfir stór svæði
1 Atelektasis
2 Konsolidasjón
3 Infiltrasjón
4 Lungnaödem
5 Vökvi í pleuraholi
III Litlir skuggar, sem eru tiltölulega vel afmark-
aðir allt ofan í örsmáa díla
1 Dreifðir blettir eða hnútar
2 Stakir blettir eða hnútar
IV Skuggar, sem koma fram sem línur, rákir eða
bönd
V Holur og loftfyllt rúm. Loftbrjóst
VI Lungnaþan
VII Miðmæti, þind og brjóstveggir
1 Miðmæti
2 Þind
3 Brjóstveggir
VIII Meðfæddir gallar eða vanskapanir
HEILDARÁSÝND LUNGNAMYNDARINNAR
Ásýnd lungnamyndarinnar í heild, blær hennar,
getur gefið okkur vissar vísbendingar um sjúklegt
ástand, en um tvo möguleika er að ræða: Annað
hvort er myndin óvanalega gagnsæ eða óvanalega
skyggð. Hitt er svo annað mál, að það getur vafist
fyrir manni að segja nákvæmlega hvað sé einmitt
normal ásýnd, því að í þeim efnum eins og á öllum
öðrum sviðum læknisfræðinnar eigum við einmitt
jafnan hvað erfiðast með að skilgreina hvað er
normalt. Auðveldara er að sj á og benda á að mynd
sé ekki eðlileg. Vitaskuld er hér ekki vettvangur til
að fara út í þá sálma, en á eitt grundvallaratriði
verður þó að benda varðandi ásýnd og túlkun
lungnamynda og það er öndunarstaðan, sem þær eru
teknar í. I útöndun eru lungun illa loftuð, alveolurn-
ar ekki þandar, æðar saman færðar, jafnvel þrútnar
af blóði og myndin verður skyggð, þindin stendur
hátt, hjarta og miðmæti (mediastinum) breiðari en
ella, eða virðast stækkuð. Sé hins vegar ný mynd tek-
in af sama sjúklingi í góðri innöndun hverfur allt
þetta, þ. e. a. s. ef lungun eru heil. Þau verða hrein að
sjá, hjartað ekki stækkað og miðmæti ekki breikkað.
Verður því að athuga vel stöðu þindar áður en lagð-
ur er dómur á lungnamyndina. Innöndun verður að
vera fullnægjandi, að öðrum kosti verður allt mat
vafasamt og erfitt.
læknaneminn
35