Úrval - 01.11.1970, Síða 45
MONA LÍSA NÚTÍMANS
43
til eyrna Garbo kom hún fljótlega
fram á sjónarsviðið og sagði: —
Sumar manneskjur óska sér gifting-
ar framar öllu öðru — aðrar ekki.
Mig hefur aldrei fýst að fara upp
að altarinu.
Faðir Grétu Garbo var sjúkling-
ur og fjölskyldan bláfátæk. Það má
því kannski útskýra það að Gréta
• virtist helzt laðast að sér eldri
mönnum, á þann hátt að hún væri
stöðugt að leita þess öryggis sem
faðir hennar gat aldrei veitt henni.
Stiller var sá maður sem skapaði
stjörnuna Grétu Garbo, og senni-
lega sá eini sem hefði getað gert
hana hamingjusama. Aðdáendur
hennar eru óteljandi en engum hef-
ur tekizt að bræða hjarta hennar.
Garbo hefur verið líkt við Monu
Lísu nútímans — hún er eins og
gáta sem engum hefur tekizt að
ráða. Konur langar enn til að líkj-
ast henni og menn til að eignast
hana, en enginn þeirra hefur feng-
ið þá ósk sína uppfyllta.
☆
Viðskiptavinur einn var að borga reikninginn við gjaldkeraborðið á
bilaþvottastöðinni okkar, þegar billinn hans rann a£ stað: „Vertu kyrr!“
hrópaði hann. Svo hljóp hann á eftir honum. Þegar honum hafði loks
tekizt að stöðva bílinn, sneri hann aftur hálfkindarlegur á svipinn. „Sko,
hann er alveg splunkunýr," sagði hann til skýringar á þessum tiltektum
bílsins, „og það er ekki búið að temja hann enn þá."
Á ári hverju bætast við alls kyns nýjungar í nýju bílunum. Nýi billinn
minn hefur til dæmis þannig útbúnað, að opni maður hurðina án þess
að taka startlykilinn fyrst úr, þá kveður við hávært, óþægilegt hljóð.
Þetta óhljóð 'hættir svo ekki, fyrr en lykíllinn er tekinn úr eða hurðinni
lokað. Um daginn var ein vinkona mín farþegi í bílnum. Ég skrapp í
flýti út úr bílnum og ætlaði inn í verzlun. Ég skildi startlykilinn eftir,
þvi að ég ætlaði að verða fljót. Þegar óhljóðið kvað við, spurði vinkona
mín alveg í öngum sínum: „Og grenjar þessi hlutur svo allan tímann,
þangað til Þú kemur aftur?“
Betty Jane Scammell.
Það er 'hægt að ferðast á þrjá végu með flugvéium nú á dögum, á
fyrsta farrými, á túristafarrými og sem fangi...
Það. sem er að efnahagsástandinu núna, er sú staðreynd, að þegar
maður er ríkur, þá eru auðæfin bara fólgin í einhverjum skjölum og
plöggum, verðbréfum og hlutabréfum. En þegar maður er blankur, þá
er alltaf um reiðufé að ræða.
Sam Marconi.