Úrval - 01.11.1970, Blaðsíða 118
116
ÚRVAL
ákvað fyrirtækið að fjárfesta yfir
fjórar milljónir sterlingspunda. í
þeirri áætlun skyldi allt húsnæðið
í Hillstræti vera notað fyrir áfyll-
ingu og pökkun. Þessi aðskilnaður
gerði nauðsynlegt að. byggja nýtt
hús fyrir framleiðslu og blöndun.
í þeim tilgangi var keypt lóð, 32
ekrur, í Barleith sem er 2 mílur
frá Kilmarnock. Á þessu svæði hef-
ur á tveim síðustu árum verið byggt
stærsta whisky-blöndunarhús í
heimi. Eftir þessar framkvæmdir
getur John Walker & Sons fram-
leitt yfir 2 milljón flöskur á viku.
Nýja blöndunarhúsið var hátíðlega
opnað í maí 1968 af Alexöndru
prinsessu.
Framleiðslan á whisky er bæði
langvarandi og flókin og stór í snið-
um hjá Johnnie Walker og er allt
stærra og meira en annars staðar.
Hinar mörgu eimingarstöðvar í
Skotlandi kappkosta að breyta
malti og korni í áfengisvökva, en
hvert hérað hefur sín sérstöku ein-
kenni. Kaupendur þessa áfenga
vökva eru svo blöndunarhúsin. Til
þess að framleiða hin heimsþekktu
merki Johnnie Walker, Red Label
og Black Label, þarf áfengi frá 40
slíkum eimingarstöðvum víðsvegar
að úr Skotlandi. Blöndunaraðferð-
in er leyndarmál, sem aðeins ör-
fáir meðlimir fyrirtækisins þekkja.
Áfengið frá eimingarstöðvunum er
geymt og flutt í stórum eikartunn-
um, sem áður hafa verið notaðar
undir sherry. Hver tunna tekur 110
gallon (ca. 440 lítra) og eru þær
hinar mörgu tunnur tæmdar og
eftir mörgum, löngum leiðslum úr
ryðfríu stáli renna mismunandi
tegundir og blandast saman að
lokum í þrjár geysistórar ámur,
sem hver um sig tekur 40.000 gall-
on. Eru þetta stærstu ámur sinnar
tegundar í heiminum. Eftir blönd-
unina er whiskyið aftur sett á tunn-
ur. Við áfyllingu tunnanna éru
loftþrýstidælur frá fyrirtækinu
Permex Ltd. notaðar og er tunnu-
áfyllingin mikið til sjálfvirk og er
hraðinn 60—80 gallon á mínútu.
Þegar eftir er ca. % tomma að.
tunnan verði full, stoppar rennsl-
ið sjálfkrafa og „stúturinn“ lyftist
og færist í næstu tunnu. Aðeins
augnablik þarf til þess að fylla al-
veg og ganga frá tunnunum. Fjór-
ar slíkar sjálfvirkar dælur anna
allri framleiðslunni.
Þar til fyrir stuttu síðan var not-
uð gömul og hefðbundin aðferð við
að mæla whiskymagnið í tunnun-
um. Var tunnan fyrst vegin tóm,
síðan aftur full og út frá eðlis-
þyngd whiskys var hægt að ákveða
magnið. Núna eru notaðir hávíá-
indalegir mælar, sem mæla rennsl-
ið í hverja tunnu, og hafa yfirvöld-
in samþykkt þessa mæla. Mælarnir
eru í sambandi við sérstök tæki á
skrifstofu eftirlitsmanna, og skrá
þau þar það magn, sem fer í hverja
tunnu.
Þegar nú whiskyið hefur verið
blandað og sett aftur á tunnurnar,
hefst sá þáttur, sem Skotar kalla
,,gifting“ en þá virka hinar mis-
munandi tegundir frá ýmsum hér-
uðum Skotlands hver á aðra þann-
ig, að úr verður það, sem við
þekkjum undir nafninu JOHNNIE