Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ
I
1
FÓLK í FRÉTTUM
Reykjavíkurmótið í pílukasti haldið í Laugardalshöll um helgina
Pílukastið
er vaxandi íþrótt
Morgunblaðið/Sverrir
Karl Hjaltested, formaður Pflufélags Reykjavíkur: „Ef maður er vel
kunnugur pflukastinu þá er æsispennandi að fylgjast með því.“
UM HELGINA verður and-
nímsloftið íLaugardalshöllinni
þrungiö spennu og einbeitingu því
þar fer fram Reykjavíkurmétið í
pflukasti. Það er Pflukastfélag
Reykjavíkur sem heldur métið en
formaður þess er Karl Hjaltested.
„I félaginu eru um fimmtíu meðlim-
ir og mun meirihlutinn taka þátt í
mótinu en þó það sé kallað Reykja-
víkurmét þá er það opið öllum íbú-
um á höfuðborgarsvæðinu. Það hef-
ur meira að segja verið haldið utan
Reylqavíkur, bæði í Hafnarfirði og
Garðabæ." Karl segir stéraukinn
áhuga vera á pflukasti hér á landi.
„Menn eru farnir að stunda það
mun reglulegar en áður. I vetur
hefur staðið yfir liðakeppni milli
átta liða sem hefur heppnast geysi-
lega vel og skapað mikla stemmn-
mgu í kringum íþréttina.“
Þið lítið sem sagt á púukastið
sem iþrótt?
„Já, en það hefur enn ekki fengist
samþykkt sem viðurkennd íþrótt.
Það mun eflaust taka sinn tíma.“
Hvert er aðdráttarafl pílukasts-
ins?
„Þetta er náttúrlega afar
skemmtileg iðja. Hún krefst hæfni
og einbeitingar en samt er einfalt
að stunda hana. Meira að segja er
hægt að æfa sig heima fyrir. Þar að
auki er pflukastið mjög édýrt. Gott
sett kostar ekki nema um fimmtán
hundruð krónur."
Kallar pílukastið á gott líkamlegt
ástand?
„Ekkert sérstaklega. Það ætti að
vera nóg að búa yfir góðri einbeit-
ingu.“
Gengur pílukastið ekki bara út að
grísa á réttar tölur?
„Nei, nei. Alls ekki. Sérðu sjálfan
þig fá hundrað í hvert skipti sem þú
kastar? Málið er að það er ekki nóg
að vera laginn við að miða rétt held-
or er líka atriði að vera slgótur og
hygginn í hugarreikningi. Ef leik-
maður þarf ávallt að taka augun af
spjaldinu, staðnæmast og setjast
niður og reikna þá tapar hann hinni
dýrmætu einbeitingu."
Hefur pílukastið ávallt verið
tengt öldurhúsum óijúfanlegum
böndum eða er sú þróun ny af nál-
inni hérá Iandi?
„Undanfarið hefur starfsemi
Pflukastfélagsins tengst Grand
Rokk og hafa stjómendur þar á bæ
tekið okkur opnum örmum og verið
ötulir að kynna starfsemi okkar.
Grand Rokk er því einskonar at-
hvarf okkar þessa dagana. Ég tel
mig þó vita fyrir víst að menn eru
að fikta við pflukastið innan fyrir-
tækja og við reynum að þefa þá að-
ila uppi og fá þá í félagið."
Standa erlendum
pflukösturum á sporði
POukastfélag Reykjavíkur legg-
ur sig sem sagt fram við að brciða
Pdukastiðút?
,.Já, já. Við höfum lagt hönd á
um framar. íslendingar eignuðust
meira að segja Norðurlandameist-
ara fyrir um níu árum. Við eigum
fullt af mjög hæfum einstaklingum
sem standa erlendum pflukösturum
fyllilega á sporði."
Hvað er síðan framundan ípílu-
kastinu?
„Islandsmótið sem haldið verður
í næsta mánuði.“
Að Iokum. Erjafn gaman að
horfa á pílukastið og að stunda það?
„Það má segja að þetta sé svipað
og með snókerinn. Menn sem
stunda hann hafa einnig gaman af
því að fylgjast með þeim sem skara
fram úr.
Ef maður er vel kunnugur pfluk-
astinu þá er æsispennandi að fylgj-
ast með því.“
Skráningu lýkur á hádegi í dag
og mótið hefst siðan eins og fyrr
segir í Laugardagshöllinni kl. 13.
Það verður keppt í einmenningi í
dag og á morgun fer fram keppni í
tvímcnningi.
Eyddu
é réttum
sföðum
*fC$\ 0 Bólubaninr
Verð áður: 388 kr.
* Verð nú: 290 kr.
-í4 NHj
r %
Fnh
I
.. ^
Verð áður: 560 kr.
Verð nú: 420 kr.
Lyf&heilsa
AtísfufW • Bsffltís Mítíifs • Kfinglsri • HjMt • Fjamrkmf) • aissitíw • HSIsigsvfftíf • Hfstíntifg
Kfiogiin ÍhsA • IVHfiaqi • HvnpfSI • Kjifni • Silfossi • Hifnifstfsli=AKufi)ifi • HffssltíAátf = Alweyri
LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 7?