Læknaneminn - 01.04.2020, Side 60

Læknaneminn - 01.04.2020, Side 60
Fr óð le ik ur 6 0 Öldrunardeild Þegar manneskjur eldast fer að hægjast á öllu; gönguhraða, tali og hægðum. Stofugangar eru oft langir og því er gott að vera í góðum skóm og stuðningssokkum, vera vel nærð og með tóma blöðru. Farið inn á deildina með opnum huga og ekki hafa fyrirfram ákveðna fordóma gagnvart öldrun. Sjúklingarnir eru fjölveikir á mörgum lyfjum og því með flókin lyflæknisfræðileg vandamál. Frá okkur: Byltur er ein algengasta vísbending um undir- liggjandi sjúkdóma og algengt vandamál hjá öldruðum einstaklingum. Margir upplifa kvíða og ótta við endurteknar byltur og tak- marka því ferðir sínar sem getur fljótt leitt til versnandi færni. Blóðprufur sem taka á við byltum eru TSH, fólat, B12 og HbA1c en þessi þættir geta haft áhrif á jafnvægi. Einnig ætti að mæla réttstöðulágþrýsting (ortho static hypotension) og meta hreyfifærni. Til er byltumóttaka sem vinnur upp orsakir endurtekinna bylta. Frá sérfræðingum: Sjúklingar með vitræna skerðingu vegna heila bilunar munu þurfa að hætta að keyra. Þó er mikilvægt að muna að meðan vitræn skerðing er mjög lítil getur fólk enn ráðið við að keyra bifreið örugglega. Hannaður hefur verið áhættu reiknir til að meta stig skerðingar og hjálpar læknum að greina betur hverja þarf að meta betur og hverjir eiga alls ekki að keyra. Áhættureiknirinn heitir Clinical Dementia Rating (CDR). Fólk sem fær 0-0,5 er í lágri áhættu á að vera óöruggir ökumenn. Fólk sem fær 0,5-1 þarf að meta betur, helst með ökukennara. Fólk sem fær 2 á ekki að keyra. Þvagfæraskurðdeild Typpi, typpi, typpi. Hver elskar þau ekki? Ef þú gerir það ekki nú þegar muntu það eftir þessa viku. Þú munt meira að segja vilja kaupa þér (pissu)gula klossa eingöngu til að falla inn í hópinn. Á þessari deild er lítil deildarvinna og því gullið tækifæri til að setja upp þvagleggi og sjá TURPa. Frá okkur: Þegar velja á myndrannsókn við einkennum frá þvagfærum er um margt að velja. Gott er að þekkja að minnsta kosti tvær þeirra, muninn á þeim og hvenær þær eru viðeigandi. CT þvagfærayfirlit: Tölvusneiðmynd með litlum geislaskammti og án skuggaefnis. Á við þegar grunur er um nýrnasteina þ.e. smásæ (microscopic) blóðmiga með verkjum. CT urographia: Þriggja fasa tölvusneiðmynd með skuggaefni. Á við þegar grunur er um krabba mein í þvagvegum þ.e. verkjalaus stór- sæ (macroscopic) blóðmiga. Frá sérfræðingum: PSA á eingöngu að mæla sé klínískur grunur um krabbamein í blöðruhálskirtli. Ekki mæla PSA hjá karlmönnum með þvagteppu, þvagfærasýkingu eða önnur bráð neðri þvagvega vandamál þar sem PSA er yfirleitt falskt hækkað við þessar aðstæður. Ef blóð sést í byrjun eða í lok þvagláta á það að öllum líkum uppruna sinn frá blöðruhálskirtli eða þvagrás. Ef blóðið kemur frá nýrum eða blöðru ætti það að hafa blandast við þvag í blöðrunni og vera í allri bununni. Í blöðruhálskirtils bólgu (prostatitis) getur einnig sést blóð í sæði (hematospermia) sem getur þá verið eina einkennið. Það er ekki merki um alvarlegan undirliggjandi sjúkdóm og krefst ekki sérstakrar uppvinnslu eða meðferðar. Æðaskurðdeild Á æða snýst allt um að koma blóðflæðinu í gang. Það getur gerst á tvennan hátt, annað hvort með grilli eða með opnun kalkaðra æða. Deildin er mjög lítil og því ekki víst að það séu aðgerðir alla daga. Þá er mjög gott að fara á göngudeildina og æfa sig í að þreifa púlsa og heyra æðasláttinn hljómfagra með Doppler mælinum. Frá okkur: Ef þú þekkir æðarnar frá ósæð og niður í fætur á CT þá ertu golden. Frá sérfræðingum: Skoðið vel púlsa í hnésbót hjá sjúklingum með þekkt aortaaneurysma þar sem verulegur hluti er með a.poplitea aneurysm. Eins hjá sjúklingum með a.politea aneurysma skoðið vel sjúkling m.t.t aortaaneurysma. Kviðarholsskurðdeild Ef þig hefur alltaf langað til að verða kírug og ganga um í grænum scrubs með maskann hangandi um hálsinn og fjólubláa skurðhúfu þá ertu mættur á rétta deild. Hér er eins og að vera í nammilandi. Þú getur valið á milli þess að fara í aðgerðir, á göngudeild, vinna deildarvinnu eða klára innskriftir. Úrvalið er endalaust. Frá okkur: Steinar geta myndast í gallblöðru og gall- vegum. Einkenni þess eru oft verkur í hægri efri fjórðungi og hiti. Ef steinar festast í opi gallblöðrunnar geta þeir valdið bráðri gallblöðrubólgu (cholecystitis). Gallsteinar í gall vegum valda hins vegar gallrásarbólgu (cholangitis). Meginmunurinn milli þessa tveggja sjúkdóma er að í gallrásarbólgu verður einstak lingurinn gulur auk þess sem það er lífshættulegt ástand. Frá sérfræðingum: Óþarfi er að endurtaka amylasa/lípasa mæl- ingar í brisbólgu (pancreatitis) en þær segja okkur ekki neitt. Mælum við frekar CRP til að meta alvarleikann. Alltaf þarf að skoða blöðrur (cysts) í brisi því útiloka þarf intra-papillary mucinous neo- plasm. Það er forstig krabbameins og getur haft blöðrulíkt útlit. Ef um er að ræða einangraða innan-lifrar (intrahepatic) víkkun á gallvegum þá eru 80% líkur á að það sé krabbamein. Því má aldrei horfa framhjá. Bæklunarskurðdeild Ef þú elskar bora og hamra þá er bæklun fyrir þig. Eða þá þú hefðir átt að fara í smiðinn. Þau sem fýla ekki lyflæknisfræði eða að skrifa dagála hafa svo sannarlega dottið í lukku- pottinn á þessari deild. Hér er mikið af aðgerðum og því kjörið tækifæri til að skrúbba sig inn ef að þig þyrstir í blóð. Frá okkur: Nýtið tímann til að læra anatómíuna sem hefur gleymst frá fyrsta árinu. Mælum sterklega með að lesa allar bæklunarskoðanir sem hafa komið í Læknanemann. Námsefnið er yfirgripsmikið en þið græðið alltaf á því að kunna anatómíuna og helstu bæklunarskoðanir. Aorta Common Iliac Artery External Iliac Artery Common Femoral Artery Superficial Femoral Artery Distal Femoral Artery Groin Crease Knee Crease Internal Iliac Artery Profund Femoral Artery Anterior Tibial Artery Dorsalis Pedis Artery Popliteal Artery Tibio Peroneal trunk Posterior Tibial Artery Peroneal Artery
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.