Læknaneminn - 01.04.2020, Side 85

Læknaneminn - 01.04.2020, Side 85
R it rý n t e fn i S ke m m ti e fn i o g p is tl a r 8 5 Ætli það skýrist ekki að hluta til af því að í áranna rás hefur verkaskipting heilbrigðis- starfsfólks verið skýr. Sögulega og menningar- lega hafa starfsheitin læknir og hjúkrunar- fræðingur verið svo fast tengd sitthvoru kyninu að það er hægara sagt en gert að slíta tengslin. Kynjahlutverkin eru rótgróin og merki gamalla tíma má enn sjá á göngum spítalans. Þá meinum við ekki aðeins að þau rölti um spítalann í formi eldri manns í læknasloppi með síðum ermum, heldur í hugsunarhætti sem virðist seint ætla að breytast. Til að mynda er það ekki svo sjald- gæft að runa af kvenkyns læknum þrammi inn á stofu sjúklings snemma morguns, kynni sig og ræði við sjúklinginn um áætlun dagsins, þegar hann loks spyr: „Hvenær kemur svo læknirinn?” Bekkjarbræður okkar hafa einnig haft orð á því að þegar þeir ganga stofugang með kvenkyns lækni beini sjúklingar frekar spurningum til þeirra, karlkyns nemanna, en læknanna sjálfra. Ætla mætti að þessi hugsunar háttur væri við varandi vegna þess að lang flestir sjúk linganna eru eldri einstak- lingar sem hafa varla þekkt annað en staðal- myndina um hinn alvitra, virðulega, eldri mann með hlustunarpípu. Auk þess er stór hluti sérfræðilækna á virðulegum aldri og hafa lært og starfað við annan tíðaranda. Velta má fyrir sér ýmsum ástæðum en í lok dags er staðreyndin einfaldlega sú að tíðarandinn er nú annar. Árið 2020 er Ísland í efsta sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) um kynjajafnrétti og hefur verið það 11 ár í röð.1 Það er því merkilegt að kynjahlutfall nemenda í læknisfræði njóti enn svo mikillar athygli, mörgum árum eftir að raunverulega breytingin átti sér stað. Læknastéttin hefur þó óneitanlega tekið miklum breytingum á síðustu áratugum eins og samfélagið sem hún er hluti af. Framfara- skref hafa verið tekin til þess að bæta vinnu- umhverfi lækna með tilliti til jafnréttis- sjónarmiða samhliða fjölgun kvenlækna. Þetta er þó enn krefjandi umhverfi, sérstaklega fyrir læknanema sem eru að stíga sín fyrstu skref í klíník. Í þessu nýja umhverfi er auðvelt að líða eins og litlu, óreyndu peði. Í þokkabót er í læknisfræði lögð talsverð áhersla á frumkvæði og dugnað. Á erilsömum dögum er nauðsynlegt að hafa sig í frammi til þess að gleymast ekki og tryggja að lærdómstækifæri nýtist. Það hafa komið tímar þar sem höfundar hafa velt fyrir sér: „Hafa konur sömu tækifæri og karlar þegar kemur að lærdómstækifærum á spítalanum?” Erfitt er að svara fyrrnefndri spurningu hispurslaust játandi. Bæði er það okkar reynsla að við stelpurnar látum almennt minna í okkur heyra sem getur orðið til þess að við missum af tækifærum og svo að þegar við biðjum um tækifæri fáum við frekar höfnun. Eftir mörg samtöl við nokkra bekkjarbræður okkar höfum við komist að því að þeir virðast oft komast fyrr heim úr verknámi og síður festast í deildarvinnu. Það kom okkur mjög á óvart því við, í okkar örvæntingarfullu tilraunum til að sýna frumkvæði og biðja um námstækifæri, höfðum hangið langtímum saman á spítalanum til að ganga í augun á deildarlæknum og misst svefn yfir að hafa mögulega fallið í áliti hjá sérfræðingi. Þörfin fyrir að sanna sig virtist einfaldlega ekki vera jafn mikil meðal þeirra og margra bekkjarsystranna. Velta mætti fyrir sér hvort þörfin fyrir að sanna sig komi innan frá eða hvort við stelpurnar þurfum einfaldlega að gera meira til að fá sama gæðastimpil. Kannski urðum við fyrir of miklum áhrifum af fyrir myndum okkar í æsku og fetum í fót- spor hinnar bráðgáfuðu og samviskusömu Hermione Granger sem alltaf fylgir reglum en fellur þó í skugga hins útvalda Harry Potters. Nei, því miður er það ekki bara tilfinning að konur þurfi að gera meira til að ná jafn langt og karlkyns kollegar þeirra. Ein nýleg rannsókn sýndi að tilvísunum frá læknum til