Goðasteinn - 01.09.1973, Page 33

Goðasteinn - 01.09.1973, Page 33
Þá gekk bóndi á lagið og lagði enn meira að honum að drekka hjá sér eitt staup. - Þorgils afþakkaði enn sem fyrr, en sagðist skyldi þiggja dálitla hressingu, um leið og hann færi á bak. Þegar Þorgils var ferðbúinn, kom bóndi út á hlað með flösk- una og staupið og bjóst til að skenkja í það, en þá sagði Þorgils: „Nei, blessaður, vertu ekki að væta staupið. Það tekur því ekki. Ég ætla rétt að finna bragðið." Síðan setti hann flöskuna á munninn og teygaði í botn. -- Þorgils sagði seinna frá þessu hrekkjabragði sínu og bætti við: „Og þá grét hann, helvítis karlinn." -o-o- Eitt sinn var Þorgils á ferð austur undir Eyjafjöilum og kom þar á góðan bæ til gistingar. Hittist svo á, að húsbóndinn var ekki heima, og var Þorgilsi boðið til gestastofu. Þar inni var uppbúið rúm, og lagðist Þorgils endilangur í það. En honum mun liafa þótt sér lítið sinnt, því einhver heimamanna heyrði hann tauta fyrir munni sér: „Skyldi maður eiga að svelta lengi í þessu helvíti!“ -o-o- Ymsum óx í augum, hve Þorgilsi búnaðist vel, og var jafnvel ekki laust við, að sumir reyndu að koma því orði á, að hann væri sauðaþjófur, eins og oft átti að vera um þá, sem bjuggu afskekkt og nærri afréttum. Þorgils gerði gabb að þeim, er þessu vildu trúa. Hann sagði einhvern tíma í margra áheyrn: „Ég þekkti mann, sem stal og stal, þangað til hann varð ríkur. - Þá hætti ég.“ „Hættir hverju?“ spurði einhver. „Sögunni", sagði Þorgils og glotti við. -o-o- Næstu þrjár sögur hefur Bergsteinn Kristjánsson skrásett og birt í Sunnudagsblaði Tímans 26. ágúst 1962. Honum segist svo frá: „Þorgils á Rauðnefsstöðum var greindur vel, fáorður og gagn- orður. Eitt sinn kom drengur úr nágrenninu að Rauðnefsstöðum, og Goðasteinn 31

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.