Goðasteinn - 01.09.1965, Blaðsíða 30
Frankar aðstoðuðu Harald við að ná löndum sínum og hélt hann
heim og tók völd á ný árið 826. Samkvæmt boði keisarans varð
hann að efla trúboð í landi sínu og sendi keisarinn tvo trúboða
með konungi norður tii Danmerkur. Þessir trúboðar voru báðir
klausturbræður frá Nýja-Corbie klaustrinu við Weserfljót. Hét
sá eldri Autbert, en hinn yngri og sá, sem átti eftir að helga sig.
útbreiðslu og eflingu trúarinnar á Norðurlöndum alla ævi, hét
Ansgar.
II.
Ansgar er frankverskur, fæddur 801 í Picardíhéraðinu. Um föður
hans er ekki vitað og móðir hans dó, er drengurinn var fimm ára að
aldri. Þá tóku munkarnir í Benediktsklaustrinu Corbie í sama hér-
aði hinn unga munaðarleysingja til uppfósturs sem oblatus.
Corbieklaustrið var upphaflega stofnað sem dótturklaustur hins
fræga Luxeuilklausturs í Vogesafjöllunum, er hinn írski trúboði,
Columba hinn yngri, stofnaði þar árið 585. Corbie bar, sem önnur
dótturklaustur Luxeuil, stöðugt einkenni hins írska iðrunaranda og
trúarhita. Og eftir umbætur Karls mikla hafði þetta klaustur lagt
mjög aukna áherzlu á skólastörf og vísindaiðkanir eftir engilsax-
neskri fyrirmynd. Það mun því óhætt að segja, að þarna hafi
Ansgar hlotið hið bezta uppeldi og menntun, sem völ var á. Hér
dvaldist Ansgar í 16 ár og var að loknu skólanámi tekinn í regluna
sem klausturbróðir. Var hann þá vel lærður og fékk brátt starf sem
scholasticus klaustursins eða lærimcistari.
Snemma tók að bera á ýmislegu í fari Ansgars umfram aðra
menn, dreymdi hann merka drauma, fékk vitranir og sá sýnir.
Fyrirbæri þessi höfðu oft mikil áhrif á athafnir hans og gerðir og
sjálfur taldi Ansgar þau sérstakan vitnisburð um guðs velþóknun
og náð. Ansgar tók hinu mesta ástfóstri við klausturlífið og taldi
það eitt geta veitt mönnunum nægilegan frið og ró til trúarlegrar
ígrundunar, þótt ekki yrði örlög hans að eyða ævinni innan klaust-
urmúranna. En einmitt hinar ýmsu sýnir og vitranir urðu þess
valdandi, að hann síðar tók trúboðsstarfið fram yfir klausturlífið
og taldi hann það guðs vilja.
Þegar dótturklaustrið Nýja-Corbie við Weser var stofnað 822,
28
Goðasteinn