Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 25. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Stjórn Össurar hf. telur fálagið geta verið í forystu í heimsþróuninni á stoðtækjamarkaði
Stöðugleiki ein af
meginforsendum
velgengninnar
STJÓRN Össurar hf. telur að félagið
hafi alla burði til að vera í forystu í
þeirri þróun sem er að verða á stoð-
tækjamarkaði í heiminum, en mark-
aðurinn, sem hefur verið mjög
dreifður og einkennst af mörgum og
litlum fyrirtækjum, er að mati
stjórnenda Össurar hf. að þéttast og
fyrirtækin að verða færri og stærri.
Pétur Guðmundarson, stjómar-
formaður Össurar hf., sagði í ræðu
sinni á aðalfundi félagsins sem hald-
inn var í gær að nýleg kaup Össurar
hf. á bandaríska fyrirtækinu Flex-
Foot undirstrikuðu þetta álit stjórn-
ar félagsins, en með þeim kaupum
væri Össur hf. orðinn annar stærsti
framleiðandi stoðtækja í heiminum.
Ennþá sé þó stærðarmunurinn á
Össuri hf. og stærsta fyrirtækinu í
þessum iðnaði mikill.
,jVð mati stjórnenda eru stækkun-
armöguleikar miklir og bjóðist góðir
fjárfestingarkostir í öðrum félögum í
þessari grein mun stjórn Össurar
skoða það af alvöru. Komi til þess er
líklegt að það verði fjármagnað að
minnsta kosti að einhverju leyti með
hlutafjáraukningu," sagði Pétur.
Heildartekjur Össurar hf. á síð-
asta ári voru 1,3 milljarðar króna og
var veltuaukning frá fyrra ári 26%.
Hagnaður ársins var 139 milljónir
króna en 79 milljónir árið áður.
Nánast algjörlega háð
erlendum mörkuðum
Viðskipti Össurar hf. fara nánast
eingöngu fram á erlendum mörkuð-
um og sagði Pétur þetta þýða að öll
viðmið yrðu að vera samkvæmt því
sem þar gerðist en ekki hér á landi.
Ef fyrirtæki eins og Össuri hf. væri
boðið upp á aðrar og verri aðstæður
en bjóðast þeim fyrirtækjum sem
Össur keppir við væri ekki hægt að
stunda þann atvinnurekstur sem fé-
lagið stundar. Aðrir myndu einfald-
lega taka yfir og félagið yrði undir í
samkeppninni.
„Ein af meginforsendum vel-
gengni félagsins hefur einmitt verið
sú staðreynd að hér hefur ríkt stöð-
ugleiki og umhverfi atvinnurekstrar
er svipað og þekkist annars staðar.
Áframhaldandi velgengni er þess
vegna að stöðugleiki haldist, bæði á
vinnumarkaðinum og í efnahagslíf-
inu. Ekki er langt síðan vinnudeilur
blöstu við og þó svo að þær tengist
ekki starfsfólki félagsins beinlínis er
Ijóst að rekstraröryggi minnkar til
muna ef til vinnudeilna kemur. Þetta
ástand er mun erfiðara fyrir fyrir-
tæki eins og Össur hf., sem er nánast
algjörlega háð erlendum mörkuðum
og einungis í samkeppni við erlend
íyrirtæki sem ekki búa við slíka
áhættu,“ sagði Pétur.
Morgunblaðið/Sverrir
Pétur Guðmundarson, stjdrnarformaður Össurar hf., í ræðustól á aðal-
fundi félagsins sem haldinn var í gær.
í máli hans kom fram að félagið
grundvallaðist að miklu leyti á sér-
þekkingu starfsmanna og í ljósi þess
hefði stjóm félagsins markað þá
stefnu að nýta svonefnda kauprétt-
ar- eða vilnunarsamninga í því skyni
að halda í og laða að lykilstarfsmenn,
bæði hérlendis og erlendis, og til að
samtengja hagsmuni hluthafa og
starfsmanna. A aðalfundinum var
samþykkt að auka hlutafé félagsins í
áföngum á fimm árum um allt að 70
milljónir króna til viðbótar fyrri
hækkunarheimildum og þar af 10
milljónir króna með sölu nýrra hluta
til lykilstarfsmanna félagsins. 60
milljónir verða seldar með forgangs-
rétti hluthafa til að gera félaginu
mögulega fjármögnun kaupanna á
Flex-Foot.
