Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
72. TBL. 88. ARG.
LAUGARDAGUR 25. MARS 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tugir þiisunda hlýddu á útimessu Jóhannesar Páls páfa II
Mikilvægt sáttaskref milli
kristinna manna og gyðinga
Jerúsalem, Korazim, Nazaret. AFP, AP, Reuters.
EHUD Barak, forsætisráðherra
Israels, lofaði í gær heimsókn Jó-
hannesar Páls páfa II til ísraels og
sagði hana sögulegt skref í þá átt
að sættir næðust milli kristinna
manna og gyðinga. Þá hlýddu hátt
í 100.000 manns á útimessu páfa á
hæðunum við Galfleuvatn og var
það fjölmennasta messa páfa í pfla-
grímsför hans um Landið helga.
„Ég trúi því að heimsókn páfa til
ísraels sé sögulega mikilvæg,"
sagði Barak að loknum stuttum
fundi með páfa eftir að útimess-
unni lauk. „Þetta hefur verið þýð-
ingarmikið skref í þá átt að sættir
náist milli gyðinga og kristinna
manna og ber heimsókn páfa með
sér mikilvæg skilaboð um frið,“
sagði Barak við fréttamenn og
kvaðst hafa greint páfa frá stöð-
unni í friðarviðræðum Israela við
Sýrlendinga og Palestínumenn.
Útimessa páfa var haldin við
Galíleuvatn þar sem talið er að
Kristur hafi flutt fjallræðu sína.
Messa páfa dró að tugi þúsunda
áhorfenda, kristna menn sem og
gyðinga og múslíma, sem komu
sumir hverjir langt að. Fánar Isra-
els, Líbanons og Palestínu blöktu
hlið við hlið í hæðunum sem sjald-
gæft tákn um sambúð þjóðanna.
Þakkaði múslímum og
gyðingum sérstaklega
Páfi hvatti þá sem á hlýddu til
að sýna sama hugrekki og læri-
sveinarnir forðum. „Það er dásam-
legt að þið skulið vera hér,“ sagði
hann og þakkaði múslímum og
gyðingum sérstaklega fyrir kom-
una. Kristur hefði ævinlega hvatt
fólk til að velja milli góðs og ills.
„Jafnvel nú, þar sem þið standið í
hæðunum, er slegist um hjarta
ykkar, valið er milli góðs og ills - á
milli lífs og dauða,“ sagði páfi sem
hefur jafnan lagt mikla áherslu á
Jóhannes Páll páfi II blessar áhorfendaskarann eftir útimessu í hæðunum við Galfleuvatn í gær, en páfi messaði
á þeim stað sem talið er að Kristur hafi haldið fjallræðu sína.
að auka áhuga ungs fólks á
kaþólskri trú. Páfinn vakti fögnuð
margra sem hrópuðu ýmist: „Lifi
páfinn" eða „Jóhannes Páll annar,
við elskum þig.“
Vikulöng heimsókn páfa til
Landsins helga hefur hvað eftir
annað beint kastljósinu að stjórn-
málaumrótinu sem ríkir í Miðaust-
urlöndum. í dag heimsækir páfi
síðan Nazaret, fæðingarstað
Krists, og hafði sú heimsókn þegar
í gær valdið aukinni spennu milli
kristinna manna og múslíma í
bænum. Deilurnar snúast um
mosku sem reist var nærri þessum
helgidómi kristinnar trúar og vör-
uðu múslímar páfa í gær við að
hafa afskipti af málinu.
Nýr lík-
fundur í
Uganda
Kampala. AFP, AP.
LÖGREGLUMENN í Úganda
hafa fundið a.m.k. 163 lík í gröf-
um á landi dómsdagssafhaðar
sem kennir sig við borðorðin tíu.
Hundruð manna úr söfnuðinum
brunnu inni í kirkju í síðustu
viku og var í fyrstu talið að fólk-
ið hefði sammælst um að svipta
sig lífi. Nú segir lögreglan að um
fjöldamorð hafi verið að ræða.
Jim Muhwezi, þingmaður í
Úganda, sagði í gær að líkin 163
og hugsanlega fleiri hefðu fund-
ist í landi safnaðarins í Buh-
unga, í um 60 km fjarlægð frá
Kanungu þar sem kirkjan
brann. Vitað er að þar brunnu
inni eitthvað á fjórða hundrað
manna að minnsta kosti og
hugsanlega allt að 500 manns.
Muhwezi sagði að svo virtist
sem morðin hefðu verið stunduð
alls staðar þar sem söfnuðurinn
væri með kirkju og líkftmdurinn
nú benti til að skammt væri síð-
an fólkið var myrt. Voru sum
líkanna með snöru um hálsinn.
Lögreglan í Úganda sagði í
gær að Ijóst væri að fólláð í
kirkjunni hefði ekki stytt sér ald-
ur, heldur verið myrt. Hefðu
gluggar og dyr verið negld aftur.
Leiðtogafundur ESB-ríkianna
Netvæðingin
stuðli að hagvexti
Lissabon. AFP, AP.
LEIÐTOGAR Evrópusambandsins
(ESB) hétu í gær í lok tveggja daga
fundar í Lissabon að netvæða efna-
hagslíf aðildarríkjanna í því skyni að
fjölga störfum og gera 3% meðal-
talshagvöxt á næstu árum möguleg-
an.