kvenkyns skurðlækna fækkar töluvert eftir slæma útkomu í aðgerð á meðan þeim fækkar lítið eða jafnvel ekkert eftir slæma útkomu í samskonar aðgerðum hjá karlkyns skurðlæknum. Ekki nóg með það heldur fækkar tilvísunum frá lækni til allra kvenkyns skurðlækna eftir slæma útkomu hjá einum kvenkyns skurðlækni á meðan slæm útkoma eins karlkyns skurðlæknis hefur ekki áhrif á tilvísanir á aðra karlkyns skurðlækna.2 Þegar kennari í fyrirlestri varpar fram spurn- ingu má einnig sjá hvernig stelpurnar hvísla svarið sín á milli og kannski réttir einhver upp hönd en svarið kemur nánast alltaf með kalli frá einhverjum af bekkjarbræðrunum. Vanmeta stelpur í læknadeild þekkingu sína eða ofmeta strákar sína þekkingu sem veldur því að þeir fá fleiri tækifæri? Í gegnum tíðina hafa rannsóknir bent til þess að munur á einkunnum milli kynja eykst ef dregið er frá fyrir röng svör í krossaprófum.3,4 Konur sleppa því frekar að svara ef dregið er niður fyrir rangt svar og það kemur þá niður á einkunn. Það virðist vera sem konur treysti þekkingu sinni síður og taki færri áhættur. Í flestum prófum í læknanáminu við Háskóla Íslands er dregið frá fyrir röng svör. Það er ekki gert í inntöku prófinu í læknisfræði. Saga íslenskra kvenna í læknisfræði er meira en 100 ára gömul. Brautryðjandinn Kristín Ólafsdóttir var fyrsta konan til að útskrifast sem læknir á Íslandi en það var árið 1917. Hún var jafnframt fyrsta konan til þess að útskrifast úr Háskóla Íslands. Fyrsti kvenkyns prófessor Háskóla Íslands var einnig við læknadeild en það var Margrét Guðnadóttir. Konur í læknadeild voru því í fararbroddi þegar kemur að menntun kvenna á Íslandi og framgangi innan fræðasamfélagsins. Miðað við þetta forskot á aðrar greinar mætti ætla að læknasamfélagið væri í fararbroddi hvað varðar jafnrétti kynjanna og framsækið hugarfar. Þvert á móti er kynferðisleg áreitni álitin vera sérstaklega viðvarandi vandamál á sviði læknisfræðinnar og jafnvel meira vandamál en á öðrum sviðum vísinda.5 #Metoo hreyfingin varpaði ljósi á þá samfélagslegu meinsemd sem kynferðisleg og/eða kynbundin áreitni og/eða ofbeldi er og tóku konur innan læknastéttarinnar virkan þátt í þeirri umræðu. Þegar kemur að málefnum er varða jafnrétti kynjanna er af ótal mörgu að taka. Tína mætti saman efni fyrir óteljandi greinar um áreitni bæði frá samstarfsfólki og sjúklingum, stöðu- og launahækkanir, barneignir, kvenlíkamann í læknavísindum og svo mætti lengi telja. Við látum hins vegar hér við sitja. Á síðustu 100 árum hefur mikið unnist en betur má ef duga skal og breyting verður ekki nema með opinni umræðu. Þótt Ísland hafi fengið heiðurstitilinn jafnréttisparadís er ekki þar með sagt að allri baráttu sé lokið. Í þeirri baráttu verðum við öll að leggja hönd á plóg, óháð kyni. Ekki spyrja: „Eru bara konur í læknisfræði?“ ef þú ert ekki til í að taka umræðuna alla leið. Hættum að leggja áherslu á veru kvenna í læknisfræði og bjóðum þær frekar velkomnar í klíníkina. Kærar þakkir til skrifstofu læknadeildar fyrir að taka saman gögn um kynjahlutfall nem- enda í læknisfræði og kynjahlutfall kennara við læknadeild. 1. Global Gender Gap Report 2020, 2019. 2. Sarsons, Heather. “Interpreting Signals in the Labor Market: Evidence from Medical Referrals”. Working Paper, Harvard University, 2017. 3. Bathiga, Katherine. Gender Differences in Willingness to Guess. Management Science 60, nr. 2 (2013): 4-7. doi: 10.1287/mnsc.2013.1776. 4. Coffman, Katherine B., Klinowski, David. “The Impact of Penalties for Wrong Answers on the Gender Gap in Test Scores”. Working Paper, Harvard University, 2018. 5. Choo, Esther K., Byington, Carrie L., Johnson, Niva-Lubin, Jagsi, Reshma. “From #MeToo to #TimesUp in health care: can a culture of accountability end inequity and harassment?”. The Lancet 393 (2019): 499-502. doi: 10.1016/S0140-6736(19)30251-X. Heimildir:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.