Læknaneminn - 01.04.2020, Blaðsíða 7
7
R
it
rý
n
t
e
fn
i
Á
vö
rp
o
g
an
ná
la
r
7
reyna að skýra þessi þætti. Loks komum
við á framfæri áhyggjum af stöðu náms og
vísinda á Landspítala. Niðurskurðaraðgerðir
hafa þrengt að þessum þáttum en brýnt er
að Landspítali hlúi að sínu fræðahlutverki og
geri því hátt undir höfði.
Í krefjandi námi er þó einnig mikilvægt
að staldra við og huga að geðheilbrigði og
andlegri líðan. Mikið hefur verið rætt um
álag og kulnun innan læknastéttar en sú
umræða á einnig við læknanema. Mikið
mæðir á nemum vegna viðveru og vaktaálags
en sú jákvæða breyting varð í ár að vaktir
í lyf- og skurðlæknisfræði á 4. ári voru styttar
og þeim fækkað. Þegar upp koma áföll eða
veikindi er enn mikilvægara að veita svigrúm
og að nemendum standi viðeigandi úrræði
til boða. Fyrir tveimur árum var stofnaður
Geðheilbrigðishópur HÍ til að mæta þessari
þörf. Sú þjónusta nýttist afar vel eftir erfiða
atburði þessa skólaárs og verður vonandi efld
enn frekar á næstu árum.
Læknanemar eru einstaklega skemmtilegur og
framtakssamur hópur og það eru forréttindi
að vera með ykkur í námi. Skólaárið var
sérstakt fyrir margar sakir en þegar þetta er
skrifað hugsa ég til þess með gleði í hjarta
að við eigum enn þá inni árshátíð 2020! Ég
vil sérstaklega þakka kærum vinum sem hafa
setið með mér í stjórn FL - Þórdís, Teitur,
Kristín, Hjördís, Daníel og Ingi - ég hefði
ekki getað beðið um betri hóp. Vil einnig
þakka Engilbert Sigurðssyni deildarforseta,
Þórdísi Jónu Hrafnkelsdóttur kennslustjóra og
öllu því góða fólki sem starfar hjá Læknadeild
fyrir mjög farsælt samstarf á árinu. Þetta
eru merkilegir tímar en við höldum ótrauð
áfram. Kæru læknanemar, höldum þétt utan
um hvert annað (með 2 metra fjarlægð) og
njótum lífsins!
Annálar
undirfélaga
2019 2020
Sjöunda starfsár Bjargráðs
hófst með Bjargráðsviku
eins og tíðkast hefur síðast-
liðin tvö ár. Hún hefur
verið haldin í samráði
við Læknadeild og er
orðin mikilvægur liður
í að undirbúa fyrsta árs læknanema fyrir
það stóra verkefni að fræða mennt skælinga
um skyndi hjálp. Bjargráðsvikan hófst með
skyndihjálparnámskeiði frá Rauða krossi
Íslands og fengu nemarnir skírteini fyrir
þátttöku. Vikan er einnig hugsuð til að gefa
nemunum innsýn í heim neyðarhjálpar og
bráðamóttöku. Fengu þau því fyrirlestra frá
Hjalta Má Björnssyni bráðalækni og Jóhanni
Eyvindssyni lögreglu manni ásamt því að
heimsækja Neyðar línuna og sjá starf semi
hennar. Þetta árið var svo haldin stórslysa-
kennsla í fyrsta sinn sem Þórir Bergsson sá
um og heppnaðist vel.
Í ár hélt Bjargráður 76 fyrirlestra í 15 skólum
á höfuðborgarsvæðinu sem er svipað og hefur
verið síðastliðin ár. Kominn var tími til að
endurnýja þreyttar skyndihjálpardúkkur og til
allrar lukku fengum við styrk úr forvarnarsjóði
Reykjavíkurborgar sem nýttur var í þau kaup.
Þær stela senunni hvert sem þær fara með
sínar fallegu tennur og stæltu magavöðva.
Eljusamir Bjargráðsliðar tóku þátt í Vísinda-
smiðjunni í samstarfi við Háskóla Íslands,
sem snýr að því að efla áhuga ungmenna á
vísindum.
En starf Bjargráðs er ekki einungis erfiðis-
vinna og laust við skemmtun. Í október 2019
skipulagði Bjargráður sína árlegu vísindaferð
til Landhelgis gæslunnar. Ásgeir Erlendsson
upplýsinga fulltrúi tók á móti læknanemum
og sýndi þeim flugskýlið. Venjulega hefur
þyrlu læknir haldið erindi fyrir nemana en
í þetta sinn var hann skyndi lega sendur í útkall.
En það kom ekki að sök, pöntuð var pizza og
fjörið hélt áfram fram eftir kvöldi. Síðastliðin
ár hefur eingöngu fyrsta árinu verið boðið í þá
vísindaferð en í ár bauðst öllum læknanemum
tækifæri á að skrá sig.
Í sumar tekur Bjargráður þátt í Háskóla unga
fólksins. Þá eru haldnir örfyrirlestrar fyrir
ungmenni landsins. Nýtt skólaár er skammt
undan og ekki er ástæða til annars en að líta
til þess með björtum augum.
Venjulega hefur Bjargráður lokið starfsári sínu
með lokahófi þar sem boðið er upp á veigar og
verðlaun færð afkastamestu fyrirlesurum
Bjarg ráðs. Nú við skrif þessa annáls er þó ekki
ljóst hvort loka hóf verði haldið að sinni vegna
samkomu banns sem sett hefur verið á vegna
COVID-19. Okkur þykir það miður og vill
Bjargráður þakka fyrirlesurum fyrir dugnað
og óeigingjarnt starf.
Bjargráður
Viktoría Mjöll Snorradóttir
Formaður Bjargráðs 2019-2020