Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 29
ERLENT
Brúðkaupsbók fylgir
ykj'ÁÁií
OG FERMINGAR -
ritstjorar jrl
frá og #
?fa uppskriftir
Kennslueldhús - splunkunýjar kjúklingauppskriftir, einfaldar og spennandi
CHEN Shui-bian, væntanlegur
forseti Taívans, ætlar ekki að
lýsa yfir sjálfstæði eyjarinnar
svo lengi sem Kínverjar gera
sig ekki líklega til að ráðast á
landið. Kemur þetta fram í við-
tali, sem japanska blaðið Asahi
Shimbun átti við hann og birti í
gær. Chen segist ekki munu
framfylgja þeirri stefnu taí-
vönsku stjórnarskrárinnai-, að
um sé að ræða tvö ríki og hann
segist hvorki munu efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu um
sameiningu við Kína eða sjálf-
stæði né breyta nafni Taívans.
Kvaðst hann vona, að viðræður
gætu hafist við Kínverja um
þrjú höfuðmál: Bein samskipti,
friðarsamning og gagnkvæmt
traust. Flokkur Chens hafði
það á stefnuskrá sinni fyrir for-
setakosningarnar á dögunum
að efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu um stöðu landsins, en
Chen sagði, að þótt slík at-
kvæðagreiðsla væri meðal
grundvallarréttinda í lýðfrjáls-
um ríkjum, þá lægi ekkert á
henni.
Vilja sýr-
lenska
herinn burt
STÆRSTA dagblað í Líbanon,
An-Nahar, hvatti í gær til, að
Sýrlendingar hæfu brottflutn-
ing alls síns hers frá landinu
eins og kveðið hefði verið á um í
samningum 1989. David Levy,
utanríkisráðherra Israels,
fagnaði áskoruninni en stillti þó
orðum sínum mjög í hóf til að
styggja ekki Sýrlendinga og
spilla íyrir hugsanlegu friðar-
samkomulagi við þá. Sýrlend-
ingar eru nú með 30.000 her-
menn í Líbanon. Upp úr
viðræðum ísraela og Sýrlend-
inga slitnaði í janúar, en þeir
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, og Hafez Assad, forseti
Sýrlands, ætla að hittast í Genf
á morgun og ræða hugsanlegt
framhald þeirra.
Þingkosning-
ar í Irak
KOSIÐ verður til þings í Irak á
mánudag og eru rúmlega þrjár
milljónir manna á kjörskrá í
höfuðborginni, Bagdad, en hátt
í níu milljónir í landinu öllu.
Keppa 522 frambjóðendur um
220 sæti og meðal þeirra er
Uday, elsti sonur Saddams
Husseins forseta. I síðustu
kosningum 1996 náðu allir
frambjóðendur Baath-flokks-
ins, flokks Husseins, kjöri.
Berklar
breiðast út
FJÖLÓNÆMIR berklar
breiðast út með ógnvænlegum
hraða í mörgum löndum og víða
hefur of lítið verið gert til að
berjast gegn þeim. Kemur
þetta fram í nýrri skýrslu frá
Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni,
WHO. Almennt er ástandið
verst í þróunarríkjunum en
faraldurinn er þó vandamál um
allan heim. Af einstökum lönd-
um er staðan einna verst í
Eistlandi þótt það sé yfirleitt
ekki talið til þróunarríkja en
þar valda fjölónæmar bakteríur
18% allra berklatilfella.
Chen vill
bíða með
sjálfstæði
Fyrsta einræktun svína
Greiðir fyrir
ígræðslu líf-
færa í menn
VÍSINDAMENN skoska fyrirtæk-
isins PPL Therapeutics tilkynntu í
síðustu viku að þeim hefði tekist að
einrækta svín. Gylta eignaðist fimm
grísi sem allir höfðu verið ræktaðir
út frá erfðaefni fullorðins svíns. Ein-
ræktunin er liður í tilraunum tfl að
finna aðferð sem geri mögulegt að
græða líffæri úr svínum í menn.
Fyrirtækið PPL Therapeuties
stóð fyrir nokkrum árum að fyrstu
einræktun spendýrs í sögunni, þegar
lambið Dollý var í heiminn borið.
Mun erfiðara mun vera að einrækta
svín en önnur húsdýr, þar sem koma
verður flein en einni fósturfrumu í
legi gyltu til að það takist. I tilviki
annarra húsdýra nægir að koma
einni frumu fyrir. Fyrirtækið hefur
sótt um einkaleyfi á þeirri aðferð
sem notuð var við að einrækta grís-
ina.
Hingað til hafa tilraunir til að
græða líffæri úr svínum í menn mis-
tekist vegna þess að mannslíkaminn
hefur hafnað líffærunum. Vísinda-
menn binda nú vonir við að takast
megi að gera tiltekinn erfðavísi í líf-
færum svína óvirkan og þannig
koma í veg fyrir höfnun í líkama
sjúklinga. Erfðavísirinn veldur því
að mannslíkaminn skynjar ígrætt líf-
færi sem aðskotahlut. Einnig verður
reynt að koma erfðavísum fyrir í
frumum svína sem blekkt geta
ónæmiskerfi mannslíkamans og
þannig komið í veg fyrir höfnun.
Líffæri svína eru svipaðrar gerðar
og líffæri mannslíkamans og eru því
talin ákjósanleg til ígræðslu. Þau
hafa það einnig fram yfir líffæri úr
tegundum sem skyldari ei-u mannin-
um, svo sem öpum, að ekki er talin
hætta á því að sjúkdómar berist með
þeim í menn.
Einræktun fer fram með þeim
hætti að erfðavísar eru fjarlægðir úr
eggfrumum gyltu og erfðavísum úr
ræktuðum frumum annars fullorðins
svíns er komið fyrir í eggfrumunum.
Vísindamenn vonast til þess að tak-
ast megi að græða hjörtu, lungu og
nýru úr svínum í menn innan fárra
ára. Hins vegar er talið ógerlegt að
græða lifur úr svíni í mann. Talið er
að hægt verði að græða líffæri í
menn á ólíkum aldri, fullorðið fólk
fengi líffæri úr fullvöxnum svínum
en börn úr grísum.
Mikill skortur
á líffærum
Á sjötta þúsund sjúklinga bíður nú
eftir líffærum til ígræðslu í Bretlandi
og skortur á líffærum er einnig al-
varlegt vandamál í öðrum löndum.
Hins vegar bendir nýleg bresk skoð-
anakönnun til þess að almenningur
þar í landi sé andvígui- því að erfða-
breytt líffæri úr dýrum séu notuð til
ígræðslu í menn.
Ron James, framkvæmdastjóri
PPL Therapeutics, segir að fon’áða-
menn fyrirtækisins geri sér vonir um
að andstaða almennings gegn
ígræðslu líffæra úr svínum í menn
muni dvína með tímanum. Vitað er
að ræktun svína sem notuð yrðu til
að framleiða líffæri gæti orðið ábata-
samur iðnaður.