Goðasteinn - 01.09.1973, Page 61
nýju innifelldu í sér meiri fegurðarhijóm en þau gömlu, svo sem
einsog lagið við sálminn: „Óvinnanieg borg er vor guð“. Einsog
í heimahúsum var ekkert dregið af sálmunum í kirkjunni, sungnir
allir, þó sumir væru nokkuð langir. Að endaðri prédikun mælti
síra Jakob vanalega fram þetta bænarvers: „Vors herra Jesú
verndin blíð“ o. s. frv.
Það voru margir góðir söngmenn í Hjaltastaðaþinghá, sem ef-
laust hefðu getað skipað bekk með beztu söngmönnum nútímans
innan hins íslenzka þjóðfiokks, ef þeir hefðu vcrið þeirra sam-
tíðarmenn. En þeir höfðu ckkert tækifæri til að iæra til söngs og
urðu því að grafa pund sitt í jörðu. Það var Einar Jónsson á
Hjalla og svo Jón Reykjaiín sonur Jóns prests Reykjalíns, eitt sinn
á Ríp í Skagafirði, og Sigríður Snorradóttir prests á Hjaltastöðum.
Hann heyrði ég hafa eina þá fegurstu söngrödd, sem ég hefi heyrt.
Jón Reykjalín lærði í Bessastaðaskóla latínuskóla lærdóm og svo
til prests en tók svo ekki vígslu um langa hríð, var vinnumaður
á ýmsum stöðum, var nokkur ár í Dölum í Hjaltastaðaþinghá hjá
Jóni bónda Einarssyni og svo á Hjaltastað hjá síra Jakobi. Hann
var tæpt mcðalmaður á vöxt en þrekinn og snarmenni og glíminn
vel. Skemmtinn maður viðtals en hneygður fyrir vín og breyttist
mikið sér til vansæmis, ef hann gjörðist ölvaður. Að lyktum tók
hann prestsvígslu árið 1863 og var veittur Þönglabakki í Þingeyjar-
sýslu og seinna Svalbarð í Þistilfirði. Sigríður hét kona lians, og
áttu þau margt barna, á meðal hverra var Snorri Reykjalín, sem
lézt í Winnipeg fyrir mörgum árum síðan. Svo dvöldu í Hjalta-
staðaþinghá í mörg ár fjórir bræður frá Njarðvík, hálfbræður Jóns
Sigurðssonar í Njarðvík. Þeir hétu Sigfús og Haliur, Runólfur og
Gestur Sigurðssynir. Móðir þeirra var Þorgerður Runólfsdóttir,
systir Péturs í Klúku. Þeir voru aliir söngmenn. Sigfús var lcngi á
Hjaltastað og forsöngvari í kirkjunni. Snorri Rafnsson fósturson
síra Jóns Guðmundssonar, sem ég hefi áður nefnt, var söngmaður
góður. En á mest framfarastig í söng í sveitinni var kominn, þeg-
ar ég fór af fslandi, Einar Jóhann Björnsson frá Dölum, var þá
nærri nítján ára.
ÍSAK SHARP
Það var á sunnudag að áliðnu sumri 1863. Veður var bjart og
Goðasteinn
59