Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 25. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
^ Vísindavefur Háskóla Islands
Hvað er
gervigreind?
www.opinnhaskoli2000.hi.is
VISINDI
EITT af einkennum Vísinda-
vefsins er mikil fjöibreytni í
svörum. Þarna koma fram fjölmargir ólíkir höfundar á ýmsum
aldri og úr ýmsum fræðigreinum og svara spurningum um
gerólík efni. Höfundarnir eru yfirleitt aliir tengdir Háskóia
Islands með einum eða öðrum hætti en kunna þó að vera
búsettir nánast hvar sem er á jörðinni. Höfundur fyrra svarsins
sem við birtum hér að þessu sinni, Ari K. Jónsson, er fæddur
árið 1968. Hann tengdist fyrst Háskólanum í starfi árið 1985
er hann gerðist aðstoðarmaður við ritvinnslu og fleira slikt.
Þar var beitt þeim brögðum sem þá voru nýjust í almennri
tölvunotkun. Seinna lærði Ari stærðfræði og tölvunarfræði við
Háskóla íslands og tók BS-próf í báðum greinum. Hann hélt
síðan til Bandaríkjanna og tók þar doktorspróf í tölvunarfræði.
Hann vinnur nú hjá bandarísku geimrannsóknastofnuninni
NASA, meðal annars við þróun gervigreindar af því tagi sem
hann fjallar um í svarinu. Höfundur síðara svarsins, Jakob
Smári, er fæddur 1950 og er prófessor í sálarfræði. Hann vann
við klínísk sálfræðistörf á geðdeild Landspítalans um árabil
áður en hann réðst til Háskólans. Fyrir utan hefðbundin
vísinda- og kennslustörf hefur hann ásamt öðrum ritstýrt
tveimur veigamiklum bókum um sálarfræði og skyld efni fyrir
almenning, og skrifað hluta af þeim sjálfur. Þessar bækur eru
annars vegar Sálfræðihandbókin frá 1993 og hins vegar Árin
eftir sextugt frá 1996.
Reuters
Spádómar um hjálpsöm eða illgjöm vélmenni með mikla gervigreind hafa ekki ræst.
Hvað er gervigreind?
SVAR: Orðið gervigreind hefur
verið notað á ýmsa vegu í tímans
rás, en í daglegu tali nú á dögum
er yfirleitt átt við það að tölva geti
skynjað og skilið umhverfi sitt og
síðan tekið eigin ákvarðanir á svip-
aðan hátt og manneskjur. Upphaf
gervigreindar sem rannsóknar-
verkefnis má rekja til ráðstefnu
sem haldin var í Bandaríkjunum
árið 1957 þar sem margir helstu
frumkvöðlar í tölvunarfræðum
komu saman og settu fram markm-
ið og aðferðir um hvernig hægt
væri að þróa gervigreind. Þetta
hefur reynst hið erfiðasta viðfangs-
efni og spádómar um hjálpsöm
(eða illgjörn) vélmenni með mikla
gervigreind hafa ekki ræst. Þrátt
fyrir það hafa miklar framfarir
orðið í gervigreind á þessum tíma,
sem ef til vill bendir til þess að
spádómarnir hafí verið óskhyggja
frekar en raunveruleg markmið.
Til gamans má geta þess að eng-
in ástæða er til að takmarka gervi-
greind við tölvur, heldur er vel
hugsanlegt að gervigreind verði
þróuð með öðrum aðferðum. Hins
vegar eru tölvur ákjósanlegur
kostur til þróunar á gervigreind,
sökum þess hversu auðvelt er að
breyta því hvernig tölva vinnur úr
upplýsingum, einfaldlega með því
að breyta forritinu sem tölvan
keyrir.
I tölvunarfræði er gervigreind
rannsóknarsvið þar sem leitast er
við að þróa aðferðir sem gera tölv-
um kleift að skilja upplýsingar og
nota þær til að taka ákvarðanir,
svipað og mannfólkið gerir. í gróf-
um dráttum má skipta grunnrann-
sóknum í gervigreind í tvo hluta
sem eru þó nátengdir. Annar, sem
segja má að samsvari rökrænni
hugsun, snýst um hvernig sé best
að geyma þekkingu í tölvum þann-
ig að þær geti notað þessa þekk-
ingu til að leysa verkefni, taka
ákvarðanir og bæta við þekking-
una. Hinn snýst um það hvernig
tölva getur skynjað umhverfí sitt,
þar með talið mannfólk, og bætt
þannig við þekkingu sína.
Lítum fyrst á þann hluta sem
samsvaraar rökrænni hugsun.
