Úrval - 01.11.1970, Blaðsíða 86
84
ÚRVAL
Margt
er skritid
Yfirmatsveinn Lúðvíks 14. Frakka-
konungs svipti sig lífi af þeirri einu
ástæðu, að honum hafði láðst að út-
vega nógu mikið af fiski í veizlu,
sem haldin skyldi í Versölum fyrir
300 gesti. Vatel taldi sig ekki geta
lifað eftir svona voðalegt hneyksli,
fór upp í herbergið sitt og rak sverð
í gegnum sig. En rétt í sömu svif-
um kom stór sending af fiski í eld-
húsið. Þetta athæfi Vatels þótti sýna
svo mikla samvizkusemi, að Vatel
varð átrúnaðargoð matsveina og
hefur hann síðan verið kallaður
Vatel hinn mikli.
—0—
Um sama leyti gerðist heimssögu-
legur atburður á sviði læknavís-
inda við hirð Lúðvíks 14. Sjálfur var
konungurinn skorinn upp við gyll-
inæð og var það í fyrsta skipti, sem
slík aðgerð var framkvæmd í heim-
inum. Hann var kominn aftur á fæt-
ur eftir mánaðartíma og varð það
fyrr en læknarnir höfðu þorað að
vona. Hann borgaði lækninguna vel.
Skurðlæknarnir og aðstoðarmenn
þeirra fengu óð.ul og hallir að gjöf.
Eftir þetta varð það tízka að láta
skera sig upp við gyllinæð, og ýmsir
hirðmenn létu gera það, þótt þeir
hefðu aldrei fundið til þessa kvilla.
Grimmasti fiskur veialdar er
brasilíski fiskurinn piranha. Hann
er mjög lítill fiskur, en þegar kýrn-
ar koma til þess að fá sér að drekka,
býtur hann múlana af þeim með
sínum egghvössu tönnum. Ef reka
skal kýr yfir vatn í Brasilíu, verður
oft fyrst að fórna einni kú. Hana
rekur með straumnum og hinir
grimmu piranhar ráðast þegar í stað
á hana. Á meðan er hægt að reka
hinar kýrnar yfir vatnið. Nú er í
ráði að útrýma piranha-fiskinum.
Það verður gert með því að strá
eitruðum plönturótum í vötnin.
Ræturnar eru óskaðlegar mönnum
en ránsfiskurinn er sólginn í þær.
—0—
Þung refsing getur legið við let-
inni. Hún hefnir sín að jafnaði sjálf
á þann hátt, að sá lati fe'r á mis við
þau lífsins gæði, sem hann að öðrum
kosti hefði getað aflað sér. En aðra
refsingu sleppur sá lati við, það er
að segja hér á Vesturlöndum. En í
mörgum kommúnistaríkjum varðar
leti við lög. Þar er ekki óalgengt, að
menn sem ekki nenna að vinna, séu
ákærðir og dregnir fyrir lög og dóm.
Fyrir ekki alllöngu var maður
nokkur dæmdur í 12 mánaða fang-
elsi í Prag — fyrir leti.