Læknaneminn - 01.09.1981, Side 61

Læknaneminn - 01.09.1981, Side 61
Mynd 26. V eggstætt œxli útgengiS jrá taugaslíSri (hæ. apex). eru veikindin erfið. Agenesis á báðum lungum þekk- ist, en þau börn deyja strax. Hypoplasi á lungum kemur oftast samfara öðrum göllum og er erfitt að greina; berkjugreiningin er ófullkomin í hluta af lunganu, segmenti eða lobus og hætt er við endur- teknum bronkítum, blettalungnabólgum og berkju- víkkunum síðar í lífinu. Æðaanomalíur eru jafn- framt oft til staðar, m. a. hið svokallaða scimitar syndrom (scimitar merkir tyrkneskt bjúgsverð), en þá er um anomalös venös rennsli að ræða, þar sem lungnavenurnar h. megin opnast í vinstri v. cava- inferior í hæð við þindina og boglaga æðaforma- sjónir sjást með hægri hjartaröndinni, dextrocardia og hypoplastisk hæ. art. pulm. og fleiri arteriugallar sjást. Angiografiur gefa okkur hina endanlegu dia- gnosu. Afbrigðileg lobatala á hvorn veginn sem er gefur sjaldnast nein klinisk einkenni og hefur nær eingöngu greiningarlaga þýðingu. Algengast er að um aukalob sé að ræða, t. d. lobus venæ azygos, lobus akksessorius inferior (lobus cardiacus) og lobus akksessorius superior (lobus posterior), og hefur áð- ur verið minnst á þá. Láréttu glufuna getur vantað hærga megin, við höfum þá tvo lobi þar, og eins get- um við haft meira eða minna fullkomna lárétta glufu vinstra megin m. þ. a. 1. miðlobus í stað lingula. Aukalungu eða s.k. „sequestreruð“ lungu eru tvenns konar, intra- eða extralobulær eftir því hvort hið vanskapaða lunga liggur innan eða utan hins norm- ala lunga, og er það fyrra algengara. Extralobulært sequestrerað lunga hefur sér pleurapoka og getur legið ofan eða neðan þindar í brjóst- eða kviðar- holi. Mismyndanir eru á misháu stigi, holumynd- anir oft miklar og æðarnar koma vanalega frá aorta, thoracalaorta, sjaldnar abdominal aorta, í stað þess að koma frá pulmonalis; infeksjón í þeim er tíð, og endurteknar lungnabólgur síðar í lífinu og ígerðar- myndanir. Aukalungun eru miklu algengari vinstra megin og gefa þéttan skugga neðst og aftan til, oft með holum og vökvaborðum. Bronkografi og angio- grafi gefa fullnaðar greiningu. Hlutar af lungunum geta verið mismyndaðir með ýmsu rnóti og eru þar efst á blaði berkjucystur, hamartoma og kongenit cystisk adenomatoid malformasjón, þegar loft- og vökvafylltar smá-cystur sjást í hluta af lunga eða um allt lungað. Trúlega eru þær orsökin til margra kon- genit cystiskra sjúkdóma í lungum (cystulungu, eig- inlega hamartomatös malformasjónir). Þórður Þorvarðarson, deildarstjóri eðlisfrœði- og tæknideildar Landspítalans, fór yfir fyrri hluta þess- arar greinar og Kolbeinn Kristófersson prófessor, Landspítalanum, fór yfir síðari lilutann. Kann ég þeim báðum bestu þakkir fyrir. - H. L. HEIMILDIR: 1 Claessen, G.: Röntgendiagnostik, 1946. 2 Diinner, L.: Differentialdiagnostik der Lungenkrank- heiten, 1958. 3 Ebel, Kl. D. & WilJdch, E.: Die Röntgenuntersuchung im Kindesalter, 1979. 4 Felson, B.: Chest Roentgenology, fundamentals of 1964. 5 Hinshaw, H. C.: Diseases of the Chest, 1969. 6 Janker, R.: Riintgenaufnametecknik, 1976. 7 Meschan, 1.: Synopsis of Roentgen Signs, 1963. 8 The Radiologic Clinics of North America: APR/73, Vol. XI No. 7. DEC/78, Vol. XVI No. 3. 9 Le Roux, B. T. & Dodds, T. C.: A Second Post folio of Chest Radiographs, 1968. 10 Sante, L. R.: Manual of Roentgenological Technique, 1956. 11 Saupe, E.: Die Röntgenbildanalyse, 1956. 12 Scheller, S.: Röntgendiagnostik, 1974. 13 Schoen, H.: Medizinische Röntgentechnik, 1956. 14 Simon, G.: Principles of Chest X-Ray Diagnosis, 1962. 15 Teplic & Haskon: Roentgenologic Diagnosis, Vol. 7, 1971. 16 Teschendorf, W.: Lehrbuch der Röntgenologischen Dif- ferentialdiagnostik, Bd. I, 1958. LÆICNANEMINN 59

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.