Stefna stjórnar Össurar hf. hefur
verið að greiða ekki út arð á meðan
félagið er í örum vexti og því lagði
stjómin ekki tillögur um arðgreiðsl-
ur fyrir aðalfundinn. Stjórn félagsins
var endurkjörin á fundinum, en hana
skipa Pétur Guðmundarson, Gunnar
Stefánsson, Kristján Ragnarsson,
Sigurbjörn Þorkelsson, Þorkell Sig-
urlaugsson og Össur Kristinsson.
Samkeppni íslenskra og erlendra trygfflngafélaga rædd á aðalfundi Sjóvár-Almennra
Sambærileg' starfs-
skilyrði nauðsynleg
SAMKEPPNI innlendra og erlendra
tryggingafélaga á íslandi var gerð að
umtalsefni á aðalfundi Sjóvár-AI-
mennra sem haldinn var í gær.
Stjómarformaður og framkvæmda-
stjóri komu báðir inn á það í ræðum
sínum að nauðsynlegt væri að starfs-
skilyrði innlendra og erlendra trygg-
ingafélaga væm sambærileg og fróð-
legt væri að raunverulegar
afkomutölur erlendu félaganna væm
birtar eins og íslensku félögunum er
skylt að gera.
Benedikt Sveinsson, stjómarfor-
maður Sjóvár-Almennra, sagði að
Sjóvá-Almennar mótmæltu hug-
myndum Fjármálaeftirlitsins um að
ársreikningar íslenskra vátrygginga-
félaga skuli vera með mun meiri upp-
lýsingum en almennt tíðkast í
Evrópulöndum. „Slíkar kröfur em
með öllu óviðeigandi þegar hér era
starfandi erlendir aðilar sem ekki
þurfa að birta opinberlega neinar
upplýsingar um starfsemi sína hér á
landi. Það er mjög mikilvægt að eftir-
iitsstofnanir séu óháðar í sínum störf-
um og gæti ávallt íyllstu sanngimi og
jafnræðis.“
Einar Sveinsson, annar fram-
kvæmdastjóra Sjóvár-Almennra,
rakti afkomu félagsins á síðasta ári.
Varðandi samkeppni á trygginga-
markaði sagði hann að hún hefði farið
vaxandi bæði frá innlendum keppi-
nautum og erlendum aðilum. Hann
sagði rangt að segja að rekstur fé-
lagsins yrði einfaldari með ámnum
heldur yrðu umsvifin þvert á móti
meiri og kröfur ykjust. „Óvönduðum
meðulum er beitt í áróðri gegn inn-
lendu félögunum og starfsemi þeirra
gerð tortryggileg á ýmsa lund á sama
tíma og erlendum aðilum er tekið sem
frelsandi englum. Við búum við opinn
samkeppnismarkað og við kveinkum
okkur ekki undan því að taka þátt í
samkeppni. Við gemm hins vegar þá
kröfu að okkur séu sköpuð sambæri-
leg starfsskilyrði og okkar keppi-
nautar búa við,“ sagði Einar m.a. í
ræðu sinni.
Benedikt gerði breytingu á fjár-
magnsmarkaði að umtalsefni; hugs-
anlega sameiningu viðskiptabanka og
að vandi fylgdi óljósu eignarhaldi á
sparisjóðunum og þar með ábyrgð á
þeirra störfum. „Von er að spurt sé
hver staða vátryggingafélaganna
verði í þessu nýja umhverfi. Fyrir
nokkmm áram urðu skilin á milli
vátrygginga og annarrar fjármála-
starfsemi óljósari vegna þess að
heimildir vora rýmkaðar til starfsemi
beggja aðila. Þar má því búast við
meiri sköran á komandi áram. Þess
verður þó að gæta að niðurstaðan
verði ekki sú að allir þvælist af van-
mætti í öllum tegundum viðskipta án
þess að gera nokkuð vel. Að því kann
að koma að náin tengsl eða sameining
þurfi að vera á milli banka og trygg-
ingafélaga og verði svo er ljóst að eðli
viðskiptanna muni að einhverju leyti
breytast."
