Goðasteinn - 01.09.1965, Blaðsíða 19
Þar segir m. a., að anno domini 1553 hafi síra Einar Ólafsson, afi síra
Jóns Egilssonar, tekið við tilgreindu fé á Hrepphólum eftir síra
Guðmund heitinn Jónsson.
Líklega hefur síra Guðmundur dáið 1552 eða 1553 og hefir ekki
orðið gamall maður, sennilega fæddur um 1490-1500. Af ómaga-
d.ómum frá fyrri hluta 17. aldar *) má fá vitneskju um það, að
dóttir hans var Guðlaug móðir síra Bjarna og síra Guðmundar,
sona Gísla sýslum. í Miðfelli, Sveinssonar, og hefur hún því verið
fyrri kona Gísla. Bróðir hennar hefur verið Jón nokkur, sem
nokkuð eru raktir niðjar frá í nefndum ómagadómum. Enn hefur
verið dóttir síra Guðmundar ónefnd móðir Eiríks bónda í Más-
tungum í Eystrahrepp Eiríkssonar, og verður það ráðið af ómaga-
dómum þeim, sem fyrr eru nefndir.
Það mætti ætla, að Guðmundur sá, Jónsson, sem dæmdur var
til þess 1525 að láta af hendi 10 hdr. í Bryggjum, hafi verið hinn
sami sem síra Guðmundur, og hafi hann haft umboð barna Magnús-
ar föðurbróður síns meðan þau voru ómyndug. Hann hefur þá ekki
verið orðinn prestur. 1 2)
JÓN GUÐMUNDSSON
er væntanlega fæddur um 1520-1530. Ómagadómur, sem gekk 8.
október 1619 í Gröf í Hrunamannahreppi og annar, sem gekk 22.
maí 1620 í Hraungerði, skýra frá því, að börn hans skilgetin hafi
verið Guðmundur, Árbjartur, Ingunn og Ástríður og e. t. v. Guðný
Kona Árbjarts var Sigríður Bjarnadóttir, systir Jóns Bjarnasonar,
en börn þeirra voru Oddur og Guðrún, sennilega á ómaga-
aldri 1620.
MAGNÚS JÓNSSON
Síra Jón Egilsson segir í biskupaannáium sínum, að síra Páll
Jónsson, þingprestur á Keldum, hafi drukknað á Króksferju á
Þjórsá. Vorið eftir hafi Magnús á Núpi tekið skipið, sem þeir
drukknuðu af, hjá Ölmóðsey og hafi látið róa því yfir á Hrosshyl.
1) Dómabók Einars sýslum. Hákonarsonar í Þjóðskjalasafni,
2) D. I. IX, 281-282.
Goðastein?i
17