Goðasteinn - 01.09.1965, Blaðsíða 49
eigi náð til ljósmóður í skyndi, en unglingsstúlka, er hjá þeim hjón-
um var um tíma, varð þar til liðs. Stúlkan hafði fengið í heimsókn
vinkonu sína af nágrannabæ, og bað aðkomustúlkan hina að koma
mcð sér heim um kvöldið. Heimastúlkan spurði húsmóðirina hvort
hún mætti fara, en hún sagði: ,,Æ, farðu ekki núna,“ og stúlkan
varð kyrr, en hin fór heim. - En ljósmóðirin fór nær um hvað leið,
því að legvatn hafði runnið þá rétt áður. Var það síðdegis, serri
Lo.ftur fór áleiðis að Hvammi að sækja Þuríði Jónsdóttur ljósmóður
í V.-Eyjafjallaumdæmi. Hann kom að Tjörnum í leiðinni, og með
honum fór Jón bóndi Sigurðsson, (löngu síðar póstur í Landeyjum).
Markarfljót var spillt orðið af frosti og mikið upphlaupið. Urðu
þeir sums staðar að vaða og brjóta ótraustan ís, svo þeir kæmu
hestunum áfram, og var þetta þrekraun, en þeir vötnunum vanir og.
gekk slysalaust, sluppu vel úr þessum kröggum, þó að ógreitt væri og
skuggsýnt orðið. En nógu löng mun þeim hafa þótt biðin, sem
heima voru á Bakka. Unga stúlkan liðsinnti sængurkonunni, svo
sem hcnni var unt, en vinnukona, sem var á bænum, gat helzt
hvergi nærri komið, var hún eirðarlaus inni, en hélt sig fremur úti
við að hlusta eftir mannaferðum, en lygnt var um kveldið og hljóð-
bært.
Leið all langur tími, sem ætla má, unz ljósmóðirin kom, og var
þá barnið fætt. Unga stúlkan hafði skilið á milli með tilsögn Krist-
inar sjálfrar, en að nokkru var henni ljóst, hver handtök skyldi hafa,
því að hún hafði citthvað kynnt sér ljósmóðurfræði, er Kristín átti
og henni þótti girnileg til fróðeiks. Hafði hún hug á að verða til
liðs, er svo brýn þörf var fyrir.
Má geta þess til, er Kristín var stödd í þessari raun með einn
ungling til aðstoðar, að hún hafi átt mikilsverðan stuðning í þeirri
bjargföstu guðstrú, er hún bar í brjósti og var henni víst hið örugg-
asta skjól, er á móti biés, í ástvinamissi og öðrum erfiðleikum.
Þá er Kristín ól hið næsta barn eftir þctta, varð greiðlega náð
til ljósmóður, en þá kom hún svo hart niður, að hún mun aldrei
hafa náð fullri heilsu upp frá því.
Unga stúlkan, sem frá er sagt hér á undan, var síðar svo lánsöm
að geta lært hjúkrun innanlands og utan, hún varð fyrsta heilsu-
verndarhjúkrunarkona hérlendis. Hún er frú Oddný Guðmunds-
Goðaste'mn
47