Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 59
UMRÆÐAN
Þeir hjá LIU sjá
hlutina öðruvísi
Á DÖGUNUM gerð-
ust þau fáheyrðu stór-
merki, að LÍÚ sá
ástæðu til frumkvæðis
um þátttöku í umræð-
unni um fiskveiðistjórn-
ina. Samtökin hafa til
þessa lengst af talið sér
hagfelldast að vera afar
þegjandaleg í þessum
eftium. Ónot út í ein-
staka menn í stað um-
ræðu um málefnin hafa
alla jaftia verið látin
nægja.
Nú sendi LÍÚ frá sér
fréttatilkynningu, þar
sem efni málsins er svo
sem ekki rætt fremur
en fyrri daginn en því haldið á loft, að
81% kvótans hafi frá 1984 skipt um
eigendur. Fróðlegar upplýsingar um
aðferðafræðina við þennan prósentu-
reikning komu fram í samræðum
Friðriks Amgrímssonar, fram-
kvæmdastjóra LÍÚ, við Guðjón Am-
ar Kristjánsson, alþingismann frjáls-
lyndra, í dægurmálaútvarpi Rásar 2
Ríkisútvarpsins 20. mars. Af þeim
mátti ráða, að þennan prósentureikn-
ing þeirra LÍÚ-manna er ekki alls
kostar að marka. Inni í hlutfallinu eru
t.d. þau líflegu, gagnkvæmu viðskipti,
sem áttu sér stað milli útgerðar-
manna á árunum, sem þau viðskipti
gátu búið mönnum til
20% árlegar afskriftaheimildir og
viðskiptin voru þess vegna alger
málamyndakaup í þeim höfuðtilgangi
að eyða tekjum til skatts. Veiðiheim-
ildirnar skiptu að sönnu um hendur
að forminu til, en ekki í reynd. Sama
máli gegnir um stórútgerð, sem eyk-
ur hlutafé sitt um 10% til að kaupa
kvóta fyrir hið nýja hlutafé. Það telst
fyrst kaup á kvótahlut útgerðarinnar
og síðan sem aðkeyptur kvóti og tví-
reiknastþannig inn í kvótabraskprós-
entu LÍU.
Það er athyglisverðast við þetta út-
spil LÍÚ, að forystumönnum samtak-
anna skuli finnast ástæða til að vekja
sérstaka athygli almennings á því,
hversu kvótabraskið hefur verið víð-
tækt. Af öllu því, sem al-
menningur á íslandi
hefur út á fiskveiði-
stjómina að setja, hefúr
þetta kvótabrask og allt
það, sem því hefur fylgt,
verið henni sárastur
þymir í holdi. Skoðana-
kannanir hafa linnu-
laust sýnt, að 75% þjóð-
arinnar eru andvíg
þessu kvótabraski, 49%
hennar mjög andvíg
skv. nýlegri mælingu.
Sama könnun sýnir heil
3,8% mjög íylgjandi nú-
verandi fiskveiðistjóm.
Fiskimenn, sem margir
era nauðugir látnir
greiða fyrir braskið, era heldur ekki
par hrifnir og hafa æmar ástæður til.
Á því er enginn vafi, að stór hluti
fylgjenda stjórnarflokkanna trúðu yf-
Kvótinn
Mikið er það mannvit,
--------------------7-7
sem ræður stjórn LIU
að sjá þann kost einan
við stjórn fískveiða,
segir Jón Sigurðsson,
sem er þvert ofan í
viðhorf mikils meiri-
hluta almennings.
irlýsingum formanna þeirra fyrir síð-
ustu kosningar, skildu þær sem loforð
um sættir við þjóðina í þessu um-
deilda efni og kaus í samræmi við það.
Einhveijir vora nógu grannhyggnir
til að trúa stunum Framsóknarflokks-
ins um nauðsyn þess að skattleggja
kvótagróðann. Efndimar þekkja allir.
Við þessar aðstæður er ekkert
minna en aðdáunarvert, að LÍÚ skuli
telja það þjóna helst sínum hagsmun-
um að halda kvótabraskinu hátt á loft
Jón
Sigurðsson
ÞITT FE
Maestro hvarsem
ÞÚ ERT
og lofa það hástöfum, væntanlega í
því skyni að hvetja Hæstarétt til þess
að taka ekkert mark á stjómar-
skránni. Og mikið er það mannvit,
sem ræður stjóm LIÚ að sjá þann
kost einan við stjóm fiskveiða, sem er
þvert ofan í viðhorf mikils meirihluta
almennings og stórs hluta sjómanna.
Svo sannarlega hafa margir keypt
sér kvóta á undangengnum árum,
þótt ekki séu þeir alveg eins margir
og LÍÚ heldur fram. Allir hafa þeir
gert það í skjóli þess, að ólög fiskveiði-
stjómarinnar frá 1990 undir ríkjandi
valdhöfum, fái staðist. Þeir hafa
spekúlerað og menn, sem það gera
verða að vera jafnviðbúnir því að tapa
eins og að græða á gerðum sínum.
Vandann, sem í þessu kann að felast,
þarf að meta og leysa eftir atvikum í
þeirri leit að leið út úr ógöngum fisk-
veiðistjómarinnar, sem þjóðin þarf
nú á að halda, en er synjað um af
kvótaflokkunum.
í tilvitnuðum samtölum á Rás 2,
gerði Friðrik Amgrímsson mikið úr
því, hversu háar fjárhæðir útgerðin
greiði nú þegar sem auðlindargjald.
Þar vantaði í umræðuna lítilræði, sem
skiptir máli. Af nýlegum fréttum
mátti nefnilega ráða, að Suðurnesja-
menn með lítinn eða engan kvóta,
leigðu til sín 8000 tonn af þorski frá
Norðlendingum á síðasta ári. Með
þessu hafa þeir einir greitt yfir 800
milljónir í auðlindaskatt á því ári og
era þá ótaldir allir þeir aðrir kvótalitl-
ir og kvótalausir útgerðarmenn og
sjómenn þeirra víðs vegar um land,
sem slíkt auðlindargjald hafa greitt
útgerðarmönnum, sem sáu hag sínum
best borgið með því að veiða ekki, en
fá sér þræla til þess. Öllu þessu auð-
lindargjaldi var misdreift og það lenti
í höndum, þar sem það átti alls ekki
heima. Það er þjóðin, sem á auðlind-
ina.
c<
KONDÍTORÍ
Copenhagen
Höfundur er fyrrverandi
framkvæmdastjóri. iC
FLísdaaar
Rýmum tilfyrir nýju sumarlínunni!
Margar gerðir af flísfatnaði, t.d. peysur, buxur,
vettlinguar og húfur á frábæru verði.
Póstsendum samdægurs.
UTILIF
OpiðlO-18,
laugardaga 10 -16.
Munið eftir
fríkortinu.
GLÆSIBÆ
Sími 545 1500 • www.utilif.is
190641 HPM DO MHAX'NNH