Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 33
LISTIR
Halló
Helsinki!
MYIVDLIST
Amldyri Norræna
hússins
LJÓSMYNDIR &
FATNAÐUR-ELLEFU
HÖNNUÐIR &
LJÓSMYNDARAR
Til 26. mars. Opið daglega
frákl. 9-18.
ELSKU Helsinki heitir sýning
þar sem ungir finnskir hönnuðir
og ljósmyndarar leiða saman
hesta sína. Listamennirnir eru all-
ir fæddir eftir 1970, en eru þegar
komir vel á veg með að marka sér
ákveðna braut, enda standa Finn-
ar einstaklega vel að vígi þegar
kemur að fatahönnun og ljós-
myndun. Hvort tveggja eru grein-
ar sem hvíla á gömlum merg og
njóta almennrar hylli í Finnlandi.
Einkenni finnskrar fatagerðar
er látleysi og einfalt snið.
Ungmennin sjö eru engin und-
antekning, og þó má sjá sterka
tilvísun til þjóðlegs fatnaðar án
þess að þær tilvísanir ali á skraut-
girni, eða höfundarnir fari offari.
A miðju gólfi stendur gína íklædd
nýtísku hlífðarfatnaði, en bakvið
grillir í sitjandi kvengínu í afar
einföldum fatnaði. Það er einhver
sérstæður og sameiginlegur stíll
sem einkennir tilraunir sjömenn-
ingana, án þess að þessi sameigin-
legu einkenni meini hverjum og
einum að tjá sig persónulega.
Sami einfaldi framgangsmátinn
einkennir ljósmyndarana fjóra.
Hér má fmna nærfærnar en nær-
göngular myndir Maarit Hohteri
af ungmennum í Helsinki. Höf-
undurinn líkir myndum sínum við
Gínurnar í anddyri Norræna hússins eru á sýningunni „Elsku Helsinki'
dagbók gerða af ungu fólki við
aldamótin. Hohteri reynir að nota
ljósmyndina gegn lygi auglýsinga-
myndarinnar, sem aldrei getur
brugðið upp sannri mynd af
mannlífinu, hinu daglega hvers-
dagslífi.
Nina Patilá er býsna nærri
henni að inntaki með myndum
sínum af ungmennum og lífi
þeirra í Helsinki. Það eru vinir
hennar sem mynda kjarnann í
þessari portrettmyndasyrpu úr
borgarlífinu. Kati Rapiakitekur
fyrir merkilegt samspil sveitar og
borgar. Annars vegar er það nátt-
úran sem leitar á borgina og neit-
ar að hopa nema með valdi. Eins
er kaldhæðnisleg úttekt hennar á
náttúrunni í lífi borgarbúans. Það
er öðru fremur gegnum sjónvarp-
ið sem íbúar Helsinki upplifa sig
sem náttúrubörn.
Lestina rekur Anna Elina Var-
akas, með fágaðar formfræðilegar
stúdíur af finnskum arkitektúr frá
Helsinki. Það er ungstíllinn - Jug-
end - sem skipar hér verðugan
sess og virkar sem abstraktverk.
Konurnar fjórar ásamt hönnuðun-
um sjö sýna svo ekki verður um
villst að mikill og sérstæður kraft-
ur býr í finnskri list og listiðnaði.
Halldór Björn Runólfsson
ÖRYGGI
KRAFTUR
Grjóthálsi 1 • Sími söiudeildar 575 1210
www.bl.is
ÞÆGINDI
ABS • Tveir loftpúðar • Þriggja punkta beiti í öilum sætum
5 höfuðpúðar • Styrktarbitar í hliðum • 4X4 sídrif
120 hestafla 4 strokka vál / 97 hestafla 2000 cc dísilvél
Vökva- og veltistýri • Fjarstýrð samlæsing og afturrúða
Topplúga • HDC (hallaviðhald) • Þjófavörn • Sjálfstæð fjöðrun
FREELANDER