Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 25. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Bjartur í
Sumarhúsum
fluttur úr landi
„ÞETTA gekk mjög vel og viðtök-
ur voru mjög góðar við sýning-
unni,“ sagði Pétur Eggerz, stjórn-
andi Möguleikhússins, um
frumsýningu í fyrrakvöld á nýrri
enskri leikgerð á Sjálfstæðu fólki í
Old Library-leikhúsinu í Mansficld
á Englandi.
Sýningin og leikgerðin er af-
rakstur samstarfs milli breska
ferðaleikflokksins New Per-
spectives og Möguleikhússins í
Reykjavík og taka þrír islenskir
leikarar þátt í sýningunni; Helga
Vala Helgadóttir, Páll Sigþór Páls-
son og Ragnheiður Guðrún Guð-
mundsdóttir og þrír breskir,
Michael Stroebel, Catherine Neal
og Geoff Gibbons. Leikstjóri og
höfundur leikgerðarinnar er
Charles Way, höfundur tónlistar er
Craig Vear og leikmynd gerir
Sarah Salaman.
New Perspectives-leikflokkurinn
er atvinnuleikhópur sem ferðast
um eystri miðhluta Englands, East
Midlands, og hefur höfuðstöðvar
sínar í borginni Mansfíeld. Að sögn
Péturs Eggerz er samstarfíð við
Möguleikhúsið þannig til komið að
Gavin Stride, leikhússtjóri New
Perspectives, hafí haft áhuga á að
hefja samstarf við erlendan leik-
hóp. Eftir lestur Sjálfstæðs fólks á
síðasta ári hafi hann vitað hyað
hann vildi gera og leitað til Islands
eftir samstarfí við leikflokk sem
starfaði á svipuðum forsendum og
hans leikhús. „Möguleikhúsið er
kannski einn af fáum leikhópum
sem sameinar þetta tvennt að eiga
fastan samastað en gera út á leik-
ferðir með sýningar sínar. Þetta er
árangurinn og æfingar hafa staðið
síðan í janúar, “ segir Pétur.
Helga Vala Helgadóttir er einn
íslensku leikaranna í sýningunni
og sú eina sem kemur frá Islandi
þar sem hinir íslensku leikararnir
tveir eru búsettir í Englandi eftir
að hafa stundað þar leiklistarnám
undanfarin ár. Helga Vala sagði í
samtali við Morgunblaðið að þetta
væri góð og skemmtileg reynsla að
taka þátt í þessu og auðvitað væri
talsvert átak að leika á öðru tungu-
máli en sínu eigin. „Þetta samstarf
hefur verið mjög skemmtilegt og
skilað sér í betri sýningu en ella.
Það er ýmislegt í sögunni sem
Englendingamir áttu erfitt með að
átta sig á og við gátum útskýrt fyr-
ir þeim. Á hinn bóginn er leikgerð-
in með öðram áherslum og ber
þess greinilega merki að þar kem-
ur annar skilningur að sögunni.
Þetta er líka mjög skemmtilegt.“
Að sögn Helgu Völu eru 35 sýn-
ingar framundan víðsvegar um
borgir og bæi mið-Englands. „Sýn-
ingum lýkur 13. maí svo þetta
verður stíft en skemmtilegt," segir
hún sem leikur sjálf Rósu, konu
Bjarts í Sumarhúsum, og Hallberu
" 5 S'Á-V
Leikarar í sýningunni á Sjálfstæðu fólki í Mansfield á Englandi.
í seinni hluta sýningarinnar. Ragn-
heiður Guðrún leikur Ástu Sóllilju
ásamt öðrum hlutverkum og Páll
Sigþór leikur Ingólf Arnarson o.fl.
„Við leikum öll fleiri en eitt hlut-
verk og bregðum okkur auk þess í
dýralíki og flytjum tónlistina svo
það er nóg að gera fyrir alla með-
an á sýningunni stendur."
