Úrval - 01.09.1963, Qupperneq 131
HÁNDEL OG SKÖPUNARSAGA . .
143
verkinu á fætur öðru. Að lokum
tók sjón hans að hnigna, og hann
varð blindur, er hann vann að
„Jephtha".
Ár eftir ár var „Messías" flutt-
ur í Lundúnum. Handel lét á-
góðann alltaf renna til sjúkra-
húsa. Maðurinn, sem hafði sigr-
azt á sjúkdómi, líkt og fyrir
kraftaverk, óskaði þess heitt að
mega hjálpa sjúku fólki og mun-
aðarleysingjum, réttlausu og
ófrjálsu fólki í hlekkjum. Að
loknm átti það fyrir honum að
iiggja að kveðja lífið, meðan
stóð á flutningi þessa meistara-
verks, sem hafði megnað að
draga hann upp úr hyldýpi ör-
væntingarinnar.
Þann 6. apríl árið 1759 ók
þessi 74 ára gamli, örmagna
maður til hljómleikahallarinn-
ar og stóð þar á meðal hljóðfæra-
leikara og söngvara, sem hann
gat ekki lengur séð. En er bylgj-
ur tónanna bárust að eyrum
honum, breiddist birta yfir
þreytudrættina í svip hans
síðasta sinni. Við þessi orð
textans, „Lúðurinn skal gjalla,“
fóru krampakenndir drættir um
andlit hans, en liann beindi
sjónvana augum sínum upp á
við, líkt og hann stæði þegar
frammi fyrir Iiásæti miskunn-
arinnar. Síðan riðaði hann við
og féll næstum i gólfið.
Þegar vinir Iians bjuggu um
liann i rúmi hans, tautaði Iiann
lágt: „Ég vildi gjarnan deyja á
föstudaginn langa.“ Læknarnir
voru hissa á þessum orðum. Þeir
vissu að vísu, að föstudaginn
langa myndi bera upp á 13. apríl,
en þeir mundu ekki, að 13. april
hafði einmitt verið sá dagur, er
örlögin höfðu áður lostið hann
svipu sinni, og einnig dagurinn,
er „Messías“, hin veraldlega
upprisa hans, hafði verið frum-
flutt í Dublin.
Hinn ósigrandi vilji þessa
manns hafði vald yfir dauðan-
um sem lífinu. Þegar 13. apríl
rann upp, var öll orka hans
eydd. Hándel gat hvorki séð,
heyrt né skynjað lengur. Hinn
risavaxni líkami hans lá hreyf-
ingarlaus. En samt bárust tónar
fjarlægrar hljómlistar sálu hans,
hljómlistar, er aðrir gátu ekki
greint, hljómlistar, er var furðu-
legri og dýrlegri en nokkur, er
skapazt hafði í huga hans.
Og næsta dag, rétt áður en
páskaklukkurnar tóku að
hringja, hnigu hinar veraldlegu
leifar George Fredericks Hándels.
í valinn.
Líkamir vorir eru garðar vorir, og vilji vor garðyrkjumaðurinn.