Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 70
ÆO LÁÚGARDAGUR 25. MÁRS 2000
MORGUNBLÁÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Grettir
Ljóska
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Tónlistarsafn
á Bíldudal
Frá Jóni Kr. Ólafssyni:
BYGGÐARLAGIÐ Bfldudalur
stendur við Bfldudalsvog sem er yst-
ur Suðurfjarða í Arnarfirði. Staður-
inn á sér langa sögu í verslun og í út-
gerð. Nokkru
eftir að einokun-
inni var aflétt um
1787 keypti Ólaf-
ur Thorlacius
staðinn og rak
þar útgerð og
verslun. Þeir sem
á eftir honum
komu voru meðal
annars Þorleifur
Jónsson, Erik
Olsen og Hákon
Bjarnasson og með þeim mestu var
Pétur Thorsteinsson. Um síðustu
aldamót hófst verulegt blómaskeið á
Bíldudal, en Pétur keypti m.a. fyrsta
gufuskipið hér á landi 1898. Pétri og
Asthildi, sem og Guðmundi syni
þeirra er var listmálari (Muggur),
hefur verið reistur minnisvarði hér á
Bfldudal.
Seinnitímamaður sem átti Bíldu-
dal og reisti hér tvær verksmiðjur
um 1938 var Gísli Jónsson alþingis-
maður. Niðursuðuverksmiðjan hf.
var ein af fullkomnustu verksmiðjum
á þessum tíma. I dag, árið 2000, hef-
ur margt breyst, ekki allt til hins
betra, því miður, bæði hér sem ann-
arsstaðar á voru landi.
Ég sem rita þessa grein er um
þessar mundir að koma á fót Tónlist-
arsafni hér á Bfldudal, sem á að
greina smá sýnishom af sögu ís-
lenskrar tónlistar þó henni verði
ekki gerð tæmandi skil hér í mínu
safni. Verður margt forvitnilegt að
sjá þar. Er stefnt að því að opna það
17. júní. Verður það opið að meðaltali
frá kl 13 til 17 alla virka daga frá 17/6
til 1/10 og líka eftir samkomulagi.
Þetta tónlistarsafn ber nafnið
Melódíur minninganna. Þetta tón-
listarsafn tileinka ég Hauk Mort-
hens, Sigfúsi Halldórs, Svanhildi og
Ólafi Gauk, systkinunum Ellý og Vil-
hjálmi Vilhjálmsbömum, Svavari
Gests, Ragnari Bjamasyni, Helenu
Eyjólfs, bræðmnum Ingimari og
Finni Eydal og Jóni Sigurðs svo að-
eins fáir séu nefndir.
Þín minning lifir í mínu hjarta
þú mesta yndi mér heíúr veitt
við áttum framtíð svo fagra og bjarta
en flestu örlögin geta breytt
ogþegarkvöldiðer
svokyrrtoghljótt
égkveðjusendiþér,
þigdreymirrótt.
Þín minning lifir í mínu hjarta
ég mun því bjóða þér góða nótt
Lagið er eftir Jónatan Ólafsson og
textinn eftir Núma Þorbergs. Ég
söng þetta lag, Kvöldkyrrð, á geisla-
plötu mína sumarið 1997.
JÓN KR. ÓLAFSSON,
Reynimel, Bfldudal.
Jón Kr.
Ólafsson
Ferdinand
Smáfólk
FORllSMOW ANP TELL"T0PAV,
1 MAVE BR0U6MT MV NEW
“PRAVIN6 P0LL"
í dag ætla ég að sýna og segja
ykkur frá dúkkunni minni
sem er að biðja bænimar.
Y0U WILL N0TE TMAT HER
MANP5 ARE HELP T06ETMER
IN A PRAVIN6 P0SITI0N BV
VELCR0..ARE THERE ANV QUE5TI0N5?
NO; I PO NOT BELIEVE
VELCR015 MENTIONEP ANV-
WHEREINTHE NEL) TESTAMENT
L
Takið eftir að höndunum er haldið
sarnan í biðjandi stellingu með lími.
Eru einhveijar spuminhgar?
Nei, ég held að þetta lím sé hvergi
nefnt á nafn í Nýja testamentinu.
Spurningar til
forstjóra
Þjóðhagsstofnunar
Frá Kristni Péturssyni:
í MORGUNBLAÐINU 23. mars sl.
er viðtal við forstjóra Þjóðhags-
stofnunar um að „mikill vöxtur í
efnahagslífinu stefni stöðugleikan-
um í tvísýnu“ og
„slaki hafi eink-
ennt hagstjóm"
Af þessu tilefni
þykir mér rétt að
spyrja þennan
ágæta ráðgjafa
Stjórnvalda nokk-
urra spurninga:
Þorskkvóti er
leigður á 120 kr
kg sem er sama
verð og fæst fyrir
aflann eftir að hann hefur verið
veiddur. Er þetta raunhæft leigu-
verð?
Margföldunarstuðullinn 8 hefur
verið notaður sem „ávöxtunarkrafa"
til viðmiðunar á „varanlegum kvóta“
sem gerir verðið ca. 960 kr kg. Er
þetta raunhæft verð?
Þessi verðmyndun kvóta í upp-
spenntu kerfi hefur verið notuð sem
örugg forsenda til millifærslna og
sölu aflaheimilda fyrir marga tugi
milljarða síðustu ár. Spurningin er:
Telur forstjóri Þjóðhagsstofnunar
að hér sé hugsanlega um að ræða
dulbúna seðlaprentun fyrir millj-
arða, eða telur hann að sala (eða veð-
setning) á aflakvóta á þessum for-
sendum standist jafn örugglega og
fasteignaveð á þinglýstri fasteign?
Sé hér hugsanlega um dulbúna
seðlaprentun að ræða, - er ekki lík-
legt að sú, - hugsanlega, - dulbúna
seðlaprentun sé það atriði sem vakið
hefur verðbólgudrauginn af værum
svefni í annars ágætri hagstjórn að
öðru leyti?
Ef misstólingur gerir vart við sig
um það sem spurt er um, - er spurn-
ing til vara þessi: Er raunhæft að
leyft sé að breyta „varanlegu verð-
gildi“ veiðiheimilda í beinharða pen-
inga, - peninga sem aftur er breytt í
steinsteypu á höfuðborgarsvæðinu -
án nokkurra athugasemda opin-
berra aðila, - þó ektó væri nema
einni smá athugasemd um að
kannstó mætti gera hlé á þessum
„millifærslum" svona rétt á meðan
Vatneyrarmálið verður afgreitt í
Hæstarétti?
í viðtalinu við þig í Mbl. segir þú
að slaki hafi einkennt hagstjóm. Ér
það „slaki“ að enginn opinber eftir-
litsaðili skuli hafa gert athugasemd
um ofangreint málefni?
KRISTINN PÉTURSSON,
framkvæmdastjóri.
Kristinn
Pétursson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.