Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 25. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LANDIÐ
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Einar Már Eggertsson með myndbandið bláa sem leyndist í nýju mynd-
bandstæki sem keypt var á heimilið. „Ég sá smávegis af þessu, en langar
ekkert sérstaklega til að sjá meira,“ sagði hann.
Svæsin klámmynd
var í nýja tækinu
FJÖLSKYLDU á Akureyri brá
heldur betur í brún þegar búið
var að tengja nýtt myndbands-
tæki sem hún hafði fjárfest í þeg-
ar það gamla lagði upp laupana.
Tækið var keypt í raftækjaversl-
un, farið með það heim og hafist
handa við að tengja, en þá kom í
ljés að svæsin klámmynd var inni
í tækinu. Greinilegt var að mynd-
in hafði komið með tækinu til
landsins, en engar skýringar hafa
fengist á því hvers vegna fram-
leiðendur hafa gleymt þessari
miður geðþekku bláu biomynd
inni í tækinu.
Fyrirlestur í háskólanum
Hvernig getum við
kennt betur?
GUÐRÍÐUR Adda Ragnarsdóttir,
atferlisfræðingur og kennari við Há-
skólann á Akureyri, flytur fyrirlest-
ur í háskólanum, húsnæði við Þing-
vallastræti 23, í dag, laugardaginn
25. mars, kl. 16.
Fyrirlesturinn nefnist „Hvemig
getum við kennt betur?“. Í fyrirlestr-
inum verður fjallað um kennsluað-
ferðimar „bein fyrirmæli og færni-
þjálfun", árangur nemenda sem
vinna eftir Morningside-kennslulík-
aninu og kosti skráningar og símats
með stöðluðum hröðunarkortum.
Guðríður Adda starfar við fæmi-
þjálfun, atferlis- og kennsluráðgjöf
og lúta viðfangsefni hennar að grein-
ingu og lausn hegðunar-, aga- og
samskiptavanda ásamt fræðslu og
þjálfun um kennsluaðferðir, stjómun
og gæðamat. Fyrirlesturinn er öllum
opinn.
Kirkjustarf
AKURE YRARKIRK J A: Sunnu-
dagaskóli í Kjarnalundi á morgun,
sunnudag, kl. 11. Guðsþjónusta í
kirkjunni kl. 14. Guðsþjónusta á
Dvalarheimilinu Hlíð kl. 16 á
morgun, fundur Æskulýðsfélagsins
kl. 17 í kapellu. Æðruleysisguðs-
þjónusta í Akureyrarkirkju kl.
20.30 annað kvöld. Kaffisopi í Safn-
aðarheimili á eftir. Biblíulestur í
Safnaðarheimili kl. 20 á mánudag-
skvöld í umsjá sr. Guðmundar
Guðmundssonar. Morgunsöngur í
kirkjunni kl. 9 á þriðjudagsmorg-
un. Mömmumorgun í Safnaðar-
heimili kl. 10 til 12 á miðvikudag.
GLERÁRKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11' á morgun,
sunnudag. Halldóra Haraldsdóttir
skólastjóri Giljaskóla flytur hug-
leiðingu, blásaraflokkur Giljaskóla
leikur nokkur lög. Barnakór Gler-
árkirkju syngur. Fundur æsku-
lýðsfélagsins verður kl. 20 um
kvöldið. Kyrrðar- og tilbeiðslust-
und kl. 18.10 á þriðjudag. Hádegis-
samvera kl. 12 til 13 á miðvikudag,
orgelleikur, fyrirbænir og sakra-
menti. Léttur hádegisverður í
safnaðarsal að helgistund lokinni.
Opið hús fyrir mæður og börn frá
kl. 10 til 12 á fimmtudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, sunnu-
dag, á Hvannavöllum 10, bæna-
stund kl. 16.30 sama dag, almenn
samkoma kl. 17 og unglingasam-
koma kl. 20. Heimilasamband kl.
15 á mánudag. Krakkaklúbbur fyr-
ir 6-10 ára börn á fimmtudag kl.
17.30 og 11 plús fyrir 11-12 ára á
föstudag kl. 17.30. Flóamarkaður á
föstudögum frá kl. 10-18.
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL:
Messað verður í Bægisárkirkju á
morgun, sunnudag, kl. 14. Kór
kirkjunnar syngur og organisti
verður Birgir Helgason. Stutt sam-
verustund með börnum í messulok.
