Úrval - 01.11.1970, Síða 125
STAÐREYNDIR OG BÁBILJUR UM ELLINA
123
vörpum frá okkur bábiljunum um
eðli ellinnar. Golda Meir, forsætis-
ráðherra ísraels ,hefur þetta að
segja um ellina: „Sjötugsaldur er
engin synd.“
Efni þessarar greinar er að mestu
leyti fengið úr bókinni „Atferli og
aðlögun á efri árum“ (Behavior and
Adaptation in Later Life) eftir þá
Ewald W Busse M.D. og Eric Pfeif-
fer, M.D., sem gefin hefur verið út
af Little, Brown.
Sá ríður seint úr hlaðinu, sem snemma bindur sporana.
Islenzkur málsháttur.
Illt er að ráðgast við ragan, hvernig berjast skuli.
Islenzkur málsháttur.
Silfurlcerin snlckva í sjó, en soðbollarnir fljóta. .. .
íslenzkur málsháttur.
Árið 1855 dó San Chinnay y Murillo í bænum Port of Spain á Trinidad.
Ekkja hais, sem var aðeins sextán ára gömul, lét reisa legstein á gröf
hans. Á steininn var skrifað: Við sjáumst brátt. Ýg get ekki lifað án
þín. Á.rið 1955 dó hún svo og hafði þá verið eggja í hundrað ár.
Til er mæíitæki, sem mælir vöðvakraft mannsins. Mælitæki þetta
sýnir, að það þarf jafnmikinn kraft til þess að pressa manséttuskyrtu
og til að mála loft í meðalstóru herbergi.
" ’ í
Þegar brezka lögreglan tók í fyrsta skipti upp radar í þjónustu sina,
vildi svo óheppilega til, að einn af 'honum fyrstu ökuníðingum, sem tek-
inn var, var sjálfur uppfinningamaðuhinn, sir Robert Watson-Watt.
Að leika á krákurnar.
Fyrir nokkrum árurn sá ferðamaður í Mexíkó gamlan Indíána hegða
sér allskringilega á akri sínum. Hann gekk sífellt fram og til baka um
akurinn með poka um öxl og virtist 'hafa sömu umsvif og þegar maður
sáir, en hins vegar var pokinn tómur, og ekkert sáðkorn féll í hina
piægðu jörð. Aðspurður kvaðst hann vera að leika á krákurnar, sem
eltu hann og biðu þess að gleypa sáðkornið úr jörðinni. Þetta var alltaf
vani bóndans á vori hverju. Hann gekk svona um akurinn í þrjá daga.
Þá voru krákurnar orðnar vonlausar og fóru á önnur veiðisvæði. En
eftir það tók bóndinn að sá.
Det Bedste.