Neysluverðsvísitala hefði átt að
lækka vegna bílatrygginga
Iðgjaldahækkanir komu aðeins að
litlu leyti inn í neysluverðsvísitölu á
árinu 1999 en Benedikt sagði að raun-
veralega hefði neysluverðsvísitala átt
að lækka á árinu 1999 vegna öku-
tækjatrygginga, væri því sjónarmiði
fylgt út í hörgul að „þegar neytendur
fengju meira fyrir sinn snúð væri
ekki um raunveralega hækkun að
ræða“. En hækkun greiddra bóta
varð mun meiri en hækkun greiddra
iðgjalda á árinu 1999.
Benedikt ræddi um afleiðingar
nýrra skaðabótalaga fyrir trygginga-
félög. Hann sagði að með nýjum
skaðabótalögum hækkuðu slysabæt-
ur mjög mikið en sú breyting hefði að
litlu leyti komið fram í bótagreiðslum
enn sem komið væri. „Þetta er í ann-
að sinn á rúmlega þremur áram sem
lögunum er breytt með þessum hætti.
Það liggur í hlutarins eðli að ef bætur
vegna slysa hækka, þá er það kostn-
aðarhækkun sem ekki verður mætt
öðravísi en með hækkun iðgjalda.
Þess vegna var það sérstætt að þeir
sem stóðu að lagabreytingum fóru
fremstir í flokki þeirra sem gagn-
rýndu vátryggingafélögin þegar þau
hækkuðu iðgjöld um 30-40% síðast-
liðið vor,“ sagði Benedikt.
Hann sagði vátryggingafélög oft
eiga undir högg að sækja í þjóðfélags-
umræðunni og að það væri umhugs-
unarefni hvernig vátryggingafélag
gæti komið þeirri grandvallarhug-
mynd til skila til almennings að eðli
vátrygginga er að miðla kostnaði af
óhöppum milli allra þeirra sem bera
áhættu og að neytendur sitja beggja
megin borðsins, þ.e. greiða iðgjöldin
og fá tjónabætumar.
þrádlaus
í einu tæki
besta m
báð^®
ERICSSON
mmm
NÝHERJI
Skaftahlíð 24 ■ 105 Reykjavík
Simi: 569 7700 ■ Fax: 569 7799
www.nyherji.is
Nýherji kynnir byltingu í símamálum fyrirtækja sem sparar stórar
fjárhæðir í rekstri, GSM síma frá Ericsson sem einnig hefur virkni
þráðlauss innanhússsíma. Þegar hringt er úrsímanum innan fyrirtækis
ber það engan kostnað. Ef hringt er innanhúss í númer utan fyrirtækis
færast símtöl gegnum innanhússsendi sem venjuleg innanbæjarsímtöl.
Utan fyrirtækis virkar hann sem venjulegur GSM sími. Hann býður því
frelsi farsímans og leysir af hólmi símtæki fyrir innanhússnotkun, auk
þess að lækka símreikninginn umtalsvert. Vertu í sambandi hvar sem
er á ódýrasta máta.
Sláðu á þráðinn og kynntu þér rakinn sparnað!
Ericsson THB88
Þyngd: 220 g með rafhlöðu ■ Stærð: 130 x 49 x 23 mm ■ Stór3 llnu skjár ■ 100 númera minni I síma ■ 100 númera minni á korti ■ GSM taltími 4 klst, biðtlmi 42 klst ■ DECT taltími 15 klst,
biðtími 47 klst ■ Innrautt tengi