Héraðsddmur
Norðurlands eystra
Sekt vegna
fíkniefna-
brots
TVEIR piltai' á nítjánda ári hafa í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
verið dæmdir til greiðslu sektai-
vegna fíkniefnabrota.
Akæra var gefin út á hendur þeim
báðum fyrir að hafa skömmu fyrir
síðustu jól haft hass í fórum sínum er
lögregla hafði afskipti af þeim í bif-
reið þeirra á Akureyri. Þá var annar
pilturinn einnig ákærður fyrir að
kaupa hass sem hann notaði að
mestu til eigin neyslu en átti óveru-
legt magn er lögregla hafði af honum
afskipti í bifreið sinni.
Piltarnir viðurkenndu brot sín fyr-
ir dómi og þóttu þau nægilega sönn-
uð. Báðir hafa piltarnir áður komið
við sögu lögreglu, m.a. vegna brota á
ávana- og fíkniefnalöggjöf.
----------------
Norður-
landsmót í
snjókrossi
BÍLAKLÚBBUR Akureyrar og
Kappakstursklúbbur Akureyrar
halda 1. umferð í Norðurlandsmót-
inu í snjókrossi í dag, laugai'daginn
25. mars, á Akureyrarvelli. Keppni
hefst kl. 14 og ræsir Halldór Blöndal
forseti Alþingis fyrsta keppandann.
Einnig verður svonefnd kross-sýn-
ing á torfærujeppum. Keppnin er lið-
ur í Vetraríþróttahátíð ISÍ, sem nú
stendur yfir á Akureyri.
Úthlutun lóða að hefjast í Suðurbyggð á Selfossi
Búið að sækja um
nánast allar lóðirnar
Selfossi - Einhverja næstu daga
hefst úthlutun lóða í nýju íbúðar-
hverfi á Selfossi, Suðurbyggð, í
landi Árborgar, sunnan byggðar-
innar á Selfossi. Deiliskipulag
fyrsta áfanga hverfisins hefur ver-
ið samþykkt af bæjarstjórn og
Skipulagsstofnun en eftir er að
auglýsa það í B-deild Stjórnartíð-
inda. Lóðirnar í Suðurbyggð eru
allar leigulóðir og verður úthlutað
á skrifstofu Árborgar í ráðhúsinu á
Selfossi. Deiliskipulagið hefur
hangið uppi í Ráðhúsinu á Selfossi
og verið til kynningar á heimasíðu
Árborgar.
Samtals eru nú í boði á Selfossi
hjá sveitarfélaginu og einkaaðilum
lóðir undir 168 íbúðir í rað-, par- og
einbýlishúsum og 70 íbúðir í fjöl-
býlishúsum. Samtals geta þessar
íbúðir rúmað 715 manns ef gert er
ráð fyrir 3 í íbúð.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Bárður Guðmundsson, byggingafulltrúi í Arborg, sýnir uppdrátt að
Hólahverfi í Suðurbyggð á Selfossi.
82 íbúðir í Suðurbyggðinni
I hinu nýja hverfi sveitarfélags-
ins, Hólahverfi, er gert ráð fyrir
samtals 82 íbúðum, 27 raðhúsum,
24 parhúsum og 31 einbýlishúsi. Að
sögn Bárðar Guðmundssonar
byggingafulltrúa er búið að sækja
um nánast allar par- og raðhúsa-
lóðir í hverfinu en eitthvað mun
vera eftir af einbýlishúsalóðum.
Þegar úthlutun hefst verður farið
yfir allar umsóknir og raunveru-
legur vilji til athafna kannaður.
I næsta nágrenni við þetta hverfi
er gert ráð fyrir skólabyggingu og
leikskóla en svonefnd Suðurbyggð
mun geta tekið á móti allt að 2.000
manns.
