Úrval - 01.11.1975, Blaðsíða 30
28
ÚRVAL
HIÐ TRAUSTA BJARG. Múham-
eð var vantrúaður á kraftaverk, og
hann setti ofan í við þá, sem leituðu
þeirra. Samt hafa honum verið eign-
uð nokkur kraftaverk. En sagan um
Múhameð og fjallið er reyndar um
fakír einn, sem bar sama nafn og bjó
í Tyrklandi, nokkrum öldum eftir að
spámaðurinn var uppi. Hann tilkynnti
eitt sinn í gamni, að næsta dag ætl-
aði hann að láta nærliggjandi fjall
koma til sín. Þegar fjallið neitaði
þessu boði, yppti hann öxlum og sagði:
„Jæja, þá fer ég til fjallsins.“
í öllum hinum hefðbundnu arf-
sögnum birtist Múhameð sem góður
og dyggðugur maður. Hann boðaði,
að veita skyldi þrælum frelsi, að feð-
ur skyldu ekki deyða óvelkomin mey-
börn, að þeir, sem kúgaðir væru af
þjóðfélaginu, skyldu erfa jörðina, að
friður væri betri en stríð og að rétt-
lætið mundi ganga með sigur af hólmi.
Þar eð hann vonaði, að sá dagur mundi
upp renna, þegar allir þeir, sem ættu
sameiginlega trú á guð, myndu Iifa
saman í friði, bauð hann sendinefnd
kristinna manna velkomna með þess-
um orðum: „Haldið guðsþjónustu ykk-
ar í bænahúsi okkar. Það er staður,
sem hefur verið helgaður guði.“
Til þess að verða áhangandi Islams-
trúar, verður að játast undir eftirfar-
andi fimm boðorð:
1. „Áhan'gandi Islamstrúar verður
að viðurkenna, að „það sé enginn guð
til nema Guð, og að Múhameð sé spá-
maður Hans.“ Sú játning táknar ekki,
að Múhameð hafi verið eini spámað-
ur Guðs. Spámenn gyðinga og hinn
kristni spámaður Jesús eru einnig við-
urkenndir, en Múhameð var „innsigli
spámannsins," sem færði mönnunum
hinsta boðskap Guðs. Umboð hans fel-
ur í sér og kemur í stað umboða allra
hinna spámannanna.
2. Áhangandi Islamstrúar verður að
biðjast fyrir á hefðbundinn hátt fimm
sinnum á dag, í dögun, um hádegi,
síðdegis, eftir sólarlag og að næturlagi,
helst meðal safnaðarins. Allir þeir,
sem heimsótt hafa lönd þau, þar sem
menn játa Islamstrú, votta, að eina
furðulegustu sýn á sviði gervallra trú-
arbragða heims geti að líta, þegar
hundruð manna standa þétt saman í
rökkvuðu bænahúsi, hneigja sig síðan
djúpt og leggjast á kné, beygja höfuð
sín í duftið og gæta þess, að þeir
snúi um leið í áttina til Mekka. Það
er í slíkri bæn, sem bræðralag Islams
hefur fæðst.
3. Áhangandi Islamstrúar verður að
láta af hendi rakna 2Vi% af brúttó-
eignum sínum (ekki tekjum) til góð-
gerðarstarfsemi á ári hverju. Þessi
meginregla er mjög mikilvæg fyrir hin
ýmsu þjóðfélög, því að hún réttlætir
nútímaskatta, sem notast til félags-
legrar velferðar þegnanna.
4. Áhangandi Islamstrúar verður að
fasta frá sólarupprás til sólarlags í einn
tunglmánuð á ári hverju. Skömmu fyr-
ir dögun etur hann sinn síðasta bita
af fastri fæðu og drekkur sinn síðasta
bolla af vatni. Og gervallan daginn
verður hinn sanni áhangandi Islams-
trúar að neita mat og drykk, hversu