Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 27
ERLENT
AP
Pakistanskir múslimar kveikja í fána Bandaríkjanna í Karachi til að
mótmæla heimsókn Bills Clintons Bandaríkjaforseta.
Clmton ræðir við leiðtoga her-
foringjastjornarinnar í Pakistan
Tekist á
ræði og
íslamabad. Reuters, AP, AFP.
HERFORINGJASTJÓRNIN í Pak-
istan bjó sig í gær undir erfiðar við-
ræður við Bill Clinton Bandaríkjafor-
seta sem fer í stutta heimsókn til
landsins í dag. Yfirlýsingar pakist-
anskra og bandarískra embættis-
manna fyrir heimsóknina bentu til
þess að mikill munur væri á afstöðu
þeirra til lýðræðis og deilunnar um
Kasmír.
Clinton verður aðeins í rúmar fimm
klukkustundir í Islamabad eftir að
hafa verið í fimm daga heimsókn hjá
Indverjum, erkifjendum Pakistana.
Bandarískir embættismenn sögðu
að Clinton hygðist leggja fast að
Pervez Musharraf, hershöfðingja og
leiðtoga herforingjastjómarinnar, að
gefa eftir í deilunni við Indverja um
Kasmír og flýta endurreisn lýðræðis í
Pakistan eftir valdarán hersins í októ-
ber.
Clinton ýjaði fyrr í vikunni að því
að öfl innan pakistönsku stjómarinn-
ar hefðu stutt hreyfingar skæruliða
sem hafa barist í Kasmír en Musharr-
af sagði að ekkert væri hæft í því.
„Enginn í stjórninni er viðriðinn átök-
in,“ sagði hann á blaðamannafundi í
fyrradag. „Ég er algjörlega ósam-
mála þessu.“
Indverjar hafa hafnað því að
Bandaríkjastjóm hafi milligöngu um
viðræður þar sem reynt verði að leysa
deiluna um Kasmír en Musharraf
kvaðst samt vilja að Bandaríkin
gegndu hlutverki „í bakgmnni við-
ræðnanna".
Indland og Pakistan hafa tvisvar
sinnum háð stríð vegna deilunnar um
Kasmír frá því löndin fengu sjálfstæði
fyrir rúmri hálfri öld.
Vilja ekki hafa milligöngu
Háttsettir embættismenn í föru-
neyti Clintons sögðu að Bandaríkja-
stjórn vildi ekki hafa milligöngu í
viðræðum um Kasmír vegna þess að
Pakistanar, sem hafa mikli minni
herafla en Indverjar, myndu líta á
það sem „öryggistryggingu".
„Það er mjög mikilvægt að venja
Pakistana af því hugarfari að þeir
geti hafið átök við Indverja og þjóðir
heims skerist síðan í leikinn,“ sagði
einn embættismannanna. „Ég tel að
þeim finnist þeir geta verið glanna-
legir vegna þess að þeir telja að ríki
heims, einkum Bandaríkin, komi
þeim til bjargar."
Clinton skarst í leikinn í fyrra þeg-
ar hann knúði Nawaz Sharif, þáver-
andi forsætisráðherra Pakistans, til
að fyrirskipa skæruliðum, sem nutu
stuðnings Pakistana, að fara af yfir-
ráðasvæðum Indverja í Kasmír eftir
að þeir höfðu ráðist inn á þau. Við lá
að stríð blossaði upp milli Indlands
og Pakistans vegna innrásar skærul-
iðanna.
Talið er að þessi eftirgjöf hafi
stuðlað að því að herinn steypti
Sharif af stóli og tók völdin í sínar
hendur, afnam stjórnarskrána og
leysti þing landsins upp.
um lýð-
Kasmír
Musharraf tilkynnti í fyrradag að
efnt yrði til sveitar- og héraðs-
stjómakosninga á næsta ári og lofaði
að þeim yrði fylgt eftir með kosning-
um til nýs þings. Hann tilgreindi
hins vegar ekki hvenær þingkosn-
ingarnar ættu að fara fram.
Bandarískir embættismenn sögðu
að áform Musharrafs væru skref í
rétta átt en hann þyrfti að ganga
lengra, efna til þingkosninga sem
fyrst og koma á lýðræði að nýju.
Deilt um kjarnorkumál
Forsetinn hyggst einnig knýja á
ráðamennina í Pakistan um að undir-
rita alþjóðasamninginn um allsherj-
arbann við kjamorkusprengingum í
tilraunaskyni.
Leiðtogi stærsta íslamska stjórn-
málaflokksins í Pakistan, Jamaat-i-
Islami, hvatti hins vegar Clinton til
að reyna ekki að knýja Pakistana til
að gangast undir samninginn. Hann
sagði að flokkurinn hefði staðið fyrir
vikulangri þjóðaratkvæðagreiðslu
um samninginn og hún hefði leitt í
Ijós að meirihluti þjóðarinnar væri
andvígur honum.
Musharraf sagði að stjórn sín væri
að reyna að stuðla að einingu meðal
þjóðarinnar um samninginn og hann
hygðist ekki flýta sér að taka ákvörð-
un í málinu.
Hermdarverk verða einnig á með-
al helstu umræðuefnanna. Búist er
við að Clinton biðji Musharraf að
hafa hemil á hryðjuverkahreyfmgum
í Pakistan og Alganistan.
Bandaríkjastjórn hefur þegar lagt
að Pakistönum að beita áhrifum sín-
um í Afganistan til að telja stjóm
Talebana á að vísa Sádi-Arabanum
Osama bin Laden úr landi til að hægt
verði að draga hann fyrir rétt vegna
ásakana um að hann hafi skipulagt
mannskæðar sprengjuárásir á
bandarísk sendiráð í Afríku árið
1998.
Clinton hyggst ávarpa pakist-
önsku þjóðina í beinni sjónvarps- og
útvarpsútsendingu. Mikill öryggis-
viðbúnaður verður í íslamabad
vegna heimsóknarinnar og flestar
götur borgarinnar verða lokaðar.
Þetta er í fyrsta sinn sem banda-
rískur forseti fer í heimsókn til Pak-
istans frá því Richard Nixon fór
þangað árið 1969.
Pakistan gegndi mikilvægu hlut-
verki í utanríkisstefnu Bandaríkj-
anna í kalda stríðinu, einkum eftir
innrás sovéska hersins í Afganistan.
Bandaríkin studdu Pakistan fjár-
hagslega þegar Mohammed Zia-ul
Haz hershöfðingi stjórnaði landinu
með harðri hendi á níunda áratugn-
um.
Bandaríkjastjórn hætti að veita
landinu aðstoð árið 1990 vegna gmn-
semda um að Pakistanar hefðu smíð-
að kjarnavopn. Hún greip til frekari
refsiaðgerða árið 1988 eftir að Pak-
istanar og Indverjar sprengdu
kjarnorkusprengjur í tilraunaskyni.
AFGREIÐSLUTÍMAR
fflán.- fini. 10.00 til 18.30 / fos. 10.00 til 19.00 / lau. 10.00 til 18.00 / sun. 13.00 til 17.00
UPPIÝSINGASÍMi 588 7788 SKRIISTOFUSÍMI 568 9200