Þá sagði í drögum að lokayfirlýs-
ingu fundarins, sem var helgaður
tæknivæðingu evrópsks efnahags-
lífs og atvinnusköpun, að ESB setti
sér það takmark að auka samkeppn-
ishæfni sína, framsækni og þekking-
argrundvöll í því skyni að halda uppi
varanlegum hagvexti.
„Milljónum manna verður fundin
atvinna í Evrópu,“ hefur AFP-
fréttastofan eftir Alistair Campbell,
talsmanni Tonys Blairs, forsætis-
ráðherra Bretlands. Campbell sagði
leiðtogana hafa ákveðið að skapa 20
milljónir nýrra starfa á næstu 10 ár-
um, en um 15 milljónir manna teljast
atvinnulausar í ESB-ríkjunum 15.
Sú stefnumörkun, að netvæða
Evrópu hraðar en raun hefur verið
á, endurspeglar áhyggjur af forskoti
Bandaríkjamanna á þessu sviði og
komu leiðtogarnir sér saman um
fjölda aðgerða, til að tengja Evrópu-
búa hraðar og betur við Netið.
Áiyktun ESB varðandi Austurrfld
stingur í stúf við bjartsýnar horfur í
efnahags- og atvinnumálum. Leið-
togar 14 aðildarríkja staðfestu að
ekki yrði hvikað frá pólitískum ein-
angrunaraðgerðum gegn Austurríki
í mótmælaskyni við að þar hafi verið
mynduð ríkisstjórn með hinum um-
deilda Frelsisflokki.
Forsetakosningar fara fram í Rússlandi á morgun
Pútín heitir þjóð sinni
sterku Rússlandi
Moskvu. AFP, Reuters.
VLADÍMÍR Pútín, settur forseti
Rússlands, brá upp mynd af endur-
reistu, sterku og auðugu Rússlandi
er hann hvatti kjósendur til að greiða
atkvæði í forsetakosningunum sem
fram fara á morgun, sunnudag.
Þá staðreynd, að aðfaranótt kjör-
dags verður klukkan í Rússlandi
stillt á sumartíma, notaði Pútín í
ávarpi til þjóðarinnar til að lýsa með
nánast skáldlegum hætti þeim nýju
tímum sem hefjast myndu með kosn-
ingunum. Hvatti hann kjósendur til
að láta ekki áhugaleysi spilla þessu
tækifæri, en samkvæmt kosninga-
lögum teljast kosningamar ógildar
verði kjörsókn ekki yfir 50%.
Pútín notaði tækifærið líka til að
vekja athygli á hlutverki sínu í
Tsjetsjníu-stríðinu, en enginn vafi
þykir leika á að vinsældir stríðsins
meðal rússnesks almennings eiga
þátt í vinsældum Pútíns. Yfirstjóm
rússneska hersins í Tsjetsjníu til-
kynnti í gær, að sérstakar öryggis-
ráðstafanii- yrðu í gildi í sjálfstjóm-
arlýðveldinu yfir helgina, til að
tryggja að skæruliðar spilltu ekki
fyrir framkvæmd kosninganna með
hryðjuverkum.
Fengi yfir helming atkvæða
Samkvæmt skoðanakönnunum
gæti Pútín fengið yfir helming at-
kvæða í fyrri umferð kosninganna,
en verði fylgið minna verður efnt til
annarrar umferðar hinn 16. aprfl.
Grígorí Javlinskí,
forsetaframbjóð-
andi frjálslyndra
miðjumanna, lýsti
því yfir í gær að
hann gerði sér
vonir um að ná
meira fylgi en
Gennadí Zjúgan-
ov, frambjóðandi
Vladimír Pútrá kommúnista, sem
skoðanakannanir benda til að mæti
Pútín í síðari umferðinni, nái sá
síðastnefndi ekki hreinum meiri-
hluta strax í þeirri fyrri. En Javlinskí
er einungis spáð um 5% fylgi.
Gengi verðbréfa í kauphöllinni í
Moskvu hækkaði um heil 5,3% í gær,
sem er stærsta stökk upp á við sem
vísitalan hefur tekið frá því fyrir
hrunið mikla í maí 1998. Hefur rúss-
neska hlutabréfavísitalan hækkað
samtals um 11,4% í vikunni. Er þetta
rakið m.a. til þess að kauphallarrýn-
ar telja öruggt að Pútín verði forseti
næstu fjögur árin, og að horfur á
stöðugleika í efnahagsmálum séu
góðar með hann við stjómvölinn.
Microsoft leggur
fram sáttagerð
Washington. AP, AFP.
MICROSOFT-tölvufyrirtækið hefur
lagt fram sáttatillögu í máli stjórn-
valda á hendur fyrirtækinu, að því er
viðskiptavefur bandarísku sjón-
varpsstöðvarinnar CNN hefur eftir
þremur aðilum sem kunnugir em
samningaferlinu.
Bandarísk stjórnvöld em nú sögð
yfirfara ýmis atriði sáttatillögunnar,
sem sögð er „tæknilega flókin“, en
hvorki starfsmenn dómsmálaráðu-
neytisins né yfirmenn Microsoft hafa
viljað tjá sig um málið. Að sögn
ónafngreindra heimildarmanna eru
lögmenn ríkisins nú hins vegar að
hverfa frá hugmyndum um skiptingu
Microsoft í smærri einingar til að
koma í veg fyrir einokunaraðstöðu
fyrirtækisins. Ríkisstjórnin muni
þess í stað reyna að setja takmörk
við hvaða tæknibúnaði Microsoft
verði leyft að bæta við Windows-for-
rit sitt.
MORGUNBLAÐH) 25. MARS 2000
690900
090000