Að sögn Péturs Eggerz er verið
að kanna möguleikana á því að
koma með sýninguna heim til Is-
lands í vor en það mun ekki ráðast
endanlega fyrr en að nokkrum vik-
um liðnum. Væri sannarlega feng-
ur að því að sjá hversu til hefur
tekist með Bjart og Ástu Sóllilju á
breskri grund.
*
Islenskar
kirkjur í
vesturheimi
GUÐMUNDUR Viðarsson hefur
aflað myndefnis og upplýsinga um
íslenskar kirkjur í Vesturheimi og
mun Sólveig Pétursdóttir, dóms- og
kirkjumálaráðherra, opna þessa
ljósmynda- og sögusýningu í Gerðar-
safni í dag kl. 17. Þetta er í fyrsta
sinn sem skipulega hefur verið unnið
að því að safna upplýsingum um
kirkjubyggingar íslensku landnem-
anna í Kanada og Bandríkjunum,
segir í fréttatilkynningu. Sýningin
stendur til 26. apríl og er opin alla
daga, nema mánudaga, kl. 11-17.
Kvintett
í Kaffíleikhúsinu
DJASSKVINTETT Stefáns S. Stef-
ánssonar tenórsaxófónleikara held-
ur tónleika í Kaffileikhúsinu annað
kvöld kl. 21. Á efnisskránni er kraft-
mikill djass. Kvintettinn skipa auk
Stefáns: Birkir Freyr Matthíasson,
Birgir Baldursson, Þórður Högna-
son og Kjartan Valdemarsson.
Tónleikar í
Neskirkju
SKÓLAHLJÓMSVEIT Vesturbæj-
ar heldur tónleika í Neskirkju í dag
kl. 14. Tónleikarnir eru til styrktar
tónleikaferð hljómsveitarinnar til
Spánar í vor. Bæði yngri og eldri
sveit koma fram og þeim til fulltingis
verða Guðbjörn Guðbjömsson ten-
órsöngvari og Amljótur Sigurðsson
pikkólóflautuleikari. Stjórnandi
hljómsveitarinnar er Láms Halldór
Grímsson.
M-2000
Laugardagur 25. mars.
Terror 2000
Þverlistaleg samsýning ungra
finnskra listamanna í Norræna hús-
inu. Sýningin er full af skopi og fár-
ánleika og er hluti af
^ dagskránni Elsku Hels-
Wm inki og stendur til 14.
maí.
www.nordice.is
* Fræðslusetrið kl. 15
Sæ- og vatnaskrímsli
Þoi-valdur Friðriksson flytur er-
indi um sæ- og vatnaskrímsli í
tengslum við dagskrá Fræðaseturs-
ins í Sandgerði, Mannlíf við opið haf.
www.sandgerdi.is
Forskot á sæluna - Kringlukynn-
ingkl. 14
Lúðrasveitin Svanur með kynn-
ingu á tónleikum sem verða í Há-
skólabíói 1. apríl.
www.nt.is/ svanur
www.reykjavik2000.is
Jazz-kvartett
á Múlanum
JAZZ-kvartett 29-2000 spilar á Múl-
anum annað kvöld, sunnudagskvöld,
kl. 21, en Múlinn hefur aðsetur í
Sölvasal Sólon íslandus. Kvartettinn
er undir stjóm Guðmundar Stein-
grímssonar. Á efnisskránni em
djass- og blússtandardar auk fram-
samins efnis frá Birni Thoroddsen.
Sýning fyrir
heyrnarlaus sem
heyrandi börn
Leikhópurinn Draumasmiðjan frumsýnir
nýtt leikrit sem ætlað er yngstu börnunum
frá 1-5 ára. Sýningin er unnin með það fyrir
augum að heyrnarlaus börn geti notið henn-
ar til jafns við heyrandi börn.
ar. Skemmst er að minnast Ávaxta-
körfunnar sem sýnd var við miklar
vinsældir í Islensku óperunni í
fyrravetur og kom út á myndbandi
í haust.
