Goðasteinn - 01.09.1965, Page 50

Goðasteinn - 01.09.1965, Page 50
dóttir, er átti Helga (d. 1960) Jónasson á Stórólfshvoli, héraðslækni og alþm. Rangæinga. Hún býr nú í Reykjavík. Er börn Bakkahjóna voru orðin sex og von hins sjöunda, var það að næturlagi að Kristín kenndi sér sóttar. Þetta var á öndverðum þorra. Isalög mikil höfðu verið að undanförnu og vötn öll lögð. En nú var komin asahláka og vötnin í áköfum vexti. Var talið, að ófært mundi í náttmyrkri yfir vötnin beggja vegna sveitarinnar. Sem áður segir, er yfir Markarfljót og Ála að fara úr Landeyjum austur undir Eyjafjöll, en út í V.-Landeyjar er Affallið í vegi. Það varð til ráða, að hjónin leituðu liðsinnis til grannkonu sinn- ar, Katrínar Sigurðardóttur í Hólmum (hún var kona Gunnars Andréssonar, er lengi var hreppstjóri A.-Landeyja). Hún var þá nálægt sextugsaldri, húsfreyja í fremstu röð, handlagin og hjálpsöm og var sjálf margra barna móðir. Katrín kom í skyndi og veitti þá aðstoð, er hún mátti. Er hún hafði tekið á móti barni, var sá vandi á, að um fyrirsetta fylgju var að ræða og annað barn ókomið. Treysti nærkonan sér ckki að ráða fram úr þessu, ólærð í starfinu. Reis þá sængurkonan upp, svo sem henni var unnt, og reyndi að greiða úr þessu, og svo gæfusamlega tókst, að hún gat gert þau handtök, er með þurfti. Barnið var nokkuð aðþrengt, cn móðirin reyndi að lífga það við og tókst það, þótt með ólíkindum væri við slíkar aðstæður. Sagði Kristín svo síðar frá þessu atviki, að hún hafi beðið þess heitt, meðan á þessu stóð, að barnið fæddist með lífi, hversu svo sem færi. Kristín var sótt á heimili í umdæmi sínu að vetrarlagi, skömmu fyrir jól. Þarna var barnaheimili, cfnalítið og fátt um föng, m. a. var mjólkurlaust. Fljótlega eftir barnsfæðinguna komu grannkonur með sængur- gjafir og bættu úr bráðustu þörfinni, en sængurkonan, sem mun hafa verið vannærð áður - sem að líkum lætur við slíkar aðstæður - gat ekki mjólkað barni sínu og var sárhrygg yfir kjörum sínum. Ljósmóðirin var fyrir skömmu komin á fætur eftir barnsburð og hafði barn sitt á brjósti. Varð það úrræði hennar að fara með korn- barnið hcim með sér. Kuldatíð var um þetta leyti og varðveitti Kristín barnið í barmi 48 Goðasteinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.