Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 751
FÓLK í FRÉTTUM
Kunnáttan og krakkarnir
SJONVARP A
LAUGARDEGI
NÚ líður að lokum í spuminga-
keppni skólanna „Gettu betur“. En
sannast mála er að þetta er einn
besti sjónvarpsþátturinn, bæði
upplýsandi og skemmtilegur og til
mikils sóma nemendum og kenn-
urum og skólum landsins. Fólk
ætti bara að reyna á
sjálfu sér að svara
viðstöðulaust erfið-
um spurninginum,
eins og í hraða-
spurningunum og láta sér hvergi
fipast, jafnvel þótt það viti ekki
svarið. Mikið er talað um kennslu-
mál á íslandi og ekki allt sem vit-
urlegast. Vel getur verið að
kennslukerfið þurfi athugunar við,
en það má næstum ljóst vera að
mestur hluti nemenda þarf enga
atferlisskoðun Vonandi er nem-
endum kennt allt sem máli skiptir í
skólum. Lengi hefur það orð legið
á kennarastéttinni, að hún væri
nokkuð einlit, en það sér ekki á
keppendum í „Gettu betur“, að þar
véli um fólk, sem kunni ekki sitt
fag. Má vera að harðvítugt og
langt launaþref kennara hafi lætt
því inn hjá áhorfendum, að kenn-
urum væri margt þynga fyrir
brjósti en kennsla. Stjórnendur
þáttanna hafa verið ágætir og svo
er enn. Mest er þó gaman að sjá
hvað nemendur skemmta sér vel
yfir þeirri þungu lærdómsþraut,
sem þættirnir eru.
Og fyrst við erum að tala um
menntun og vitsmuni er ekki úr
vegi að vikja að stórfróðlegu sjón-
varpsefni, sem birt er á rásinni
Discovery og rás National Geo-
graphic, þar sem stöðugt er verið
að sýna sögulega atburði frá lið-
inni öld, einhverri mestu pólitísku
slysaöld, sem yfir
mannkynið hefur
gengið. Einnig er sýnt
frá fomleifum, dýra-
lífi á Serengetti-slétt-
unni, rannsóknum um himingeim-
inn og því sem vitað er um
dinosaura, en ríkisrásin sýnir nú
þáttaröð, sem nefnist Risaeðlurn-
ar, svo dinosaurum eru gerð skil í
bili. Magir telja að vagga mann-
kyns hafi staðið á Serengetti, og
svo mikið er víst, að þangað sækja
fræðarar með myndavélar sínar ár
eftir ár og í aðra þjóðgarða Afríku.
Það hefðu t.d. margir haft gaman
af að sjá heimildaþátt um Arabíu-
Lawrance í þessu sjónvarpi sl.
mánudagskvöld. Svo mætti lengi
telja. Og vegna þess að sex-líf er
mikið á döfinni í sjónvarpi má
benda á að stundum bregður fyrir
ástalífi gíraffa á þessum náttúru-
lífsrásum
Á sunnudagskvöld sýndi ríkis-
rásin spænsku kvikmyndina
„Frelsishetjur", alveg óborgan-
lega mynd úr Spánarstríðinu, sem
svo sögulega séð er að verða að
einhverju hrottalegasta en mann-
eskjulegasta stríði 20. aldar, þegar
fasistar og nasistar æfðu mann-
drápsvopn sín á spönskum almúga
og aðfluttum kommúnistum. Til
liðs við lýðveldissinna komu svo
nokkrar konur, sem var smalað
saman í gleðihúsi og fengnar byss-
ur og sagt að fara á vígvöllinn.
Myndin, eins og baráttan á Spáni,
gengur ekki alveg upp, en í henni
eru óborganlegir sprettir. Sagt er
að spánska þjóðin hafi horft dolf-
allin á myndina heilt sumar (1998)
og það er næstum hægt að trúa
því. Spánverjar töpuðu sínu lýð-
ræði og það kom ekki aftur fyrr en
falangistar höfðu misst völdin.
Kommúnistar töpuðu á Spáni. Það
var ekki vegna þess að hórurnar
berðust ekki með þeim. Frásagnir
frá þessum tíma sýna að yfirmenn
þeirra voru í eilífri liðskönnun,
eins og heima hjá Stalín. Þeir buð-
ust til og komu í framkvæmd, að
gera Spánverjum einn greiða.
Lýðræðissinnar voru ekki of ör-
uggir um sig og höfðu áhyggjur af
gullforða Spánar. Kommúnistar
höfðu veður af þessum áhyggjum
og buðust til að taka gullforðann í
skip og flytja hann til geymslu til
Moskvu. Skipið kom til Barcelona
og þar var gullinu skipað um borð.
Spánverjar hafa aldrei séð það síð-
an. Kannski hefur einhverju af
þessu gulli verið síðarmeir eytt í
bókaútgáfu hér á íslandi?
Indriði G. Þorsteinsson
Fréttir á Netinu
vg>mbl.is
-ALL.TAf= eiTTHVAÆJ NYTT~
Fagrar fyr-
irsætur
OFURFYRIRSÆTUR og aðrir sem
eru fyrirmyndir fólks hvað útlit og
vöxt varðar eiga það til að miðla af
reynslu sinni. Cindy Crawford, sem
núverið eignaðist sitt fyrsta barn
hefur gefið út mörg líkamsræktar-
myndbönd þar sem hún segir frá
galdrinum að baki útliti sínu. Nýj-
asta mynd-
band henn-
ar, „A new
dimension^__-
var verð-
launað í
Þýskalandi í
gær en það
hafði selst í
yfir 200
þúsund
eintökum
í landinu og eflaust eflt sjálfstraust
margrar konunnar.
Reuters
Norræna húsið kynnir það nýjasta og magnaðasta frá Finnlandi
Laugardagur 25. mars kl. 21.00
Tónleikar: Aavikko. Aðgangur 1.000 kr.
Sunnudagur 26. mars kl. 16.00
Stuttmyndir, heimildarmyndir, teiknimyndir og ofl
eftir finnsku snillingana Tomi Riionheimo, Mika
Taaniia og Kaisa Penttilá. Aðgangur ókeypis.
Sýningar: TERROR 2000 25. mars-14. maí
Samsýning ungra listamanna frá Helsinki.
Aðgangur 200 kr.
‘■‘TwÁ®** r e y k
NtNNINCAn
JAVÍH
•NNINGARDOftG KVHORU
Rýmingarsala
í Skæði
Tæmum buðina fyrir breytingar.
Allt á að seljast.