Læknaneminn - 01.04.2020, Síða 99

Læknaneminn - 01.04.2020, Síða 99
R it rý n t e fn i S ke m m ti e fn i o g p is tl a r 9 9 Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir Mamma, kærasta, dóttir, systir, vinkona, listfræðingur, verkefnastjóri hjá Lands- samtökunum Þroskahjálp og baráttu kona fyrir réttindum fatlaðs fólks. „Enginn myndi lýsa Karinu sem veikburða: þetta var ekki fyrirséð, hún var ekki minna virði en annað fólk. Dauði hennar var ekki óhjákvæmilegur, var okkur ekki léttir, er ekki blessun.“ Svo skrifar breski leikarinn  Rory Kinnear í The Guardian á dögunum, um þá sorglegu lífsreynslu að missa fatlaða systur sína, Karinu, úr COVID-19. Hann kemur hér í orð því sem margt fatlað fólk og aðstandendur þess upplifa á þeim óvissutímum sem nú standa yfir. Það er nefnilega reynsla margs fatlaðs fólks, eins og Kinnear lýsir, að líf þess sé metið óæðra lífi ófatlaðs fólks og að það sé líf sem ekki er þess virði að lifa.  Fatlað fólk er í sérlega viðkvæmri stöðu í neyðar ástandi. Í erlendum miðlum berast okkur fréttir af háu hlutfalli fatlaðs fólks sem veikst hefur af COVID-19, skorti á aðstoð og aukinni jaðarsetningu. Heilbrigðisþjónustu er forgangs raðað, þar sem öndunarvélar og spítala pláss eru af skornum skammti og í slíkum aðstæðum er siðferðispróf lagt fyrir sam félög þegar yfirvöld og heilbrigðis- starfsfólk þurfa að taka ákvörðun um hvernig eigi að haga þjónustunni og í alvarlegustu tilfellunum forgangsraða hverjir fá lífs- nauðsynlega þjónustu.    Í þessum aðstæðum er afar mikilvægt að ófatlað fólk átti sig á þeim fötlunarfordómum sem ofnir eru inn í menningu okkar og undirmeðvitund. Þannig beitir ófatlað fólk mismunun og sýnir fordómafulla hegðun, án þess að ætla sér það. Jaðarsetning fatlaðs fólks og fordómar gegn því birtast þannig með lymskulegum hætti og snúa ekki bara að hatursorðræðu eða aðgengisleysi. Hún birtist meðal annars í því, eins og Kinnear lýsir, að fötlun er álitin harmleikur og óæskileg. Fötlun er ekki hluti af eðlilegri fjölbreytni samfélagsins, heldur ber að laga fatlað og langveikt fólk með öllum tiltækum ráðum. Þetta er svo kallað læknisfræðilegt viðhorf til fötlunar, sem horfið hefur verið frá, og vék það fyrir félagslegri nálgun á fötlun. Með þessu nýja viðhorfi er litið svo á að fötlun sé félagslegt fyrirbrigði. Það sé samfélagið sem valdi fötlun með aðgengisleysi og jaðarsetningu. Fötlun er þannig hluti af fjölbreytni í samfélaginu og að fatlað fólki eigi rétt á að lifa lífi sínu með reisn og njóta sömu réttinda og aðrir borgarar.    Mörg samfélög sem nú standa í ströngu í baráttunni við COVID-19 hafa fullgilt sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í sáttmálanum kemur fram skylda ríkja til þess að huga sérstaklega að vernd fatlaðs fólks í neyðarástandi, rétt fatlaðs fólks til heilsu og bann við mismunun. Það er því ljóst að yfirvöldum ber að vernda fatlað fólk og má ekki neita því um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.    Það er þyngra en tárum taki að hugsa til þess að þegar fatlað fólk í blóma lífsins deyr sé það álitin blessun fyrir það sjálft og aðstandendur þess. Það er álitið óhjákvæmilegt og að fólk sé hvíldinni fegið. Það er rangt að ganga út frá því, frekar en að annað ungt fólk í blóma lífsins sé hvíldinni fegið. Líf okkar er það dýrmætasta sem við eigum og enginn annar getur dæmt um hvort það sé þess virði að lifa. Fatlað og langveikt fólk á innihaldsríkt og hamingjusamt líf þótt við notum hjólastóla, þurfum túlka, notum öndunaraðstoð eða höfum þörf fyrir annars konar stuðning. Við erum foreldrar, börn, systkini, vinir og makar. Við auðgum samfélagið með margvíslegum hætti. Við erum dýrmæt og dauði okkar er ekki blessun. Líf sem er þess virði að lifa?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.