Goðasteinn - 01.09.1965, Side 96

Goðasteinn - 01.09.1965, Side 96
Aðaleinkenni lyppulára eru auðgreind: Okar eru á hornum, gegnumboraðir að ofan og neðan. Breiðar rimar, eða fjalir, eru felldar í okagötin og mynda hliðar og gafla. Spjöld eru felld milli rima og allt umhverfis. Botn er trénegldur. Til er, að rimlar komi í stað spjalda, ská- eða réttsettir. Mætti með réttu tala um spjalda- eða þiljulár og rimialár. Lárar með hreinu meis- eða kláflagi eru til á stöku stað. Þeir voru einkum til að geyma í hnykla og oft nefndir ullar- eða hrosshárskláfar ( V.Skaft.Rang.). Byggðasafnið í Skógum á enn engan trafalár, en lyppulára nokkra, stóra og smáa, ágæta gripi á sínu sviði. Fengið hef ég lára, sem voru að líða undir lok og liggja enn í lamasessi. Gömul þjóðtrú var, að óheill fylgdi því að gera upp bilaðan lár. Útbreiðslu hennar þekki ég ekki. Einn ullarkláf. a. m. k., á byggðasafnið, smíðaðan af konu í Skaftafellssýslu fyrir tæpum ioo árum. Annan ámóta gamlan, smíð- aðan úr birki úr Hraunteig á Rangárvöllum, hef ég séð. Lyppulár Skarðshlíðarsystkina er eini útskorni lár safnsins, og gegnir raunar furðu, að ekki skuli vera fleiri. Margir útskornir lárar hafa glatazt á síðustu tveimur mannsöldrum. Gömul vinkona mín, fyrir skömmu dáin, kvaðst hafa átt tvo útskorna lára í æsku. Þeir liðuðust í sundur sem dúkkurúm. Skarðshlíðarlárinn er sviphreinn og yfirlætislaus, smíðaður úr furu. Hann ber nú safnnúmer 1492. Stærð hans er sem hér segir: Lengd 25,7 cm, breidd 20,5 cm, hæð oka 22 cm. Okar rísa, að venju, hærra og ganga neðar en hliðar og gaflar. Hæð hliða er 15,5 cm, hæð gafla er 16,5 cm. Gaflar ná ekki jafn langt niður og hliðar og rísa líka hærra upp. Botn hefur aðeins festingu við þá. Milli rima eru fjalir, felldar langsum, ein á hvorri hlið og ein á hvorum gafli. Aðra hlið- arfjölina vantar, mjóir rimlar eru felldir utan á gaflfjalir miðjar, milli oka. Mikið skortir á, að rimar eða fjalir hafi jafna breidd enda milli, enda virðist hefill ekki hafa komið nærri þessari smíði. Rimar eru trénegldar í oka. Geta má þess, að önnur botnfjöl er úr maðk- smognu rekatré. Skal nú aðeins vikið að útskurði: Neðri rimar eru skreyttar jurta- teinungum í gömlum, hefðbundnum stíl. Ofan við þá er tanna- bekkur. Efri rimar segja nafn fyrsta eiganda: RAGN/HILDUR 94 Goðasteinn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.