Læknaneminn - 01.09.1981, Page 68

Læknaneminn - 01.09.1981, Page 68
fund með stúdentum af med,- og kir.-deildum allra spítalanna. 1 námsnefnd var greint frá niðurstöðum þessa fundar. Kom í ljós nokkurt misræmi milli kennsluspítala, t. d. með tilliti til fjölda klinikka, fjölda stúdenta per. sérfræðing o. s. frv. Forsvars- menn med. og kir. á öllum spítölum voru á sama hátt beðnir álits á kúrsinum. Ekkert hefur heyrst frá þeim enn. Aðal niðurstöður vinnu þessarar nefndar verður að telja sameiginlega tillögu 6. og 4. árs námsnefndanna. í þeim er lagt til að samfelldni verði á fyrirlestrum í med. og kir. á 4. og 6. ári, smáu kúrsum 6. árs Ijúki áður en kennsla í med. og kir. hefjist o. fl. Þungi starfa í þessari nefnd hvíldi á stúdentum. Már Kristjánsson. Námsnefnd 5. árs Nefndin hélt 3 fundi á liðnu starfsári. Nefndin skilaði sameiginlegri skýrslu, ásamt séráliti stúdenta og greinargerð prófessora þeirra greina, sem kennd- ar eru á árinu. Nefndin varð sammála um það, að fella niður forfyrirlestra að hausti og lengja hvern kúrs úr 7 vikum í 8. I stað þess myndi hver kúrs byrja á inngangsfyrirlestrum. Ekki var talin þörf á öðrum meiri háttar breytingum á þessu námsári. Rj 'órn Einarsson, Kristleifur Kristjánsson. ÁRSSKÝRSLA FULLTRÚARÁÐS Starfsár fulltrúaráðs hófst að þessu sinni ekki fyrr en í október 1980. Þá var haldið kynningarball í framhaldi af kynningarfundi 1. árs nema. Það var haldið í Hreyfilshúsinu og tókst ágætlega. Um mán- aðamótin nóvember-desember var farið í vísinda- leiðangur til TVkureyrar. í honum tóku þátt milli 20 og 30 manns. Gist var í „barnaskólanum“. Sjúkra- hús Akureyrar tók vel á móti læknanemum, sýndi gamla og nýja spítalann og gaf okkur fisk að borða. Síðar sama dag var kokteill hjá bæjarstjóra. Á kvöldin voru danshús Akureyrar stunduð. Jóladans- leikur var haldinn 19. desember í Átthagasal Hótel Sögu. Hann var fremur illa sóttur. Árshátíð Félags læknanema var haldin að Hótel Sögu 26. febrúar. Súlnasalurinn er betri en Þórskaffi að því leyti að enginn situr úti í horni. Þátttaka í borðhaldinu var frekar dræm. Heiðursgestur var Kolbeinn Kristó- fersson. llla gekk að útvega skemmtikrafta úr hópi læknanema og fór svo að annað árið var það eina sem kom með skemmtiatriði. Vonandi gengur betur að útvega skemmtiatriði frá öllum árum næst. F. h. fulltrúaráðs, Jólianna Lárusdóttir. SKÝRSLA ÍÞRÓTTANEFNDAR Iþróttanefnd hefur ekki farið ótroðnar slóðir á þessu námsári, heldur efnt lil hefðbundinna íþrótta- móta. Haldið var knatlspyrnumót utanhúss í hyrjun námsárs. Var þar hart barist og þegar yfir lauk stóð 2. árið uppi sem sigurvegari. 4. árið vermdi sitt gam- alkunna 2. sæti og 1. árið í 3. sæti. Var 2. árið heiðrað með verðlaunapeningum á árshátíð lækna- nema. Innanhúss-knattspyrnumót var haldið rétt fyrir jólafrí. 2. árið hélt áfram sigurgöngu sinni, en 4. árið ásamt 6. árinu urðu í 2.-3. sæti. Mátti 2. árið súpa úr tveimur sherryflöskum fyrir vikið. Þegar þetta er ritað stendur til að halda körfu- boltamót. Þar verður vonandi tvisýn barátta þó menn renni grun í að sigurvegarinn verði það ár, sem les nú meinafræði og lyfjafræði. Einnig stendur til að halda skákmót um miðjan mars, sem verður sveitar- keppni milli ára. Ofanritað verður sennilega afrakstur þessa náms- árs hvað íþróttasamkundur varðar. I íþróttanefnd voru:. Ársæll Kristjánsson, Guðmundur Arason, Halldór Kolbeinsson, Hjalti Kristjánsson, Þórarinn Harðarson. Guðmundur Arason. FRÁ TENGSLANEFND 1. ÁRS Tengslanefnd er kosin af 1. árs nemum haust hvert og eiga fjórir sæti í nefndinni. Hlutverk tengsla- nefndar er að efla tengsl 1. árs nema við eldri nema og 1. árs nema innbyrðis. Hvort nefndin hafi náð 66 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.