Úrval - 01.11.1975, Blaðsíða 119
KVIKASILFURSHARMSAGAN í ÍRAK
117
ursmagnið 3 sinnum meira en í blóði
móðurinnar.
Aðrar rannsóknir munu leiða í ljós,
hversu mikið kvikasilfur mannlegur
líkami þoli, án þess að það skaði hann.
Auk þess benda rannsóknirnar til
þess, að ákveðin harpixtegund geti
bundið kvikasilfrið að einhverju leyti
þannig að líkaminn úrskilji það örara
en ella. En raunhæft móteitur við
kvikasilfurseitrun er ófundið ennþá og
engin lækning er til við henni. Hætta
á fjöldaeitrunum er enn fyrir hendi.
Til eru önnur áhrifamikil lyf, sem
eyða sveppum og ekki tefla lífi ara-
grúa fólks í hættu. Þangað til þau
eru alls staðar tekin í notkun, hvílir
sú þrúgandi kvöl og ábyrgð á út- og
innflytjendum kornsins, sem er úðað
með kvikasilfri, að hindra svipaða
harmleiki og þá, sem dundu yfir írak.
Aðvaranir á umbúðum hins eitraða
korns verða að vera greinilegar og
tvímælalausar, þannig að allir geti
skilið. Úthlutun kornsins verður að
vera undir strangasta eftirliti.
Harmleikurinn í írak ætti að
minnsta kosti að hafa komið heimin-
um í skilning um, að þessum kröfum
verði skilyrðislaust að hlíta án allra
undanbragða.
☆
Ungur maður sem keyrði stúlku heim úr samkvæmi, sagði við hana
er þau voru að kveðjast við dyrnar hjá henni: „Gefðu mér nú einn
koss að skilnaði? Bara einn koss?“
Stúlkan yppti öxlunum með fýlusvip. „Pað er ekkert gaman. Ég hef
ekkert gaman af fólki, sem setur markið ekki hátt.“
GERIÐ SVO VEL AÐ FÁ YKKUR AÐ BORÐA.
Skilti fyrir utan veitingahús í New York hljóðar þannig: „Hámarks-
gestafjöldi 200. Hjálpið okkur til að brjóta lögin.“
Veitingahúsauglýsing í amerísku blaði: íbúar Middleburys eru 8.432.
í bænum eru 18 veitingahús. Pað gera 468,4 íbúa á hvert veitingahús.
Vilja okkar 468,4 gera svo vel að mæta?“
Pað er aðeins eitt sem er erfiðara fyrir stjórnmálamennina að ákveða
en að skera niður ónauðsynleg útgjöld, og það er að vera sammála um
hver þau eru.
Hvernig maður spilar á spil segir alltaf nokkuð um persónuna, en
hvernig hún tekur tapi segir miklu meira.
c.c.