Morgunblaðið - 20.11.1999, Síða 63

Morgunblaðið - 20.11.1999, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999 6^ UMRÆÐAN hún yrði góð. Óhætt er að segja að það hafi ræst. Þátttakan fór fram úr öllum vonum því 15. ágúst, þegar skilafrestur rann út, var Gerður Bjai'klind, Óskastundarstjóri búin að taka á móti vel á þriðja hundrað lögum. I dómnefnd keppninnar sitja Arni Scheving, Helena Eyjólfsdótt- ir, Hrafn Pálsson, Óskar Ingólfsson og Svanhildur Jakobsdóttir. Dóm- nefndin fékk í nógu að snúast að fara yfir öll lögin sem bárust, en hún valdi átta lög í undanúrslit. Þau voru síðan útsett af Arna Scheving og hafa verið kynnt útvarpshlust- endum í Óskastundinni að undan- förnu, í flutningi landsþekktra tón- listarmanna sem Arni fékk til liðs við sig. A sunnudaginn kemur, 21. nóv- ember, ráðast úrslit danslagak- eppni árs aldraðra á skemmtun sem haldinn verður á Broadway. Þar verða lögin átta flutt og dóm- nefnd og gestir velja þrjú bestu lög- in. Þá verður hulunni svipt af laga- höfundunum, en eins og vera ber kepptu þeir allir undir dulnefnum, og verðlaun verða veitt fyrir vinn- ingslögin þrjú. Boðið verður upp á skemmtiatriði af ýmsu tagi og dag- skránni lýkur með stórdansleik þar sem KK-sextettinn leikur fyrir dansi. Þar sem þessi skemmtun er síðasti opinberi viðburðurinn sem framkvæmdastjóm árs aldraðra stendur íyrir, var ákveðið að nota þetta tækifæri til að veita viður- kenningar þeim sem hvað mest hafa lagt af mörkum á ári aldraðra og mun Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra afhenda þær. Skemmtunin er ætluð öllum sem áhuga hafa á dansi og söng. Alþjóðlegt ár aldraðra er senn á enda. Lok þess eiga hins vegar ekki að marka endalok heldur fremur upphaf að víðtækri umræðu og að- gerðum í málefnum aldraðra. Og umræðan á ekki eingöngu að snúast um stöðu aldraðra eins og hún er núna, heldur einnig um framtíð okkar sem stefnum að því að verða gömul þegar fram líða stundir. Það vill svo til að hagsmun- ir aldraðra eru ekki hagsmunir til- tekins aldurshóps heldur hagsmun- Laugavegi 4, sími 551 4473 ir fólks á öllum aldri. Á árinu hefur verið safnað mikl- um upplýsingum um hagi aldraðra, gerð viðamikil úttekt á lífskjörum þeirra með samanburði við kjör annarra aldurshópa og samanburði við aldraða í nágrannalöndum okk- ar. Einnig hafa verið könnuð við- horf aldraðra til margvíslegra sam- félagsmála og hvernig þeir meta þær aðstæður sem þeir búa við. Að tillögu heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra hefur ríkisstjórnin samþykkt að skipa fimm manna stýrihóp á vegum fjögurra ráðun- eyta til að móta framtíðarstefnu í málefnum aldraðra og mun hópur- inn m.a. byggja á þeim upplýsing- um sem safnað hefur verið á ári aldraðra. Svona í lokin má til gamans velta því fyrir sér hverjir þeir eru sem teljast aldraðir, því þegar allt kem- ur til alls er ellin fremur afstætt fyrirbrigði. Það er ef til vill einfald- ast að telja lifuð ár þegar skilgreina á hvort fólk skuli teljast til aldr- aðra. Hér á landi er jafnan miðað við að við 67 ára aldur sé fólk orðið „gamalt" og á þeim aldri öðlast fólk ákveðin réttindi sem tryggð eru með sérstökum lögum um málefni aldraðra. Hins vegar má e.t.v. segja að svo lengi sem fólk er við bæri- lega heilsu segi aldurinn aðeins hálfa söguna. Þegar upp er staðið reynist fólk fyrst og fremst eins gamalt - eða ungt og það vill sjálft vera láta, eins og fjölmörg dæmi sanna. Eitt slíkt dæmi skal nefnt hér í lokin: Bóndi austur á landi bjó búi sínu með sonum sínum tveimur fram yfir nírætt. Hann var hátt á níræðisaldri þegar hann tækni- væddist og keypti sér traktor. Nágrannar hans furðuðu sig á því að synirnir snertu aldrei traktorinn en faðir þeirra sinnti öllum störfum sem með honum voru unnin. Að- spurður sagði sá níræði að hann treysti ekki strákunum fyrir hon- um. Það var varla von, því strák- arnir voru ekki nema rétt skriðnir yfir sextugt! Höfundur er framkvæmdastjóri framkvæmdastjómar árs aldraðra. Tilboðsdagar - 20-50% afsláttur Hornbað m/nuddi kr. 94.429 Hornbað án nudds kr. 54.352 Baðkar 170x70 cm m/nuddi kr. 83.186 Hitastillitæki - sturtu trá kr. 7.094 - bað og sturtu frá kr. 8.980 Vegghandlaugar frá kr. 3.366 Borðhandlaugar frá kr. 5.688 Handklæðaofnar 76,5x60 cm kr. 9.601 120x60 cmkr. 12.251 181x60 cm kr. 18.227 Heill klefi m/biöndunartæki frákr. 31.749 Sturtuhorn - plast frá kr. 15.694 -glerfrákr. 18.585 Sturtuhurðir stærðir 65-140 cm - glerfrá kr. 13.951 Baðkarshurðir - plast frá kr. 8.085 -glerfrákr. 12.251 Einnar handar tæki - fyrir eldhús frá kr. 5.630 - fyrir handlaug frá kr. 5.630 Opið í dag frá kl. 10-16 Ármúla 21 - Sími 533 2020 J VA-fj'W'/JnXJjW] Bhi Baðkör frá kr. 9.975 Sturtubotnar frá kr. 3.556 WC m/setu frá kr. 10.876 Stálvaskar frá kr. 4.343 Skolvaskar plast - frá kr. 3.513 Blöndunartæki frá kr. 1.951 Ddlyfja HEILSUVEFUR Spyrðu lyfjafræðinginn Spurðu fagmanninn ..... um hvaðeina er tengist lyfjum, lyfjameðferð eða heilsuvörum. skoðaðu heilsuvefinn á www.visir.ls
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.