Úrval - 01.11.1970, Blaðsíða 89
BÖRN í NAUÐUM STÖDD
87
BÖRN
í
NAUÐUM
STÖDD
EFTIR
HOWARD
JAMES
ík
M'
>v
/*\
>V>V>t/>V>V
/*\ /I\ /K>*\ >!\*
\y
H
ér í landi eru að jafnaði
á annað hundrað þús-
und börn og unglingar
innilokuð í ýmiss kon-
ar betrunar- og fang-
elsisstofnunum sam-
\ /i\ /I\ /I\ /i\
kvæmt úrskurði dómstóla eða ann-
arra opinberra yfirvalda. Hefði hinn
óbreytti bandaríski borgari tæki-
færi til þess að hitta börn þessi og
heimsækja ýmsar þær stofnanir,
sem þau eru lokuð inni í, yrði hann
stórhneykslaður. Það yrði honum al-
gert áfall. Betrunarskólar og gæzlu-
varðhaldsstöðvar, upptöku- og
geymsluheimili, opinber fylkisheim-
ili og ýmsar stofnanir, sem bera
önnur heiti, eru allt of oft heldur
skuggalegir staðir, þar sem börn
hafa verið lamin miskunnarlaust,
þar sem unglingar hafa verið neydd-
ir til þess að taka þátt í kynvillu-
mökum, þar sem heimilislaus börn
og unglingar eru samvistum við
miskunnarlausa og grimma glæpa-
menn, þar sem innilokun í einangr-
unarklefum er daglegt brauð. Marg-
ir sérfræðingar líkja með réttu með-
ferð okkar á afbrotabörnum og ung-
lingum við meðferð strokuþræla á
18. og 19. öld.
Ég hef komizt að því eftir athug-
anir og rannsóknir í 18 mánuði
samfleytt, að þúsundir barna, allt
niður í 7—8 ára gömul, hafa verið
lokuð inni í ýmiss konar betrunar-
stofnunum fyrir minni háttar yfir-
sjónir, sem mundu ekki koma full-
orðnu fólki í betrunarhús, jafnvel
ekki í eina klukkustund. Og það,
sem verra er, þá eru mörg börn jafn-
vel lokuð inni í betrunarstofnunum,