Úrval - 01.11.1970, Qupperneq 51

Úrval - 01.11.1970, Qupperneq 51
ÁSNÍNN SEM KOM ÖLLUM í GOTT SKAP 49 þau ferlegu óhljóð, sem að eyrum okkar bárust, að það mætti helzt líkja saman hvellhljóði pínulítils flugelds við þrumur langdrægrar fallbyssu. Hljóð þetta hófst með nístandi, blístrandi skræk, sem stóð í 15 sekúndur, og lækkaði síð- an og breyttist í runu af djúpum lungnastunum, þrungnum grófum og rámum titringshljóðum, sem helzt væri hægt að lýsa með hljóð- rituninni „uh-AWNGHK“. Þetta var endurtekið fjórum sinnum. Hljóð þessi tilkynntu okk- ur skýrt og skorinort líkt og lúð- urhljómur herbúðanna: „Ég er vaknaður. Allir ættu að vera vakn- aðir. Komið hingað strax og gefið mér að éta.“ Skal gert, herra! Þeg- ar „awnghk“ kvað við í þriðja sinn, var ég að fljúga niður stigann. Ég sveiflaði bílskúrshurðinni upp á gátt. Og þá var mér samstundis heilsað með blautri, slepjulegri snoppu beint á munninn, og koss- inum fylgdi frýsandi blástur. Asn- inn var alls ekki á básnum sínum! Ég kveikti á eldspýtu. Þegar við byggðum básinn, höfðum við fyrst lagt plankagólf, en undir það höfð- um við sett þrjá þunga planka. í einu horni bássins var hilla, og höfðum við breytt henni í jötu. Og við hillu þessa höfðum við neglt risavaxinni álþotu, sem Alison not- aði á veturna til þess að renna sér niður snævi þaktar brekkur. Þetta var Omolenefóðurkassinn hans. Svo hafði ég sett rimlahlið við enda bássins, og sá ég nú, að það hafði verið heimskulegt af mér að hafa það ekki sterkara. Rimlahlið úr sambærilega þykk- um plönkum höfðu alltaf nægt fyr- ir hestana og kýrnar, sem ég hafði kynnzt, er ég var lítill drengur og átti heima í norðurhluta New Yorkfylkis. Asninn hafði bara bitið utan um plankana og fjarlægt þá með því að ganga út á hlið, þang- að til þeir losnuðu úr hliðargróp- inni, sem þeir lágu í. Mér fannst þetta stórsnjallt af honum. En ég átti eftir að komast að því, að þetta voru hreinustu smámunir samanborið við ýmislegt, sem hann átti eftir að afreka. Upp frá þessu breyttist líf okkar í endalausan innilokunarleik. Næsta kvöld batt ég plankana í báshlið- inu rammlega fasta. Þá nagaði hann bara snærin í sundur og labb- aði út á hlið eins og áður, þangað til plankarnir losnuðu. Ég boraði göt á plankana og rak þykka tré- nagla í götin. Hann braut þá tré- naglana og togaði bútana út með tönnunum. Það var ekki svo að skilja, að hann nyti meira frelsis, eftir að honum hafði tekizt að komast af básnum. Bílskúrinn okkar var svo sem ekki nein höll. Honum var bara meinilla við að vera lokaður inni. Ég held, að hann hafi líka viljað sýna mér fram á, að ég væri ekki allt of vel gefinn. Svo þegar hann hafði losnað af básnum, stóð hann þarna bara og horfði á mig hreinsa draslið. Hann lagði þessi risavöxnu eyru aftur með hálsin- um, lukti augunum aftur til hálfs, og á grárri snoppunni hvíldi ánægjubros, sem ætlaði að gera mann vitlausan. Að síðustu fann ég ráð til þess
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.