Goðasteinn - 01.09.1965, Page 60

Goðasteinn - 01.09.1965, Page 60
inntöku, og batnaði mér ekkert við það. Ég píndi mig til að vinna allt sumarið, en um haustið fór ég til Valtýs Albertssonar læknis í Reykjavík. Kom þá í ljós, að ég var með geysiháan blóðþrýsting. Hafði Helgi ekki mælt hann og ég ekki heldur haft hugsun á því að biðja hann um það. Valtýr hélt, að ég hefði borðað svo mikið af kjöti, eins og margt sveitafólk. Sagði ég, að ekki væri því að gegna. Ég er lítið fyrir kjöt og hafði ekki borðað nema svo sem einn spaðbita á viku um sumarið. Kallaði Valtýr það ekkert kjötát og skildi ekkert í, af hverju vanheilsa mín stafaði. I tvo mánuði varð ég að borða þunnan hafragraut, rófur og hveitibrauð, mjólk og töflur. Með sífelldu töfluáti fór þessi blóð- þrýstingur þó ekki úr mér, fyrr en eftir fjögur ár. Þetta var nú einskonar útúrdúr en þó í sambandi við „kerling- una í Nípunni", sem allir héldu í þann tíð, að væri huldukona. Og þá er það draumurinn: Það var skömmu fyrir Jónsmessu, rétt fyrir síðari heimsstyrjöldina, að ég þóttist vera sofandi uppi í rúmi - sem og var. Þóttist ég þá vakna við mikinn undirgang úti á hlaðinu, fara fram úr rúminu og líta út um gluggann. Sá ég þá mikinn fjölda af sótrauðum hestum standa hlið við hlið á hlaðinu. Þóttist ég þá klæða mig og fara út. Voru þá allir hestarnir horfnir, cn í stað þeirra stóðu á hlaðinu óskaplega margir menn, mjög stórir og herfilega ljótir og með stálhúfur á höfði. Mér varð litið suður á túnið og sá þá, að allir hestarnir voru þar á beit. Þóttist ég snúa þangað til að reka þá úr túninu. Varð ég þess þá var, að til mín stefndi kona. Kom hún skáhallt frá geisihárri og brattri brekku, sem cr skammt norðvestan við bæinn. Uppi á þessari brekku er allstór klettastallur eða hamrabelti, sem nefnist Skyggnir. Þegar konan var í svo sem tveggja metra fjarlægð frá mér, var eins og hún hvíslaði að mér: „Þú þarft ekki að vera að reka hestana úr túninu, því þetta er allt sjónhverfingar". En þessi kona var ekki kerlingar- leg, svona 30-40 ára og í svo fallegum, snjóhvítum og silfruðum kyrtli, að ég hef ekki séð annað eins í vöku. Hún virtist ganga í sporin sín, til baka að brekkunni og hvarf þar. Ég fór að íhuga, hver þessi kona væri. Datt fyrst í hug, að þetta væri Þuríður kona Þorgils- ar en þóttist þó fljótlega sjá, að svo gæti ekki verið, heldur væri það „kerlingin í Nípunni" - og þar með var draumurinn búinn“. 18 Goðasteinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.