Læknaneminn - 01.09.1981, Blaðsíða 47
Mynd 9. Útbreiddar íferðir í báðum lungum. Hiti og hósti
1 10 daga. Mycoplasma smit staðfest.
um mæli, sem fylgir eða einkennir hina langvinnu
bólgusjúkdóma í lungum. Hnútarnir við berkla
myndast í alveoleru skilveggjunum í tengslum við
háræðarnar og eru því millivefjaíferðir og hnútarnir
og rákirnar við sarcoidosis eru líka íferðir í skil-
veggjunum eða millivefjunum. Við ýmsa fleiri sjúk-
dóma geta komið fram íferðir í lungum m. a. eins og
i sumum tilvikum við kollagenosur (lupus erythema-
tosus, dermatomyositis, periarteritis nodosa), hvít-
blæði og mb. Hodgkins, við histiocytosis X, og enn-
fremur við vissar millivefjabólgur, sem eru í eðli sínu
aframhaldandi og enda í brismyndun: það er hið s.k.
Hamman-Rich syndrom eða dreifð millivefja lungna-
brismyndun með fínum hnútum og ífarandi rákum
á fyrri stigum veikinnar og síðar brisi í alveoluveggj-
unum og eyðileggingu á æðum. Einnig má nefna
desquamatífan interstitiel pneumonitis (sjá mynd 8),
en báða þessa sjúkdóma getur verið erfitt að greina
röntgenologiskt og endanleg niðurstaða fæst aðeins
með sýnitöku. Að lokum ætla ég svo aðeins að drepa
á lymphangitis carcinomatosa (sjá mynd 10), en þá
er um að ræða menivarpa útsæði eftir lymfubraut-
unum í lungum, er kemur fram sem fínar rákir eða
línur með hnútum á og geisla frá hilus út í lungun;
þær víxlast gjarnan og skerast, myndin er netkennd.
Stundum er við fyrstu sýn eins og lungnateikningin
Mynd 10. Lymphangitis carcinomatosa. Útsœði eftir ca.
mammae op. Lítils háttar pleuritis.
sé aðeins aukin, en hnútana má greina í lymfubraut-
unum. Venjulega berst útsæðið frá frumæxli í hris-
kirtli eða meltingarvegum, sjaldan frá brjósti eða
berkjucarcinoma. Tekur oftast bæði lungun, sjaldan
annað. Stærri hnútar geta myndast, ef æxlisfrum-
urnar ná að vaxa í gegnum lymfubrautirnar og líkist
þá myndin blóðæðadreifðum meinvörpum (carcin-
osis, carcinonomatosis miliaris), þrátt fyrir hinn
lymfogena uppruna sinn; það hjálpar þá oft ef við
sjáum rákir milli hnútanna að greina þar á milli.
Annars getur verið mjög erfitt að greina á milli úr-
æða og blóðæða meinvarpa og einnig milier berkla.
Sagan eða sjúkdómsmyndin kemur þá að haldi og
líkur ráða. Æxlismeinvörp í lungum koma langoftast
blóðleiðina.
Lungnaödem
Þegar hindrun verður á blóðrennslinu frá lungun-
um túlna æðarnar út og við tölum um stasa eða kon-
gestion, en hún leiðir almennt til þess að intra- og
extravasculeru vökvaskiptin í lungunum truflast og
meiri vökvi (transudat) streymir stöðugt úr blóðinu
í gegnum háræðaveggina út í millibilin (interstit-
ium ), en þaðan getur vökvinn borist jafnóðum burt
með lymfuæðunum; millivefirnir hólgna upp, verða
„vatnssósa“, og við tölum um millivefjaödem eða
læknaneminn
45