Ný íbúðasvæði fyrir
um 715 manns
Bárður Guðmundsson bygginga-
fulltrúi sagði greinilegt, af þeim
fyrirspurnum sem bærust, að fólk
víða að af landinu virtist hafa hug á
að setjast að á Selfossi. Ljóst væri
að fólk hefði trú á þeirri uppbygg-
ingu sem nú ætti sér stað í sveitar-
félaginu. „Það er mikið spurt um
lóðir og aðstæður fyrir húsbygg-
ingar,“ sagði Bárður Guðmun-
dsson. Hann benti á að svæði þar
sem deiliskipulag hefði verið gert
fyrir íbúðabyggð á Selfossi gæti
tekið á móti 715 manns miðað við
að þrír væru í hverri íbúð. Þetta
væri fyrsti áfangi Suðurbyggðar
sem væri á hendi sveitarfélagsins
og fyrsti áfangi Fossbyggðarinnar
við Eyraveg þar sem Fossmenn
ehf. bjóða land fyrir íbúðabyggð.
„Miðað við eftirspurnina eftir lóð-
um hér og hjá Fossmönnum má
gera ráð fyrir miklum straumi
fólks hingað tilSelfoss," sagði
Bárður og benti á að veruleg fjölg-
un hefði orðið í Árborg á sl. ári.
„Fólk leitar hingað," sagði Bárður.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Fyrsti áfangi Suðurbyggðarinn-
ar á Selfossi, Hólahverfi, sem er
sunnan núverandi byggðar.
Yngismannadagur
í heiðri hafður
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Systurnar Heiðveig og Guðrún Sörensdætur, sem ólust upp í Heiðarbót í
Reykjahverfi, höfðu gaman af að rifja upp yngismannadaginn.
Norður-Hórað
íbúi kærir samþykkt
sveitarstjórnar
Norður-Héraði - Gísli M. Auð-
bergsson lögfræðingur hefur lagt
fram stjórnsýslukæru til félags-
málaráðuneytisins vegna ákvörð-
unar sveitarstjórnar Norður-Hér-
aðs að hafna að greiða umbjóðanda
hans sem er íbúi á Norður-Héraði
fyrir að aka eigin börnum til og frá
skóla.
Forsaga málsins er sú að á
vormisseri 1998 ók umbjóðandi
Gísla börnum sínum til og frá
skóla í stað þess að láta þau dvelja
þar í heimavist. Um er að ræða
Skjöldólfsstaðaskóla á Jökuldal
sem er í 12 kílómetra fjarlægð frá
heimili umbjóðanda Gísla. Fleiri
bændur í sveitinni munu hafa gert
það sama.
Annar bóndi í sveitinni, sonur
oddvitans, fékk greitt fyrir sams
konar akstur, og fór umbjóðandi
Laxamýri - Fyrsti dagur einmán-
aðar hefur frá fornu fari verið
nefndur yngismannadagur og var
hann mikið tilhlökkunarefni á
bæjum fyrr á öldinni.
Systurnar Guðrún og Heiðveig
Sörensdætur, sem ólust upp í
Heiðarbót í Reykjahverfi, rifjuðu
upp hátiðahöld í tilefni dagsins,
en samkvæmt. almanakinu var
yngismannadagur sl. þriðjudag.
Þá var brugðið út af venju og
bakaðar lummur og hitað kakó
sem yngra fólki þótti mikið til
um, en það var sjaldan sem börn
fengu kakó í þá daga.
Dansað í gömlu stofunni...
Guðrún og Heiðveig, sem báðar
eru á níræðisaldri, minnast þess
einnig að unga fólkið hafi slegið
upp balli á yngismannada
ginn og var þá dansað í gömlu 1
stofunni í Heiðarbót. Þær undrast
að ekki skuli lengur haldið upp á t(
dag þennan rétt eins og bónda-
dag og konudag.
—
Gísla fram á að fá sambærilegar
gi'eiðslur en sveitarstjórn hafnaði
þvi.
Umbjóðandi Gísla telur þessa
afstöðu sveitarfélagsins, um að
greiða sumum en öðrum ekki fyrir
nákvæmlega sama hlutinn, vera I
ómálefnalega mismumun milli f
þegna sveitarfélagsins sem fái ekki |
staðist. Enda hljóti að vera að ætl-
ast til þess að sveitarfélagið meti
málefni þegna sinna út frá jafn-
ræði og almennum efnislegum
mælikvarða.
Gísli krefst þess fyrir hönd um-
bjóðanda síns að hið háa ráðuneyti
leggi fyrir sveitarstjórn Norður-
Héraðs að greiða honum fyrir um-
ræddan akstur sömu fjárhæð á
kílómetra og öðrum hefur verið
greidd.