Úrval - 01.11.1975, Blaðsíða 118
ÚRVAL
116
umboðsmenn sína endurheimta korn-
ið. Flestir bændanna létu sér segjast
og hlýddu, en þó voru margir, sem
ekkert voru á því að láta stjórnvöld-
in hlunnfara sig. Ýmist héldu þeir
áfram að neyta kornsins sjálfir, eða
seldu það grunlausum þorpsbóum.
Dag nokkurn í febrúar birti eftir-
litsmaður heilbrigðislögreglunnar
ískyggilega skýrslu: Eitrað kjöt var
komið í kjötbúðirnar. Margir bændur
höfðu fóðrað kvikfénaðinn á kvika-
silfurskorni, og þegar dýrin fóru að
verða lasburða, brugðu þeir sem skjót-
ast við og sendu þau í sláturhúsin.
Stjórnin lokaði umsvifalaust öllum
sláturhúsunum og bannaði alla kjöt-
neyslu. Bannið hélst í 2 mánuði, þang-
að til írak hafði flutt inn heilbrigðan
kvikfénað frá Austur-Evrópu.
GERIST PETTA Á NÝJAN LEIK?
Pað er fyrst nú, 2 árum eftir harm-
leikinn mikla, að ástandið í írak er
að smá færast í þolanlegt horf.
Samkvæmt opinberum tölum stjórn-
arinnar hafa 6.530 manns fengið eitr-
anir og 439 dáið á spítölum. Hinar
réttu tölur eru langtum hærri. Marg-
ir, sem fengu eitranir komu aldrei til
meðferðar. Fjöldi þeirra sem dó um-
hirðulaus, liggur í óþekktum gröfum
og er ótalinn. Samkvæmt rannsóknum
óopinberra kunnáttumanna, hefur tala
hinna dánu náð að minnsta kosti 6.000
og allt að 100.000 hafa orðið meiri
eða minni öryrkjar.
Spítalarnir hafa nú útskrifað hina
síðustu, sem lifðu eitranirnar af. Peir
sem ekki varð að bera, hafa hökt
heim til sín. Heila- og taugaskemmdir
þeirra eru ólæknandi. Peir munu lipp-
ast áfram um götur akranna í Irak og
á götum þorpanna, eða skreiðast titr-
andi um dyragættir leirkofanna sinna.
Meðal þessara hryggðarmynda eru af-
skræmdu börnin, sem léku einhvers
konar fótboltaleik, afkáralega hroll-
vekju, á krossgötunum í nánd við býli
Aswaianna og meðal áhorfendanna var
10 ára drengurinn hennar Hamzieh,
sem ekkert kemst nema vera borinn.
Fatíma, kona eins bræðranna þriggja,
getur ekki bakað brauð framar vegna
þess, að hnén svíkja hana þegar hún
ætlar að beygja sig fram yfir bökunar-
ofninn.
Allt var þetta Hanzieh að kenna,
muldrar maður hennar. En Fatíma setur
ofaní við hann: Láttu ekki nokkurn
mann heyra þetta. Pað var vilji Allah
— vilji Allah.
Yfirleitt er ekkert hægt að gera
fyrir þá sem lentu í ógæfunni, en vís-
indamenn leitast við að finna lyf, sem
geti dregið úr kvikasilfurseitrunum,
sem fólk lendir í framvegis. Hópur
vísindamanna frá Rochesterháskólan-
uni í New York ríki fór í rannsóknar-
leiðangur til írak, samkvæmt ósk
stjórnarinnar í Bagdad. Púsundir blóð-
og hársýna hafa verið rannsökuð, til
að ákveða kvikasilfursmagnið. Bráða-
birgðaniðurstöður leiða rneðal annars
í ljós, að kvikasilfur í blóði þungaðr-
ar konu berst yfir í blóð fóstursins.
í blóði nýfædds barns var kvikasilf-