Læknaneminn - 01.09.1981, Page 43

Læknaneminn - 01.09.1981, Page 43
þéttan og jafnan skugga, en ýmis önnur atriði koma þá okkur að liði, þannig teygir skugginn við vökva- samsafn sig gjarnan upp með síðunni og fylgir ekki hinni anatomisku útbreiðslu eða greiningu berkj- anna, eins og konsolidasjónin gerir og með mynda- tökum með láréttri geislastefnu má sýna fram á frí- an vökva. Þétt ífarandi æxli, einkum ef þau Hggja utarlega, getur verið nær alveg ógerlegt að þekkja frá venju- legri konsolidasjón. Ef við sjáum anga teygja sig út frá jöðrunum getur það hjálpað okkur, bendir til granuloms. Til sneiðmyndatöku getur þurtf að grípa eða stungusýna og eitt ber jafnan að hafa í huga og það er tíinaþátturinn, gangur og framvinda sjúk- dómsins og eldri myndir, séu þær til, skyldi alltaf fá og gera samanburð við þær. Orsakir þær sem geta legið til grundvallar konsoiidasjón geta verið margvíslegar: bólgur, blæðing, æxli. Við bólgur er konsolidasjónin sjaldnast alveg hrein, nema helst við pneumokokka-lungnabólgur, íferð í millivefnum fylgir í einhverjum mæli með bólguvökvanum í alveoli, sem er höfuðatriðið, þ. e. a. s. við allar bráðar lungnabólgur, sem hafa fyrst og fremst aðsetur í lungunum, er konsolidasjónin hið ríkjandi einkenni, en þegar lungnabólga er aðeins liður í almennum bráðum sjúkdómi, eins og flestar veiru-sýkingar eru, þá eru ífarandi breytingar í lung- unum ríkjandi. Konsolidasjón er hin ríkjandi mynd við taksótt íog lobuler eða segmental lungnabólgu), berkla, lungnaígerð og graftrar blettalungnabólgu og ef sýk- ing fylgir stíflu í berkjum. Þétting vegna blæðingar í lungum, eða hemorrhagisk konsolidasjón, getur stafað af áverka á brjóst, eitruðum lofttegundum, blæðisjúkdómum (aplastisk anemi, hæmosiderosis, Goodpasture’s syndrom o. fl.) og sést líka á byrjun- arstigum taksóttar við flutning á rauðu blóðkornun- um yfir í alveoli og við influenzulungnabólgu. Æxli geta valdið konsolidasjón í lungum í ýmissi mynd jafnvel á heilum lobus, svo að það líkist tak- sótt, t. d. „alveolar cell carcinoma“ og meinvörp geta líka valdið stærri þéttingum, t. d. frá brisi, þótt mein- in séu hins vegar oftar mörg, minni og áþekkari seg- mental blettalungnabólgu. Hefðbundna dæmið um konsoldiasjón er taksótt, þar sem bólguvökvi hellist skyndilega út í alveoli og Mynd 4. Konsolidasion í lobus med. í afturbata, holur sýn- ast í hinu þéttaSa svæSi. sýkingin breiðist frá einni alveolunni til annarrar og milli berkjugreina en alveoluveggirnir haldast heilir og að lokum er stór eða lilill hluti af lunganu sjúk- ur: Segment, eitt eða fleiri, heill lobus, heilt lunga. Þegar um heilan lobus er að ræða svarar skugg- inn eða þéttingin til hinnar anatomisku legu og stærðar hans og glufur mynda glögg skil, koma fram sem bein rönd og engin tilfærsla er á hjarta eða barka, þindin hefur óbreytta legu, en hreyfingar hennar eru takmarkaðar. Þegar konsolidasj ónin gengur til baka þynnist og grisjast skugginn, sumir hlutar ná sér fyrr en aðrir og loftfyllast meðan aðrir eru ennþá þéttir, skugginn getur þá verið allmisþétt- ur og jafnvel holur sýnast koma fram (sjá mynd 4). Það er miklu algengara að hluti af lobus þéttist held- ur en allur lobusinn og mörkin gagnvart hinum hluta hans, þar sem lungnavefurinn er áfram loft- fylltur eru þá óskýr, sérstaklega eru efri mörk skugg- ans oft óskýr. Við konsolidasjón í hæ. efri lobus (sjá mynd 5) fylgja neðri mörk skuggans láréttu glufunni. Á framanmyndinni koma þau fram sem bein rönd eða lina frá hilus út að 6. rifi í síðu og allt svæðið þar fyrir ofan er skyggt, þ. e. a. s. ef allur lobusinn er sýktur, en það er ekki algengt; á hliðar- myndinni eru afturmörkin skörp, fylgja stóru gluf- unni að aftan og ofan, fram og niður á við í áttina að neðri enda barkans, en beygja þar síðan nokkuð læknaneminn 41

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.