Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1981, Page 45

Læknaneminn - 01.09.1981, Page 45
°g hann teygir sig ofan að þind rétt aftan við bringu- beinið. Ekki er óalgengt að þétting í apico-posterior segmenti vinstri efri lobus og í superior segmenti lingula fari saman og orsakar það þríhliða skugga með toppi inn við hilus og grunnhlið út í síðu ofan- til á framanmynd að sjá og á hliðarmynd liggur hann framan við efri hluta stóru glufunnar Og er þar oft vel þáttur. Um konsolidasjón í hinum einstöku segmentum í ejri lobi ætla ég ekki að fjalla sérstaklega, hin ana- tomiska útbreiðsla og lega segir til sín, en þess má geta að við þéttingu í anterior segmentinu afmarkast neðri rönd skuggans hæ. megin af láréttu glufunnú en liggur ofan við hana, þegar um þéttingu á pos- terior segmentinu er að ræða; þétting í apico-pos- terior segmentinu vi. megin gefur yfirleitt heldur daufan skugga, en er ájaekkur í anterior segmentinu vi. og hæ. megin. Konsolidasjón í neðri lobi kemur mjög líkt fram báðum megin og á framanmyndum séð liggur skugg- tnn yfir neðra lungnafeltið allt frá framenda 2. rifs ofan að jrind, en efri mörkin eru óglögg, oft aðeins orfín hula þar, en jréttist þegar neðar dregur (sjá tnynd 6). A hliðarmyndinni liggur skugginn aftan stóru glufunnar, sem myndar frambrún hans sem nokkuð bein og skörp lína. Þindarmörkin eru meira eða minna útmáð, en hjartaröndin er alltaf skýr (sjá mynd 6). Oft er aðeins hluti af lobus sýktur og breytir það myndinni nokkuð (sjá mynd 7), en um einstök segment er þetta helst að segja: Þétting í apicala segmentinu gefur þunna breiða hulu yfir mitt lungað frá hilus jafnvel alla leið út í síðu, en mörk- in eru óljós; á hliðarmynd er skugginn þó frekar bogadreginn, liggur upp af og aftan lungnarótanna og er flatari inn við glufumörkin, er mynda fram- brún hans og jsaðan teygir hann sig upp og aftur- avið og hverfur gjarnan saman við skuggann frá herðablaði, hrygg og axlarvöðvum. Þétting í basölu segmentunum er miklu algengari og oft er jiar um þétlingu í tveim samliggjandi segmentum að ræða; sér í lagi algengt í börnum, einkum við aðöndunar- bólgu. Við þéttingu í antero-basala segmentinu ligg- ur skugginn medialt í neðra lungnafeltinu á framan- mynd að sjá og á hliðarmynd aftan við neðri enda stóru glufunnar; hún er miklu algengari hæ. megin, en þétting í postero-basölu segmentunum (sjá mynd Mynd 7. Konsolidasion í lobus inf. dext. (aðall. posterobas- a!a segmend). 7) er áh'ka algeng beggja vegna (einkum í börnum) og gefur þríhliða skugga meðfram hjarta og jsind með toppinn út í sinus á framanmynd og fyllir hann út á hliðarmynd að aftan; þindarmörkin hverfa þar og medialt á frontalmyndinni. Þétting í latero-basala segmentinu hylur og fyllir út sinusinn á framan- mynd, máir út þindarmörkin og teygir sig upp og inn á við í áttina til hjartans og á hliðarmyndinni mynd- ar hún þríhliða skugga nálægt miðju upp af þind- inni sem ekki nær fram að stóru glufunni. Infiltrasjón Með Jjví er átt við breytingar í millivefnum í lík- um skilningi og í meinafræðinni, en joó notað í held- ur lausara samhengi og ýmist talað um infiltrasjón eða íferð, íferðarbreytingar eða íferðir. Vökvi, bólguvökvi, æxlisfrumur, framandi efni, rykkorn eða annað sest i vefina og vefsbilin umhverfis berkjur og blóðæðar, í interlober septin og alveoluveggina, en alveolur og berkjur haldast loftfylltar og skera sig frá hinum gráhvítu skuggum, sem íferðin veldur, sem gagnsæjar dökkar rákir. Alveolerar breytingar í ein- hverjum mæli, jr. e. a. s. þétting, fylgir þó með í flestum tilvikum, en millivefsbreytingar eru joó höf- uðatriðið og yfirgnæfa. Heildarmyndin getur verið með ýmsu móti eftir útbreiðslu og magni breyting- anna, þ. e. a. s. hvernig jjykknun millivefjarins er læknaneminn 43

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.