Þá hefur Draumasmiðjan sýnt
Baneitrað samband á Njálsgötunni
í Islensku óperanni frá því í haust
og er sýningum rétt lokið.
Búninga og leikmynd við Eg sé...
gerir María Ólafsdóttir. Tónlistina
hefur Skúli Gautason samið og lýs-
ingu hannar
Alfred Sturla Böðvarsson. Sýn-
ingar verða í Möguleikhúsinu
sunnudagana 2., 9., 16. og 23. apríl
og hefjast kl. 14. Sýningin tekur
um 40 mínútur í flutningi.
„ÉG fékk hugmyndina að því að
gera sýningu fyrir yngstu börnin á
leiklistarhátíð úti í Danmörku,"
segir Margrét Pétursdóttir, leik-
stjóri og höfundur sýningarinnar
Ég sé..., sem Draumasmiðjan
frumsýnir í Möguleikhúsinu við
Hlemm á morgun kl. 14.
Sýningin er ætluð allra minnstu
börnunum, alveg niður í eins árs
gömul segir Margrét og er jafnt
ætluð heyrnarlausum börnum sem
heyrandi. Margrét tekur þó skýrt
fram að sýningin fjalli ekki um
heyrnarleysi heldur sé markmiðið
einfaldlega að gefa heyrnarlausum
börnum kost á að njóta sýningar-
innar til jafns við heyrandi börn.
Til þess að gera þetta mögulegt er
sýningin flutt bæði á íslensku og á
táknmáli og hefur tónlistin verið
útsett með þeim hætti að áhorfend-
ur geta numið hljóðbylgjur í sæt-
um sínum. „Þetta veldur því hins
vegar að við getum ekki ferðast um
með sýninguna heldur sýnum í
Möguleikhúsinu við Hlemm. Við
vonumst til að leikskólarnir geri í
staðinn úr þessu skemmtilega ferð
í leikhúsið fyrir börnin og við tök-
um vel á móti þeim,“ segir Mar-
grét.
Leikritið fjallar um barn sem
skoðar heiminn og uppgötvar árs-
tíðirnar hverja af annarri. „Við höf-
um lagt mikið upp úr hinum sjón-
ræna þætti sýningarinnar með
leikmynd, búningum og ljósum,
eins og gefur að skilja svo allir
njóti hennar jafnt,“ segir Margrét
og bendir jafnframt á að yngstu
börnunum veiti heldur ekki af sjón-
rænni „aðstoð“ því þau eru ekki öll
farin að tala og skilja mælt mál á
öðra ári. Leikarar í sýningunni eru
Skúli Gautason, Elsa Guðbjörg
Björnsdóttir, sem er heyrnarlaus
og talar á táknmáli í sýningunni, og
Ólöf Ingólfsdóttir, dansari og
danshöfundur. „Þau eiga öll stóran
þátt í samningu sýningarinnar
enda höfum við unnið þetta í
spunavinnu,“ segir Margrét.
Draumasmiðjan er leikhópur
sem hefur starfað um nokkurra ára
skeið og sett upp nokkrar sýning-
Morgunblaðið/Sverrir
Á haustin falla laufin létt. Skúli Gautason, Elsa Guðbjörg Björnsddttir
og Ólöf Ingdlfsddttir leikarar.
LISTMUNAUPPBOÐ
ANNAÐ KVÖLD KL. 20.00 Á RADISSON SAS HÓTEL SÖGU
VINSAMLEGA KOMIÐ OG SKOÐIÐ VERKIN í GALLERÍI FOLD,
RAUÐARÁRSTÍG 14 - 16, í DAG KL. 10.00 - 17.00 EÐA Á MORGUN KL. 12.00 - 17.00.
SELD VERÐA UM 100 VERK, ÞAR Á MEÐAL FJÖLMÖRG VERK GÖMLU MEISTARANNA.
ART GALLERY
Rauðarárstíg 14-16,
sími 551 0400.