Úrval - 01.11.1975, Blaðsíða 55
APINN SEM TALAR VIÐ FÓLK
53
unni, sem hún hefur skrifað, og bíður
svars.
Pó er þetta ekki lygisaga. Þetta er
stórkostleg tilraun til að hafa skoð-
anaskipti við dýr, og fyrstu niður-
stöður tilraunarinnar hafa hróflað við
goðsögninni um það, hve sérstæð
mannskepnan sé. Pví sjimpansinn, sem
heitir reyndar Lana, skilur og getur
sjálfstætt notað tungumál, en það er
hæfileiki, sem fram að þessu hefur
verið talið, að maðurinn einn byggi
yfir. Duane M. Rumbaugh, hinn alvar-
legi, 46 ára gamli sálfræðingur, sem
hefur veitt tilrauninni forstöðu, segir
að geta hennar til að nota tjáskipti
af þessu tagi hafi farið langt fram úr
fegurstu vonum þeirra, sem að til-
rauninni standa.
Lana lifir hinu sérstæða lífi sínu í
Yerkes dýrafræðistofnuninni við Em-
ory háskólann í Atlanta í Georgíu.
Hún hefur náð góðum tökum á „yerk-
ísku“, sem er eins konar „hagrædd"
enska, og hefur þannig áhrif á um-
hverfi sitt eftir sínu höfði. Tölvan,
sem hún hefur sér til aðstoðar, hefur
verið „prógrammeruð" til þess að
þjóna þessu augnamiði og er reiðubú-
in allan sólarhringinn til þess að verða
við óskum hennar um mat, drykk,
leikföng og skemmtun — ef þessar
óskir eru bornar fram á réttu máli.
Hún getur líka óskað eftir skemmtun
og félagsskap, en það er mannfólkið,
sem sér henni fyrir þeim hluta lífs-
fullnægjunnar, aðallega þó Timothy V.
Gill, 27 ára gamall vísindamaður, sem
er aðalkennari Lönu.
Við fylgdumst með Lönu, þar sem
hún sveiflaði sér úr rólunni í búrinu
sínu niður að stjórnborði tölvunnar.
Hún tók að hamra á hnappana. Skjár-
inn fyrir ofan stjórnborðið fylltist af
táknum, sem í okkar augum líktust
helst rúnum, en hvert tákn stendur
fyrir ákveðið orð. Fjarriti tengdur
tölvunni lifnaði við og túlkaði yerk-
ískuna yfir á ensku: „Gera svo vel
Tim láta djús í vélina.“ Og Tim svar-
aði á sams konar stjórnborð utan við
búrið: „Djús í vélinni.“
„Ekki djús í vélinni.“
Tim gætti að sjálfvirka vökvunar-
tækinu fyrir aftan stjórnborð Lönu
og fann, að það var tómt. Hann fyllti
það, en endurtók síðan: „Djús í vél-
inni.“
„Já,“ svaraði Lana. „Gera svo vel
vél gefa djús.“ Pað suðaði í tölvúnni,
small í tengingum og gusa af ávaxta
safablöndu bunaði í plastkrús undir
stjórnborði Lönu. Lana drakk pent úr
henni með strái og sneri síðan aftur
að stjórnborðinu: „Gera svo vel Tim
að koma inn í klefann.“ Tim svaraði
játandi, opnaði rennidyr klefans og
hélt inn. Lana kom á móti honum,
dró hann að stjórnborðinu og pikk-
aði: „?Tim kitla Lönu.“ — á yerk-
ísku koma spurningarmerkin fyrst.
þegar spurt er.
Tim reyndi að láta engin svipbrigði
á sér sjá, en miðaði með fingrinum á
„nei“ hnappinn. Lana þreif um hönd
hans, og ýtti henni að ,,já“ hnappn-
um, þar til hann lét undan og ýtti á
hann. Pá stökk hún af stað, fram og