Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1981, Page 62

Læknaneminn - 01.09.1981, Page 62
Skýrsia stjórnar Félags lœknanema 1980-1981 Fundir Stjórnarfundir Stjórnarfundir hafa verið haldnir vikulega í allan vetur. Alls voru fundirnir 37, og eru þá ótaldir ýms- ir vinnufundir, þar sem hluti stjórnar mætti. Fundað var með fulltrúum á deildarfundum fyrir hvern deildarfund til að kynna efni fundanna og taka sameiginlega afstöðu áður en á fundinn kæmi. Þá voru nokkrir fundir haldnir með námsnefnda- fólki til að kanna hvernig starf námsnefnda gengi og fá samstarf á milli námsnefnda einstakra ára. I apríl 1980 hélt stjórnin fund með 1. árs nemum til þess að kynna þeim stöðu sína, en þá var hvað mest rætt um hinn mikla fjölda stúdenta á 1. ári (sem nú situr á 2. ári). 1. nóvember 1980 var haldinn fundur með kenn- urum í lyfjafræði og rætt um hugsanlega samræm- ingu á ýmsum greinum sem nú eru tví- eða jafnvel þríkenndar. Hugmyndir kennara um flutning eitur- efnafræði upp á 5. ár fengu ekki hljómgrunn meðal stúdenta. Annars þótti fundurinn vel heppnaður. Hildur. Félagsfundir Á starfsárinu voru haldnir sex félagsfundir, þar af fjórir almennir félagsfundir, kynningarfundur 1. árs nema og fundur um sumarvinnu í Svíþjóð. Kynningarfundur 1. árs nema var haldinn 17. okt. 1980. Mæting var mjög góð og gekk bara nokkuð vel að tæla nýliðana í embætti. Flestir stjórnarlima mættu á fundinn, auk manna úr hinum ýmsu ráðum og nefndum félagsins. Þessir aðilar kynntu starfsemi félagsins og þótti vel til takast, enda skemmlilegra fyrir nýliðana að sjá mörg andlit heldur en einn að- ila þylja upp alla romsuna. 27. okt. 1980 var haldinn almennur félagsfundur. Þar kynnti Bárður nýjungar í kennslumálum, eink- 60 um þó með tilliti til Thromsö-skólans. Þá var staðan í lánamálunum kynnt, fyrst af Þorgeiri Pálssyni, nefndarmanni i endurskoðunarnefnd um LIN og síð- an af Auðunni Svavari Sigurðssyni læknanema og jafnframt fulltrúa í ofanræddri nefnd. Kosin var stúdentaskiptastjóri og 4. árs maður í ritnefnd, í stað Þórðar sem forframaðaist í ritstjóra. Þá voru sam- þykkt ráðningagjöld, 2000 fyrir læknisstöður og 1200 fyrir aðrar stöður. Að lokum kynnti Atli G. Eyjólfsson læknanemi og háskólafulltrúi fyrirhugaða ráðstefnu stúdenta og stundakennara. Allra síðast kynnti Vilhelmína formaður drög að samningi milli kennslusjúkrahúsanna og HI sem hún ásamt Rúrí og Hildi vann upp. 8. des. 1980 var haldinn fundur um sumarvinnu í Svíþjóð. Bárður kynnti málin. 17. des. 1980 var haldinn almennur félagsfundur um Numerus Clausus og hækkun lágmarkseinkunna sem í vændum reu. Þorvaldur Veigar og Högni Osk- arsson mættu á fundinn og svöruðu fyrirspurnum. Heldur þótti mæting stúdenta léleg. 2. jan. 1981 var almennur félagsfundur um breyt- ingartillögur við reglugerð FL um ráðningar, born- ar fram af Hildi Harðardóttur ritara og Bjarna Val- týssyni ráðningastjóra. Tillögurnar voru felldar með 34 atkv. gegn 30. I framhaldi af fundinum var ráðningafundur. 23. febr. 1981 var haldinn almennur félagsfundur um breytingar á náminu. Kynnti Ásgeir Haraldsson, formaður kennslunefndar, starf námsnefnda og hugs- anlegar breytingar á náminu í framhaldi af því. Ás- geir Bragason, aðili að starfshópi um námskannan- ir, kynnti niðurstöður starfshópsins. Þýddar hafa verið námskannanir frá IFMSA og er planið að leggja þær í hendur kennslunefndar, sem væntanlega mun fela námsnefndum að sjá um framkvæmdina. Vilhelmína kynnti að 4. árs prófin hafi verið felld niður, ef það skyldi hafa farið fram hjá einhverjum. LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.