Markmiðið er að þróa aðferðir til
að geyma upplýsingar á formi sem
tölva getur notað til að leysa
vandamál og komast að niður-
stöðum á svipaðan hátt og fólk
gerir. Það sem meira er, markmið-
ið er að gera þetta þannig að tölv-
ur geti notað sömu aðferðirnar á
mismunandi verkefni og aðstæður.
Við þekkjum vel hvernig ákveðin
forrit geta leyst ákveðin vandamál
mjög vel, en þessi sömu forrit eru
einskis nýt ef vandamálinu er
breytt lítillega. Heimsins bestu
skákforrit eru til dæmis óhæf til
nokkurs annars en að spila skák.
Ýmsar leiðir hafa verið þróaðar
til að geyma og vinna með upp-
lýsingar, með því markmiði að líkja
eftir rökrænni hugsun. Grunnhug-
myndin er þó yfirleitt svipuð: Upp-
lýsingarnar eru geymdar á stöðl-
uðu formi og reglur eru gefnar um
hvernig tölvan geti notað upplýs-
ingarnar til að komast að nýjum
niðurstöðum. Til að leysa verkefni
leitar tölvan að leiðum til að nota
upplýsingarnar ásamt reglunum
um samtengingu þeirra til að finna
lausn á verkefninu.
Annar hluti rannsókna í gervi-
greind snýst um að gera tölvum
kleift að skynja og skilja upplýs-
ingar frá umhverfinu. Þessum
hluta er oft skipt í tvo þætti, tölvu;
sjón og skilning á tungumálum. I
rannsóknum á tölvusjón er
markmiðið að kenna tölvum að sjá
hluti, afmarka þá, ákvarða hvað
þeir eru og hvar.
Að því er varðar skilning á
tungumálum er reynt að gera tölv-
um kleift að skilja ritað eða mælt
mál. Hvort sem um sjón eða mál er
að ræða, þá er ekki nóg að tölvan
geti þýtt upplýsingarnar yfir á
annað form; hún verður að geta
notað upplýsingarnar og unnið
með þær. Skynjun og skilningur
eru því nátengd því hvernig upp-
lýsingar eru geymdar og notaðar.
Þó svo að gervigreind hafi ekki
náð eins langt og vísindaskáldsög-
ur og kvikmyndir hafa gefið í skyn,
þá eru margs konar gervigreindar-
forrit í notkun um allan heim.
Sjálfvirk áætlanagerð, byggð á að-
ferðum þróuðum fyrir gei'vigreind,
er til dæmis notuð í stórum fram-
leiðslufyrirtækjum eins og Boeing.
Gervigreindarforrit eru líka notuð
í hjálparforritum, eins og í Micros-
oft hjálp, svo og í kennsluforritum.
Þetta eru aðeins nokkur dæmi af
ótal mörgum um notkun á gervi-
greind.
Að lokum er vert að minnast á
nýjustu þróunina í gervigreind þar
sem henni er beitt í geimferðum.
Hjá bandarísku geimferðastofnun-
inni NASA hefur verið unnið að
þróun gervigreindarforrita sem
geta stýrt geimfari án afskipta frá
jörðinni. Þetta er ekki eingöngu
gert til þess að spara mannafla,
heldur er gei'vigreind nauðsynleg
til að kanna staði eins og Evrópu,
eitt af tunglum Júpíters, þar sem
hugsanlegt er að líf finnist undir
kílómetrum af ís. í maí 1999, var
stigið stórt skref í þessa átt þegar
gervigreindarforritinu Fjarvitan-
um (Remote Agent) var falin
stjórn geimfarsins Deep Space 1. I
þessari tilraun, sem stóð í tæplega
viku, stjórnaði Fjarvitinn geimfar-
inu án afskipta frá jörðu og tók
eigin ákvarðanir um hvað þyrfti til
að stýra geimfarinu á réttri braut.
Arj K. Jónsson
Hvers vegna verða sumir
feimnir?
SVAR: Þegar spurt er hvort fólk
sé feimið eða ekki svarar að jafn-
aði mjög hátt hlutfall fólks því til
að það sé feimið, eða allt að 40%.
Almennt séð er vafasamt að líta
svo á að dálítil feimni sé endilega
Draumar dauðans
Draumstafir Kristjáns Frímanns
ALLIR erum vér mennirnir mold,
af moldu komnir og til hennar
hverfum við aftur. Ytri tákn dauð-
ans eru flestum augljós en þau innri
vilja vefjast fyrir fólki. Draumarnir
spegla dauðann og gera mörgum
þann harm léttbærari sem ást-
vinamissir er þegar sá hinn sami
skilur tákn drauma sinna og tekur
mark á þeim. En hver eru þessi
tákn? Eru þau persónuleg og bund-
in við dreymandann sjálfan eða
samfélagsleg með víða skírskotun?
