Læknaneminn - 01.04.2020, Síða 117
R
it
rý
n
t
e
fn
i
S
ke
m
m
ti
e
fn
i
o
g
p
is
tl
a
r
11
7
kynnti krabbameins meðferðir út frá klínísku
sjónarhorni á tilfella miðaðan hátt og í
kjölfarið ræddi Huan Song um tengsl álags,
streitu og krabbameina ásamt umfjöllun um
vísindarannsóknina Áfallasögu kvenna.
Vinnustofur ráðstefnunnar voru fimm talsins
og skiptust upp í eftirfarandi umfjöllunarefni:
einkenni krabbameins, skimun fyrir
krabbameini, heilbrigt BMI, bólusetningar
og síðast en ekki síst rafrettur og reykingar.
Markmið vinnustofanna var að ráðstefnugestir
nýttu sem best fróðleik fyrirlestranna og byggju
til auðframkvæmanleg forvarnarverkefni sem
þeir gætu hrint af stað í heimalandi sínu.
Vinnustofunum var vel leiðbeint og umsjón
með þeim höfðu Anna Kristín Gunnarsdóttir,
Hannes Halldórsson, Hjálmar Ragnar
Agnarsson, Jón Magnús Jóhannesson, Kristín
Hulda Gísladóttir, Lára Ósk Eggertsdóttir
Claessen, Sæmundur Rögnvaldsson og Þórdís
Þorkelsdóttir, sem öll fengu mikið lof fyrir
kennslugleði sína og fróðleik.
Á þriðja og síðasta ráðstefnudegi var rætt
um líf með og eftir sjúkdóm. Sigrún Lillie
Magnúsdóttir frá Krabbameinsfélaginu fjall-
aði um algengustu tilfinningar og sálarleg
vanda mál sem fólk upplifir við greiningu eða
eftir krabbamein og krabbameinsmeðferð.
Ráðstefnunni lauk með frábærum fyrirlestri
um starfsemi Krafts frá Huldu Hjálmarsdóttur
og reynslusögu Jónatans Jónatanssonar
um að greinast með krabbamein og vera
í krabbameinsmeðferð. Þessi endir á ráð-
stefnunni veitti læknanemum mikilvæga sýn
í upplifun sjúklinga, skapaði líflegar umræður
og áhuginn leyndi sér ekki.
FINO er einstök ráðstefna fyrir þær sakir að
ráðstefnan snýr ekki eingöngu að fræðslu á
fyrirlestraformi og umræðum. Skipulagning
felst einnig í utanumhaldi skemmtidagskrár til
að efla kynni ráðstefnugesta, sjá fyrir gistingu
og samgöngum ásamt því að elda góðan mat
fyrir hópinn. Menning íslenskra háskólanema
var vel kynnt fyrir ráðstefnugestum með ýmiss
konar leikjum, sundferð, vísindaferð, barbrölti
og galakvöldi sem hristi hópinn vel saman og
skapaði margar minningar. Eir Starradóttir,
matráður skipulagsnefndarinnar, töfraði fram
ljúffengar máltíðir alla ráðstefnuna en Arna
Kristín Andrésdóttir, Ásdís Kristjánsdóttir
og Birgitta Ólafsdóttir eiga sérstakar þakkir
skildar fyrir veitta aðstoð á gala kvöldi ráð-
stefnunnar.
Í síðustu útgáfu Læknanemans var stiklað
á stóru um alþjóðasamstarf læknanema,
norrænt samstarf og FINO hér á Íslandi.
Það er því mjög ánægjulegt að geta greint frá
einstaklega vel heppnaðri ráðstefnu. Á sama
tíma er sérstakt að hugsa til þess að þessi
rótsterka ráðstefnuhefð norrænna læknanema
verði ekki á sínum stað næstkomandi
nóvember í Noregi vegna heimsfaraldursins.
Skipulagsnefndir Noregs og Finnlands slá
þó ekki slöku við og hyggjast halda tvær
ráðstefnur árið 2021 svo gleðin verður tvöfalt
meiri það árið.
Ég vil ljúka þessum pistli á að þakka
skipulagsnefndinni fyrir framúrskarandi
starf, duglegri og metnaðarfyllri hóp tíu
einstaklinga er erfitt að finna. Skipulagsnefnd
FINO þakkar öllum þeim frábæru vísinda-
og fræðimönnum sem komu að ráðstefnunni,
Krabbameinsfélaginu, Engilberti og
Læknadeild fyrir alla sína aðstoð. Síðast
en ekki síst þakkar nefndin styrktaraðilum
ráðstefnunnar innilega fyrir, Nordic Culture
Point, Association of European Cancer
Leagues, Fisk Seafood, Fastus, Vistor, Nettó
og Matstöðin.
Skipulagsnefnd FINO 2019 skipuðu:
Aðalbjörg Ýr Sigurbergsdóttir, Eir
Starradóttir, Helga Líf Káradóttir,
Herdís Hergeirsdóttir, Hjördís Ásta
Guðmundsdóttir, Kristín Haraldsdóttir,
Signý Rut Kristjánsdóttir, Sólveig
Bjarnadóttir, Teitur Ari Theodórsson
og Thelma Kristinsdóttir.LÆ
K
N
IS
F
R
Æ
Ð
I
M
E
M
E
S
ke
m
m
tie
fn
i o
g
pi
st
la
r
11
7