Úrval - 01.11.1970, Page 114
112
ÚRVAL
málmefnin og steinefnin í jarðveg-
inum réttinum alveg sérstakt bragð,
sem er engu líkt.
Azoreyjar voru ekki numdar fyrr
en á 15. ö'ld, þótt sjómenn hefðu
þegar kynnzt þeim einni öld áður.
Landkönnuðir voru sendir þangað
til þess að helga þær Portúgal, en
eyjarnar tilheyra enn því landi. Þær
hlutu heitið ,,acores“ vegna helztu
þáverandi íbúa sinni, hauka af sér-
stakri tegund. Á næstu þrem öldum
voru sjóræningjar frá Norður-Afríku
(Márar), Frakklandi og Englandi
stöðugt á sveimi við. eyjarnar. Þeir
sátu um skipin, sem sneru aftur til
Gamla heimsins með auðæfi frá
Nýja heiminum vestan hafs. Land-
námið dafnaði samt á Azoreyjum
þrátt fyrir þetta og þrátt fyrir rán
Spánverja, farsóttir, jarðskjálfta og
eldgos (nú eru íbúar þeirra 336.000).
Eyjaskeggjum tókst að reisa fagrar
hallir, íbúðarhús, klaustur og kirkj-
ur. Hjá þeim þróaðist alveg sérstök
byggingarlist. Þeir reistu falleg hús
úr hvítkölkuðum steini, og voru
húsin skreytt svörtu hraungrjóti.
Einu leifarnar af hinni róstursömu
fortíð þeirra má greina í húsaskip-
aninni á gömlu sveitasetrunum. Þar
standa öll húsin í þyrpingu, íbúum
þeirra til verndar. En húsin í bæj-
unum einkennast af mjóum varð-
mannssvölum, sem voru aðsetur
varðmanna, er voru á verði gegn
innr ásarseggj um.
Enn eru menn settir á vörð dag-
lega hvarvetna um eyjarnar. En
þeir eru ekki að skima eftir sjó-
ræningium, heldur hvölum. Um hríð
komu tveir þriðju hlutar heimsafl-
ans af búrhval frá hafsvæðinu um-
hverfis eyjarnar.
Þegar strókarnir sjást spýtast upp
í loftið, halda sjómennirnir á hafið
í miklum flýti. Þeir eru fluttir út
á djúpmiðin í kraftmiklum vélbát-
um. En þar fara þeir yfir í smábáta,
er taka sjö menn og líkjast helzt
baunabelg. Azorbúar halda enn
dauðahaldi í hvalveiðiaðferðir í
„Moby Dick-stíl“, þ.e. þeir nota
handskutul, sem festur er við hálfr-
ar mílu langan kaðal.
Ártugum saman var eyjan Faial
þýðingarmest allra Azoreyja. Segl-
skip vörpuðu akkerum í hinni góðu
höfn borgarinnar en þar hafa legið
allt að 400 skipum í einu. í síðari
Suörœn ávaxtatré í einum af mörgum
skemmtigöröum á Azoreyjum.