í bók Grikkjans Artemidorusar frá
annarri öld eftir Krist eru draum-
tákn dauðans sögð tennur eða
tannmissir og virðast þau lögmál
gilda enn í dag. Sum mannanöfn eru
sögð tákna dauða svo sem: Arnþór,
Broddi, Beinteinn, Helga, Valgerð-
ur og Vigdís enda byggja menn þær
staðhæfingar á reynslu. Einn þeirra
berdreymnu manna sem skráð hafa
drauma sína og gefið út á prenti er
Hallgrímur Jónsson (1875-1961),
rithöfundur og fyrrum skólastjóri
við Reykjavíkuskóla. í kveri sínu
Draumar frá 1954 rekur hann
drauma sína frá öldinni og túlkar
þá, en hann tengir þá marga dauða
eða óförum svo sem:
„Það dreymdi mig aðfaranótt 14.
marz 1928 að Helgi Hjörvar kom
þangað sem ég var, en það hélt ég
vera einhvers staðar á Suðurnesj-
um. Var ég þarna staddur hjá
nokkrum mönnum. Veður Helgi inn
í hópinn og kyssir fjóra eða fimm
þeirra.“
Túlkun Hallgríms. „Hinn 17.
marz 1928 fórst fiskibátur frá Vog-
um með sex mönnum. Helga nafn er
mér fyrir dauða.“
„Það dreymdi mig aðfaranótt 31.
júní 1935, að ég þóttist sjá yfir alla
dali og alla byggð Strandasýslu og
var sýslan öll í skínandi sólarljóma.'
Túlkun Hallgríms. „Bankastjóri
og fyrrum forsætisráðherra
Tryggvi Þórhallssonn andaðist 31.
júlí 1935, en hann hafði verið þing-
maður Strandamanna og unnið sér
vináttu þeirra og traust með ljúf-
mennsku sinni og innileika.“
„Það dreymdi mig aðfaranótt 5.
október 1941 að ég þóttist sjá feg-
ursta stjömumerki himinsins, Or-
ióninn, í norðvestri, voru margar
stjörnur um kring.“
Túlkun Hallgríms. „Togarinn
Sviði fórst í desember 1941; voru á
honum 25 menn.“
Táknin í draumum Hallgríms
virðast persónuleg og túlkanirnar
gætu verið tilviljanir en séu merkin
skoðuð nánar þá fylgir mikil birta
dauðanum að sögn þeirra sem reynt
hafa glímu við manninn með ljáinn.
Orion mun hafa sérstök tengsl við
jarðmenn og stjörnur líkt og
stjörnuhröp vísa til andláts. Koss-
inn er vel þekkt tákn dauðans svo
sem koss Júdasar.
„Draumspök kona“ sendir
draum.
Ég er stödd heima hjá mér og er
að pakka niður fatnaði fyrir dætur
mínar sem eru að flytja að heiman,
þær eru um fermingu í draumnum
og ég er óákveðin um hvernig ég
eigi að skipta fötunum á milli
þeirra. Ég er með íþróttatreyju sem
er frekar dökk en mér finnst hún
falleg, ég hugsa um að J fái hana en
þá geri ég of mikið fyrir hana svo ég
læt K hafa hana, svo er þarna rönd-
ótt peysa síðan þær voru litlar, ég
skoða hana og sé að ég hef bætt inn
í ermarnar en snúningurinn er sá
sami. Ég lít út um gluggann sem
snýr í norðaustur, það er snjókoma
í logni og ég horfi á snjóflyksur sein
eru mjög stórar og breytast í
stjörnur. Ég kalla á dætur mínar til
að sjá þetta undur, þær koma. Hjá
mér er gömul kona og ég er að setja
niður í stóra tösku fyrir hana, í
endahólf set ég augndropa, það eru
þrjár sortir og þá þriðju sem er
þykkur vökvi þekki ég ekki. Konan
segist ekki hafa farið í ferð í 7 ár.
Ég er komin út, það er auð jörð,
grænt og nokkuð hár hóll fyrir enda
hússins en brekka aftar. Ég er að
taka við útilegudóti ofan af þaki. Ég
horfi upp að hólnum, þar er margt
fólk og ég geng af stað og ætla að
kveðja það, þar er hola sem er full
af mold, það er búið að stinga niður
nokkrum sögum með höldin upp úr.