Helgafell - 01.04.1943, Side 98
Afstaða Rússa eftir styrjöldina.
Amertska blaSiS LIFE hefur lagt nokkrar s-purningar, varSandi afstöSu Rtíssa eftir
styrjöldina, fyrir JOSEPH E. DAVIES, sem var sendiherra Bandaríkjanna í Rússlandi á
árunum 7936—38. Hefur hann sagt frá dvöl sinni t Rússlandi í hókinni „A41SSION TO
MOSCOV", sem allmikiS hefur veriS keypt og lesin hér á landi. Fara hér á eftir nokkrar
þessara spurninga, sumar styttar, og svör Davies viS þeim. Tekur hann þaS fram, aS t svör-
unttm komi aSeins fram hans persónulega skoSun á þeim málum, sem um er rætt, og
hafi hann stuSzt vt'S opinber heimildarskjöl og staSreyndir, sem honum séu kunnar.
Getum viS gert ráS fyrir, aS valdhafar
Rússlands séu velviljaSir öSrum þjóSum
og aS þeir óski friSar og öryggis t heim-
inum?
Já. Opinberar yfirlýsingar þeirra um stefnu
sína og framkoma þeirra síðastliðinn áratug
sannar það. Þegar Litvinov sendiherra var
utanríkismálaráðherra Rússlands, barðist hann
manna mest fyrir sameiginlegum aðgerðum
friðarþjóðanna, bæði í Þjóðabandalaginu og
utan þess, til þess að tryggja „frið og öryggi
í heiminum". Hann hélt því stöðugt fram,
að ef einhvers staðar væri strfð, myndu allar
þjóðir flækjast í það, því að „friðurinn væri
ódeilanlegur“. Afstaða Rússa til Abessiníu,
Spánar og Kína og það, að þeir ásamt Frökk-
um féllust á að veita Tékkóslóvakíu lið gegn
þýzkri innrás — allt þetta ber vitni einlægni
þeirra og velvilja. Það er þeim líka sjálfum
hagkvæmast, að hafa frið í heiminum og við
hann.
Hver eru aSalmarkmiS Rússa t utanrtkis-
málum?
.. . Að mínu áliti er stefna rússnesku stjórn-
arinnar í utanríkismálum alveg ljós. Fyrsta við-
fangsefni hennar er að efla öryggi lands síns.
í því skyni hafa Rússar komið sér upp mikilli
vígvél og stórbrotnu iðnaðarkerfi. Rússland er
ekki ræningjaveldi eins og Þýzkaland og Jap-
an. Það var ekki fyrr en eftir valdatöku Hitl-
ers, að farið var að hraða, vegna styrjaldarþarfa,
þeim framkvæmdum í iðnaðarmálum, sem
Stalin hafði áætlað. Þegar öryggi er fengið,
munu Rússar snúa sér að því að efla fram-
farir innan lands, og til þess eru bezt skilyrði,
ef friður er í heiminum. Þess vegna hefur
utanríkismálastefna Rússa alltaf verið sú, að
koma í veg fyrir ófrið. Þegar þeir glötuðu
trúnni á vilja og getu lýðræðisríkjanna í vestri
til þess að ganga í raunhæft bandalag við þá
um að stöðva yfirgang Hitlers, reyndu þeir
enn að vernda öryggi sitt og frið með því að
gera griðasáttmála við Hitler 1939. Það var
ekki samningur um sameiginlega sókn gegn
andstæðingum Þýzkalands. Þar var aðeins sam-
ið um það, að hvorugt ríkið skyldi ráðast á
hitt. Þannig unnu þeir dýrmætan tíma, sem
þeir notuðu af kappi til þess að tryggja sig
gegn óhjákvæmilegri árás . . .
Er trúfrelsi t Rússlandi?
í stjórnarskrá Ráðstjórnarríkjanna (124. gr-)
er ákveðið, að þegnunum skuli heimilt að hafa
hverja þá trú, er þeir óska, svo og að reka
áróður gegn trúarbrögðum. í sömu grein er