Úrval - 01.09.1963, Side 73
VM SKÓGARFERÐIR
85
um, fengust þá 4 hestburðir af
húsaviði fyrir lambsfóSur, en
nokkru meira af eldiviSi.
Jóhann vísaSi okkur til skóg-
arhöggsins innst í SelhöfSum,
kvaS okkur fá þar góSan viS og
mundi þaS vega á móti því hve
langt væri þangaS.
Austan viS túniS á SkriSufelli
er fremsta varSan á Sprengi-
sandsleiS, en sú leiS var vörSuS
mili byggSa eftir síSustu alda-
mót. LeiS okkar lá nú fyrsta
spölinn meS vörSunum, en er
viS komum aS Sandá, vikum viS
á skógargötu, er lá inn meS ánni
aS vestan, eins og fyrir okkur
hafSi veriS lagt.
AfréttargirSing Flóa- og
SkeiSamanna lá þá um miSja
SkriSufellshaga, yfir SelhöfSa
gegnt Hallslaut. í austurbrekku
höfSans, rétt innan girSingar-
innar, var athafnasvæSi okkar
þennan dag.
Eftir aS hestum hafSi veriS
sleppt á jörS var tekiS til starfa,
og hófst nú hiS mesta kapphlaup
viS tímann.
Steinþór felldi viSinn og bar
saman, en ég lagSi i og batt.
ÞaS reyndist eins og Jóhann
hafSi sagt, viS fengum vænan
viS, kannske ekki aS sama skapi
beinvaxinn.
Margs þarf aS gæta þegar lagt
er í bagga. NotuS eru venjuleg
reipi og þau lögS lilct og þegar
sætt er, en nokkru gleiðara. AS
vísu þótti ófært að nota annaS
en ólar eða kaðalreipi, vegna
þess hvað meðferðin var slæm.
Sé viðurinn sver og kræklóttur,
eru óþjálustu hrislurnar lagðar
fyrst, en smærri og beinni við
stungið inn á milli og lagður
ofan á. Ég kynntist naumast öðru
en að binda allan við i drögur,
og baggarnir þá hafðir 2-2% m.
á lengd. Dragnaviðarbaggi fer
þannig á hestinum, að aftari
endi hans dregst með jörð, en
liinn fremri rís upp yfir makk-
ann, og eiga baggarnir allt að því
að mætast þar. Hríslurnar eru
ævinlega mislangar, og verSur
því að leggja þær á misvizl og er
haft miklu meira lim i neðri
enda baggans. Til þess að réttur
halli komi á baggann á hestin-
um, er lagt þannig á reipið, að
silinn, sem bagginn hangir á, á
klakknum, sé nokkru framan
við miðju. Nokkur vandi er að
ákveða hversu mikið skal leggja
á hvert reipi. Talið er þó, að
hæfilegt sé, að er fullvaxinn með-
almaður leggst fram yfir köst-
inn, skuli hann ná til jarðar með
fætur og fingurgóma. Þessi regla
er þó ekki algild, þar sem bagg-
inn verður þyngri, ef viðurinn
er sver og ekki var lagt jafnt á
alla hesta.
Næst er að binda. Þá fyrst
dregið í hagldir og hert að.