Læknaneminn - 01.09.1981, Síða 69

Læknaneminn - 01.09.1981, Síða 69
þessu takmarki skal látið liggja á milli hluta. ViS höfum séð um sölu félagsskírteina og munum standa fyrir fundi þar sem árið velur fulltrúa í framboö fyrir aðalfund FL. Gerður Tlioroddsen. SKÝRSLA FRÆÐSLUNEFNDAR Nefndina skipuðu Jón Steinar Jónsson formaður, Þórður Herbert Eiríksson og Kjartan Orvar. Nefndin hélt nokkra fundi, sem enginn lagði sig niður við að hafa tölu á. Voru flestir fundirnir haldnir yfir tebollum í Norræria húsinu. Verkefni fræðslunefndar á starfsárinu voru tví- þætt: 1. Standa fyrir frœðslufundum fyrir félaga FL. Haldnir voru 4 fundir, 3 á haustdögum og 1 á vor- önn. Stúdentar sýndu fundunum mikinn áhuga og reyndist meðalmæting vera 85-90 manns á fundi. Námstœkni í lœknadeild. 1. fræöslufundur 7. okt. ’80. Fimm læknanemar á 2., 3. og 4. ári, þeir Melvin Mclnnes, Oskar Einarsson, Helgi Oskarsson, Kjart- an Orvar og Vilmundur Guðnason, voru frummæl- endur og lýstu sínum skoðunum og sinni reynslu af notadrjúgum aðferðum í námstækni. Fundurinn var eingöngu auglýstur hjá 1. og 2. árs nemum. Fundar- sókn var góð, rúmlega 100 manns, sem fylltu hátíð- arsal Lögbergs. Carcinogenesis — Hvernig myndast krabhamein? 2. fræðslufundur 20. nóv. ’80. Valgarður Egilsson læknir fjallaði í víðu samhengi um þessa stóru spurn- ingu læknisfræði samtímans. A fundinn mættu tæp- lega 100 stúdentar úr öllum árgöngum. Meðferð kynferðislegra vandamála. 3. fræðslu- fundur 4. des. ’80. Högni Oskarsson geðlæknir og kennslustjóri læknadeildar var maöur kvöldsins og flutti líflegt erindi um ýmis vandamál sexologiunnar og lækningaaðferðir. Fundinn sóttu u. þ. b. 100 stúdentar og voru bornar fram margar spurningar og umræður urðu fjörugar. Spasmi í kransœðutn. 4. fræðslufundur 19. febr. 1981. Þórður Harðarson hjartasérfræðingur flutti fundarmönnum mjög fróðlegt og greinargott erindi. Var það gott innlegg í alla umræðu um tilurö angina pect. og infarkts. Á fundinn mættu 40-50 3., 4. og 6. árs nemar. II. Olafs þáttur landlœknis 1. HASS. - Á vordögum 1980 barst stjórn FL beiðni frá landlækni um að taka þátt í viöræðum við embættið, vegna hugmyndar landlæknis varðandi fræðslu til almennings um skaðsemi hass og skyldra efna. Stjórn FL fól fræöslunefnd að verða við þess- ari beiðni landlæknis fyrir sína hönd. Voru haldnir nokkrir fundir. Niðurstaða þeirra varð sú að ekki væru nægjanlega góðar ábendingar (indikasjónir) fyrir aðgerðum. Auk þess sem horfur (prognosa) eftir tilraunir til fræðslu um skaðsemi hass virtust geta brugðið til beggja vona (sbr. tilvitnun í fræðslu- herferð í sænskum skóla, sem sýndi margfalda aukn- ingu á hassreykingafitli eftir herferðina). 2. KYN. . . — En við vorum komnir inn á gafl hjá landlækni. Tíðni skráðra tilfella af lekanda á íslandi hefur farið hratt vaxandi undanfarin 5-6 ár. Er það öfugt við gang mála á Norðurlöndum hvar tíðnin hefur snarminnkað á sama tíma. Þar hafa verið í gangi hreyfingar eða herferðir til að vekja athygli fólks og fræða það um lekanda. Hafði landlæknir áhuga á að spyrna við fótum hér á landi í einhverri mynd. Á haustdögum upphófst önnur fundahrota og voru málin rædd fram og aftur. Virtist ekkert ætla að verða úr framkvæmdum. Lagðist svo málið í dvala. En í einu vetfangi leystist úr læðingi blaðamanna- fundur með félagslæknum, sýklafræðingum, kyn- sjúkdómafræðingum og Jæknanemum. Boðaði land- læknir upplýsinga- og fræösluhreyfingu meðal al- mennings og skólanna. Skipti engum togum að Fé- lag læknanema spratt feitletrað upp á forsíðu mál- gagns menntamálaráðherra. Hlutur læknanema í um- ræddri hreyfingu er sá aö fara út á meðal skólanema og upplýsa þá um kynsjúkdóma. Er nú í gangi vinnuhópur stúdenta, hinir s. k. lekandabanar, sem eru þessa dagana að undirbúa program til að nota í skólum. Hugmyndin er að í framtíðinni verði það árviss atburður að læknanem- ar fari í skóla landsins (,,vísiteri“) og fræði ung- dóm hvers tíma um kynsjúkdóma, eðli þeirra og skaðsemi svo og um hugsanlegar varnir gegn þeim. læknaneminn 67
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.