Goðasteinn - 01.09.1965, Side 32
mætt var glatað, þar á meðal helgibækur Ansgars og gjafir keisar-
ans til sænska konungsins. En áfram var haldið og nú landleiðina
um villugjarna skóga og yfir stór, ókunn vötn, þar til að þeir um
síðir náðu til Birka, er var verzlunarstaður Svía og stóð á Bjarkarev
í Málarfljóti.
Björn konungur tók vel við Ansgar og veitti honum, með sam-
þykki ráðamanna í ríki sínu, leyfi til að kynna guðs orð og stofna
söfnuo. Kjarni hins nýja safnaðar voru allmargir kristnir fangar, er
sænskir víkingar höfðu tekið, en brátt létu einnig nokkrir Svíar
skírast. Meðal Svía þeirra, er kristni tóku, er nefndur Hergeir jarl
í Birka. Hefur trúboði Ansgars verið hinn mesti styrkur að svo
voldugum manni. Hergeir jarl gerðist og brátt hinn mesti trúmaður
og lét reisa kirkju á jörð sinni. Er það hin fyrsta kirkja, sem um
getur á Norðurlöndum.
Ansgar og félagi hans eru sagðir hafa kennt og predikað guðs orð
en hvergi er þess getið, að þeir hafi ferðazt um, og virðast þeir
því hafa haldið fast við hina fornu reglu Benediktsmunka, að trú-
boð sé aðeins rekið með kynningu orðsins á einum stað af búsett-
um presti. En þótt Ansgar gerði ekki víðreist í Svíþjóð, var samt
árangurinn af starfi hans töluverður og myndaðist allstór söfnuður
í Birka.
Eftir eins og hálfs árs dvöl í Svíþjóð, sneru trúboðarnir aftur til
Frakklands og höfðu meðferðis þakkarbréf Björns konungs til keis-
arans. Hin árangursríka för Ansgars og vinsamlegt bréf konungsins
juku mjög bjartsýni hjá keisaranum á trúboð meðal hinna heiðnu
þjóða Norðurlanda. Útlit var nú fyrir, að kristnin hefði fest þar
svo vel rætur, að keisarinn beið ekki boðanna með að koma þeirri
skipun á kirkjumál þessara víkingaþjóða, sem vera bar.
Afleiðingin var sú, að árið 831 var stofnaður erkibiskupsstóll í
Hamborg. 1 hinu nýja erkibiskupsdæmi skyldu vera hin þýzku og
vindsku héruð norðan Saxelfar og Norðurlöndin. Jafnframt stofnun
hins nýja erkistóls, útnefndi keisarinn Ansgar til að vera þar erki-
biskup, og mun það hafa þótt réttmæt viðurkenning fyrir vel unnin
störf í hinum heiðnu löndum. Ævisaga Ansgars leggur hina mcstu
áherzlu á að lýsa þeim áhuga og einhug, sem ríkt hafi á fjölmennu
biskupamóti, er samþykkti ráðstafanir þessar. Mun sú þróttmikla
30
Goðasteinn